Fréttablaðið - 04.05.2005, Side 45

Fréttablaðið - 04.05.2005, Side 45
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 17 S K O Ð U N Katrín Ólafsdóttir skrifar Fjármálaráðuneytið birti nýja þjóðhagsspá í síðustu viku. Fátt kom á óvart í þessari nýju spá. Áfram er gert ráð fyrir miklum hagvexti og auknu ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Þannig býst fjármálaráðu- neytið við að hagvöxtur á þessu ári verði sex prósent. Hagvöxtur hefur því verið yfir fimm pró- sent að meðaltali árin 2003-2005. Þessi ár hefur mátt rekja hag- vöxt að mestu til aukinnar einka- neyslu og aukinnar fjárfestingar. Einkaneysla hefur aukist um ríf- lega sjö prósent á ári og fjárfest- ing um tuttugu prósent á ári að meðaltali. Þetta er gífurlega hraður vöxtur og veldur því að til lengdar byggist upp ójafnvægi í hagkerfinu sem síðar þarf að leiðrétta. Þetta ójafnvægi kemur fram í því að við eyðum nú langt um efni fram eins og sést á vax- andi viðskiptahalla. Viðskiptahallinn nálgast nú Ís- landsmet, en á árunum 2003-2005 er hann að meðaltali 8,5 prósent af landsframleiðslu. Slíkur við- skiptahalli getur ekki gengið til lengdar enda fylgir honum mikil erlend skuldasöfnun og þrýsting- ur á lækkun gengis. Þannig voru erlendar skuldir þjóðarbúsins hundrað prósent af landsfram- leiðslu í lok árs 2002. Þær voru komnar í 130 prósent af lands- framleiðslu í lok síðasta árs og gætu farið yfir 140 prósent af landsframleiðslu á þessu ári. Fjármálaráðuneytið reiknar með áframhaldandi hagvexti á komandi ári, eða 5,7 prósent, en það taki síðan að draga úr hag- vexti á árinu 2007 og það ár verði hann 2,4 prósent. Á sama tíma gerir ráðuneytið ráð fyrir að við- skiptahallinn fari niður í sex pró- sent af landsframleiðslu. Mesta breytingin á því ári liggur í sam- drætti í fjárfestingu þegar stór- iðjuframkvæmdum lýkur. Einnig er gert ráð fyrir að vöxtur einka- neyslu verði mun minni en nú er og verði innan við eitt prósent. Þannig spáir ráðuneytið afar mjúkri lendingu eftir kröftuga uppsveiflu. Mikil óvissa fylgir þeirri spá. Það er alveg jafn lík- legt að lendingin verði heldur harkalegri og samdráttar gæti á árinu 2007. Þetta veltur að tölu- verðu leyti á þróun gengis krón- unnar á næstu misserum. Flestir eru þeirrar skoðunar að gengi krónunnar sé of hátt skráð um þessar mundir og þrýstingur á lækkun þess eykst. Spurningarn- ar sem enginn getur svarað í dag er hvenær veikist gengið, hversu hratt gerist það og hversu mikið veikist það. Því fyrr sem leiðréttingin á sér stað því betra, þar sem því lengur sem við bíðum, þeim mun meiri þarf leiðréttingin að vera. En hvort er betra að leiðréttingin gerist hratt eða hægt? Það fer allt eftir aðstæðum og aðeins tíminn getur skorið úr um það. Horfurnar næstu árin Ljósritunarvél/prentari DC 2116 • Stafræn ljósritunarvél og prentari me› netkorti. · Prentar 16 A4 bls. á mínútu · 300 bls pappírsskúffa · Pappírsstær›ir: A5, A4 og A3 · 50 bls fjölnota bakki og rafræn rö›un. · Mögulegur aukabúna›ur: · Matari, bakritun, auka pappírsskúffur, frágangsbúna›ur me› heftun,skönnun og fax. Tilbo›sver› 169.900 kr. Fullt ver›: 219.900 kr. Ljósritunarvél/prentari DC 2130, DC 2140 og DC 2150 • Stafræn ljósritunarvél og prentari me› netkorti. · Sérlega öflugar ljósritunarvélar me› miklum sta›albúna›i · Prenta 30,40 og 50 A4 bls. á mínútu · Tvær 500 bls pappírsskúffur. · Pappírsstær›ir: A5, A4 og A3 · 200 bls fjölnota bakki. · Innbygg› bakritun og rö›un · Langur líftími tromlu og annara íhluta; 400.000 eintök í DC 2130 · 500.000 eintök í DC 2140 og DC 2150 · Miklir stækkunarmöguleikar: · Mögulegur aukabúna›ur: frumritamatari, pappírslager allt a› 4.200 bls, margskonar frágangsbúna›ur, heftun, götun og kjölheftun me› broti, nettengjanleg prentun, skönnun og fax. *ATH. m ynd m e› aukabúna›i *ATH. m ynd m e› aukabúna›i 10 KA SSAR FYLGJA Fjölnotatæki DC 2018 Öflug fyrirfer›arlítil stafræn ljósritunarvél, prentari og litaskanni me› netkorti. · Prentar 18 A4 bls á mínútu · 250 bls pappírsbakki · 50 bls fjölnota bakki · Matari · Mögulegur aukabúna›ur: · Aukaskúffa og fax Tilbo›sver› 79.900 kr. Fullt ver›: 119.900 Þetta er rétta vélin fyrir smærri fyrirtæki! MATARI FYLGIR! 50.000 KR. VERÐ- LÆKKUN Ljósritunarvélar Enn lækkar Office 1 rekstrarkostnað fyrirtækja! Þessi smellpassar á skrif- stofuna! Hringdu og fáðu besta verðið! 5 KA SSAR FYLGJA Bjóðum hagstæða fjármögnunar- og rekstrarleigu! Sérfræðing ar í ljósritu n og prent un. Leiðan di í sölu og þ jónustu á l jósritunarv élum í Þýskaland i, þar sem viðskipavin urinn gerir mikla r kröfur til rekstaröryg gis, lágs reksrarkos tnaðar, gæ ða og hám arks þjónustu. V iðskiptavin ir Triumph Adler eru í yfir 70 lön dum vítt og breitt um heiminn. Við sendum frítt á höfuðborgasvæðinu eða til næsta flutningsaðila ef verslað er fyrir meira en 7.000 krónur og samdægurs ef pantað er fyrir klukkan 12 á hádegi, en annars næsta virkan dag. Fyrirtækjaþjónustan er opin alla virka daga frá 8:30 - 17:00 Pantanir 550 4111 • Fax 550 4101 • pontun@office1.is 550 4111 • www.office1.is Í fyrirtækjaþjónustu Office1 starfa einstaklingar með mikla þekkingu á skrifstofu- og rekstarvörum. Endilega hafðu samband og fáðu upplýsingar um viðskiptakjör og þjónustuvalmöguleika. Fyrirtækjaþjónusta 1 K ASSI FYLGIR 40.000 KR. VERÐ- LÆKKUN Tíska eða Sími í tísku Ég skil ekki hvað menn eru að spá í Símann. Umræðan er að verða þannig að líklegast er að sá sem kaupir fyrirtækið borgi allt of hátt verð fyrir það. Maður heyrir endalusar sögur um ein- hverja nýja sem eru að rotta sig saman um að bjóða í fyrirtækið. Það er eins og fólk hafi ekkert annað að gera. Síminn er of mik- ið í tísku fyrir minn smekk. Ég er meira að pæla í að kaupa smávegis í tískukeðjunni EBIT- DA, hagnaðurinn er 6,3 milljarð- ar sem er svipað og hjá Símanum og einhvern veginn sé ég ekki fyrir mér að Síminn opni hund- rað búðir í Kína eins og Oasis. Konan hefur líka verið að kaupa svolítið í Karen Millen og ég sé það á Vísareikningunum að þetta er sennilega góður bisness. Að vísu vantar Mosaic peninga til að borga skuldsettu yfirtökuna á Karen Millen. Síminn á hins veg- ar nóga peninga og aðaltrikkið við að kaupa hann er að hirða þessa peninga út úr fyrirtækinu og skuldsetja það almennilega. Svo þarf að fara að reka fólk og stoppa fjárfestingar til þess að ná hagnaðinum upp. Það getur gefið vel af sér, en ég get hugsað mér skemmtilegra starf en að reka fólk sem er búið að mæta í vinnuna stundvíslega í mörg ár, jafnvel þótt að það sé óþarft. Maður verður að finna eitt- hvað fyrir peningana að gera. Ég var búinn að ákveða að losa stöðu í KB banka strax eftir uppgjörið til að létta á erlenda láninu. Það var eins gott, því að ríkisstjórnin tók upp á því að borga erlent lán og veikja krónuna. Þeir gerðu síðan bandalag við Hagstofuna til að lækka verðbólguna svo að kjarasamningarnir haldi. Nú er krónan búin að veikjast og KB banki að lækka svo það er aldrei að vita nema að maður kaupi bara aftur. Svo er áfram hægt að veðja á að lætin í Íslandsbanka komi til með að búa til smá pen- ing fyrir mann. Maður hlýtur að finna eitthvert verkefni fyrir peningana. Maður hefur ekki efni á öðru. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N Það er alveg jafn líklegt að lendingin verði heldur harkalegri og samdráttar gæti á árinu 2007. » FA S T U R » PUNKTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.