Fréttablaðið - 04.05.2005, Side 62
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Miðvikudagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
17.15 Olíssport á Sýn.
18.30 PSV Eindhoven og AC Milan
á Sýn. Bein útsending frá
undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu.
21.00 US PGA 2005 – Monthly á
Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.20 Ístölt í Egilshöll 2005 á Rúv.
23.00 Formúlukvöld á Rúv.
23.15 PSV Eindhoven og AC Milan
á Sýn.
Enginn veit hvort þetta var mark
26 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við vorkennum ...
... Eiði Smára Guðjohnsen sem ásamt
Chelsea tapaði í undan-
úrslitum Meistaradeildar-
innar annað árið í röð.
Eiður fékk ágætt tæki-
færi til að gera út um
leikinn á lokasekúnd-
um hans en allt kom
fyrir ekki ...
sport@frettabladid.is
> Við skiljum ekki ...
... af hverju mótanefnd HSÍ leyfir starfs-
mönnum Ríkissjónvarpsins að stjórna
því hvenær leikir á vegum sambandsins
eru leiknir. Tímasetning
leiks ÍBV og Hauka í
gærkvöld var með öllu
óskiljanleg þar sem
þorri íþróttaáhuga-
manna fylgdist með
stórleik Liverpool
og Chelsea á
sama tíma.
Heyrst hefur...
... að landsliðsmaðurinn Hermann
Hreiðarsson sé búinn að framlengja
samning sinn við Charlton til ársins
2007 en gamli samningur Hermanns
við félagið átti að renna út árið 2006.
Hermann hefur staðið sig frábærlega
með Charlton síðustu ár og á svo
sannarlega skilið að fá nýjan
samning frá félaginu.
Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KA, er
nýkominn heim eftir vikudvöl hjá
Man.City. Þorvaldur Örlygsson kom því í
kring að Pálmi yrði við æfingar hjá fé-
laginu í eina viku en framkvæmdarstjóri
Man.City er engin annar en Stuart Pe-
arce. Fréttablaðið hafði samband við
Pálma og spurði hann út í dvölina.
„Ég fann mig ágætlega þarna úti og
æfði með aðalliðinu allan tímann, von-
andi segir það eitthvað,“ sagði Pálmi
sem sagðist ekki hafa átt í vandræðum
með hraðann sem fylgir enskri knatt-
spyrnu.
„Hraðinn var vissulega meiri en hérna
heima en hraðinn í þennan tíma sem
ég var þarna gaf kannski ekki rétta
mynd af hraðanum sem er í Úrvals-
deildinni þar sem deildin er að klárast
hérna úti.“ Aðspurður sagðist honum lít-
ast mjög vel á Stuart Pearce. „Mér líkaði
mjög vel við Stuart og hann er algjör
toppkall. Það var mjög auðvelt að eiga
við hann og hann virkaði mjög yfirveg-
aður,“ sagði Pálmi en Pearce hyggst
koma til Íslands í sumar og sjá Pálma í
leik með KA. Hann staðfesti það í
erlendum fjölmiðlum í gær.
Pálmi sem hefur leikið með KA undan-
farin tvö ár segist hóflega bjartsýnn á
vera boðinn samningur hjá félaginu.
„Auðvitað geri ég mér ákveðnar vonir
um að fá samning en ef það gerist ekki
þá heldur maður bara áfram. Mestu
máli skiptir að Stuart (Pearce) sjái mig í
leik en ekki bara á einhverjum æfing-
um.“
Það skyldi þó aldrei fara svo að við
myndum eign-
ast enn einn
atvinnumann-
inn í knatt-
spyrnu en tím-
inn verður að
leiða það í ljós
en það er ljóst
að Pálmi á eftir að
láta að sér kveða
á næstu árum,
hvort sem
það er hér
heima
eða er-
lendis.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var ekki að skafa af hlutunum eftir leik Chelsea og Liverpool og taldi að betra
liðið hefði fallið úr Meistaradeildinni í gær. Steven Gerrard segir dómgæslu einfaldlega vera hluta af leiknum.
HÚSVÍKINGURINN PÁLMI RAFN PÁLMASON: VAR TIL REYNSLU HJÁ MAN. CITY Í VIKUTÍMA
Stuart Pearce kemur til Akureyrar
FÓTBOLTI „Það skiptir mig engu
hvort þetta hafi verið mark eða
ekki. Dómarinn er hluti af
leiknum. Það sem skiptir máli er
að við unnum og erum á leið í úr-
slitaleikinn í Istanbúl. Ég get ekki
lýst ánægju minni með orðum,“
sagði Steven Gerrard, fyrirliði
Liverpool, eftir að liðið hafði lagt
Eið Smára Guðjohnsen og félaga í
Chelsea af velli í síðari undanúr-
slitaleik liðanna í Meistaradeild
Evrópu í gærkvöld. Mark Luis
Garcia strax á fjórðu mínútu
leiksins var það sem skildi liðin að
og var það mjög umdeilt þar sem
leikmenn Chelsea vildu meina að
skot hans hefði aldrei farið inn
fyrir marklínuna.
„Betra liðið tapaði hér í kvöld.
Enginn veit hvort þetta var lög-
legt mark, ekki einu sinni línu-
vörðurinn,“ sagði Jose Mourinho,
stjóri Chelsea, mjög ósáttur í
leikslok. Rafael Benites sagði
Chelsea heppið að markið hefði
verið dæmt gilt. „Annars hefði
Peter Cech fengið rautt spjald og
við fengið víti.“
Einstök stemmning
Eiður Smári fékk besta færi
Chelsea í leiknum á lokamínútu
leiksins þegar boltinn datt til hans
við fjærstöngina, en á einhvern
ótrúlegan hátt náði okkar maður
ekki að hitta á markið og því fór
sem fór. Öllum að óvörum er það
Liverpool sem er komið í úrslit
Meistaradeildarinnar í sjötta sinn
í sögu félagsins.
Stemmningin á Anfield í gær-
kvöld var ólýsanleg og leiða má
líkur að því að hávaðinn á leik-
vanginum hafi sjaldan eða aldrei
mælst jafn mikill.
Liverpool stillti upp sama liði
og í fyrri leiknum nema að Þjóð-
verjinn Dietmar Hamann kom inn
í liðið í stað Xabi Alonso sem var í
leikbanni. Damien Duff var úr-
skurðaður óleikfær skömmu fyrir
leikinn og sem fyrr treysti Jose
Mourinho Arjen Robben ekki til að
vera í byrjunarliðinu. Þar var hins
vegar Eiður Smári Guðjohnsen og
lék hann í stöðu fremsta miðju-
manns.
Það var bersýnilegt að
taugatitringurinn í leikmönnum
beggja liða var mikill og voru læt-
in í áhorfendum engu lík. Það var
því ekki furða að leikmenn Chel-
sea hefðu vankast þegar Garcia
kom Liverpool yfir strax í upphafi.
Markið sló gestina út af laginu en
veitti heimamönnum að sama
skapi mikið sjálfstraust. Fyrstu 20
mínúturnar var leikur Chelsea
ekki svipur hjá sjón og hafði Liver-
pool nokkra yfirburði. Áhorfend-
urnir voru sannarlega á við tólfta
mann Liverpool því að þeir þögn-
uðu aldrei og bauluðu meðal ann-
ars í hvert sinn sem Eiður Smári
snerti boltann vegna spjaldsins
sem hann fiskaði á Alonso í fyrri
leiknum.
Eftir því sem leið á leikinn
komst Chelsea meira inn í hann á
meðan leikmenn Liverpool bökk-
uðu enn frekar. Chelsea saknaði
hins vegar sárt manna á borð við
Duff og Robben, því að sóknarleik-
ur liðsins var hugmyndasnauður
með eindæmum og var Eiður
Smári í raun sá eini sem náði að
búa eitthvað til.
Ekkert gekk upp við markið
Chelsea hóf síðari hálfleikinn af
krafti og var miklu meira með
boltann, en sem fyrr var eins og
leikmenn liðsins rækjust á vegg
þegar þeir nálguðust vítateigslín-
una. Enn einu sinni í Meistara-
deildinni var Jamie Carragher að
spila eins og engill en hinum meg-
in var Frank Lampard aðeins
skugginn af sjálfum sér og munaði
þar um minna.
Á 68. mínútu var Robben loksins
kynntur til leiks og frískaði hann
eilítið upp á sóknarleik Chelsea.
Þegar tæpar tíu mínútur voru eftir
skoppaði boltinn framhjá þremur
sóknarmönnum Chelsea eftir fyrir-
gjöf Robbens og undirstrikaði það
lánleysi gestanna upp við markið.
Á 96. mínútu fékk Eiður Smári
síðan færið ótrúlega og á hann
væntanlega eftir að dreyma þetta
augnablik næstu nætur og velta því
fyrir sér hvernig hann fór að því að
brenna af.
Carragher, sem lék sennilega
sinn besta leik á ferlinum í gær,
sagði eftir leikinn að Liverpool
hefði ekki enn lokið ætlunarverki
sínu. „Ég hef aldrei upplifað annað
eins andrúmsloft og ég vona að
þessir stuðningsmenn fylgi okkur í
úrslitaleikinn.“
vignir@frettabladid.is
Úrslitakeppni DHL-
deildarinnar í handbolta
ÍBV–HAUKAR 35–39 (31–31, 15–12)
Mörk ÍBV: Tite Kalandaze 9, Svavar Vignisson 6,
Robert Bognar 5, Samúel Ívar Árnason 5/2,
Zoltan Belányi 4/2, Sigurður Ari Stefánsson 3,
Kári Kristjánsson 2, Sigurður Bragason 1.
Varin skot: Roland Eradze 18/1, Jóhann Ingi
Guðmundsson 1.
Mörk Haukar: Ásgeir Örn Hallgrímsson 12, Þórir
Ólafsson 9, Halldór Ingólfsson 5/2, Gunnar Ingi
Jóhannsson 4, Vignir Svavarsson 2, Freyr
Brynjarsson 2, Andri Stefan 2, Jón Karl Björnsson
2, Gísli Jón Þórisson 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundssson 12/1,
Jónas Stefánsson 6.
Meistaradeild Evrópu
LIVERPOOL–CHELSEA 1–0
1–0 Luis Garcia (4.).
LEIKIR GÆRDAGSINS
Framlengt í Vestmannaeyjum og Haukar geta tryggt sér titilinn á morgun:
Haukar sigldu áfram á reynslunni
HANDBOLTI Það er að duga eða
drepast fyrir Eyjamenn eftir tap
fyrir Haukum í öðrum leik
liðanna í úrslitarimmu DHL-
deildar karla. Svo virtist lengi vel
að heimamenn ætluðu að tryggja
sér sigurinn en Hafnfirðingum
tókst að jafna er fimm sekúndur
voru eftir af venjulegum leik-
tíma. Jón Karl Björnsson, sem
tók stöðu markvarðarins og
klæddist því vestinu fræga, var
þar að verki og skoraði jöfnunar-
markið með lúmsku snúnings-
skoti úr vinstra horninu.
Þjálfarar beggja liða voru
sammála um það eftir leikinn að
Vestmannaeyingar höfðu kastað
sigrinum frá sér á lokamínútum
leiksins. Skrifast það einfaldlega
á reynsluleysi þeirra en þeir eru
að leika í fyrsta sinn í úrslitum.
Haukar sigu fljótlega fram úr í
framlengingunni og var sigurinn
aldrei í hættu.
Hjá meisturunum var Ásgeir
Örn Hallgrímsson yfirburða-
maður með sín tólf mörk en þess
skal einnig getið að Þórir
Ólafsson skoraði fjögur mjög
dýrmæt mörk úr hraðaupp-
hlaupum. Birkir Ívar hefur oft
leikið betur en hann brást þó ekki
í framlengingunni þar sem hann
lokaði hreinlega markinu.
Hjá ÍBV voru erlendu
mennirnir, Robert Bognar og Tite
Kalandaze, atkvæðamiklir þó svo
að sá síðarnefndi hefði verið
tekinn úr umferð allan leikinn. Þá
kom á óvart að unglinga-
landsliðsmaðurinn Kári Krist-
jánsson hafi byrjað inn á í stöðu
línumanns í leiknum en Svavar
Vignisson átti góða innkomu og
skoraði alls sex mörk, flest í
síðari hálfleik.
Sigurður Ari Stefánsson átti
vægast sagt dapran dag og gekk
lítið sem ekkert upp hjá honum í
leiknum.
„Við sögðum í hálfleik að al-
veg sama í hverju við myndum
lenda í seinni hálfleik yrði barist
fram á síðustu mínútu og það
gerðum við svo sannarlega,“
sagði Páll Ólafsson þjálfari
Hauka. „Ég var kannski ekki
orðinn svartsýnn en manni líður
skiljanlega ekki vel þegar liðið er
fimm mörkum undir og tíu
mínútur eftir.“
Birkir Ívar náði svo að loka á
Tite í framlengingunni?
„Já, það var kominn tími á að
hann tæki einhver skot frá
honum en það gerðist sem betur
fer á réttum tíma. Þessari rimmu
er langt í frá lokið enda þarf þrjá
sigra og við bara búnir að vinna
tvo. Við þurfum að klára þetta
dæmi á næstu 60 mínútum,“
sagði Páll.
Þriðji leikur í úrslitarimmu
Hauka og ÍBV fer fram á
Ásvöllum annað kvöld og hefst
hann klukkan 19.40.
- esá, - jiá
13 MÖRK Ásgeir Örn Hallgrímsson átti
drjúgan hlut í sigri Haukamanna í
gærkvöld og skoraði í leiknum þrettán
mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Í ÚRSLITALEIKINN Leikmenn Liverpool réðu sér vart að kæti eftir að flautað hafði verið
til leiksloka í leiknum gegn Chelsea í gærkvöldi. Liðið er nú komið í úrslitaleik Meistara-
deildarinnar í sjötta sinn í sögu félagsins. Fréttablaðið/AP
Pétur Marteinsson:
Jafntefli í gær
FÓTBOLTI Hammarby og Malmo
gerðu 1-1 jafntefli í sænsku
úrvalsdeildinni í fótbolta í
gærkvöld. Pétur Marteinsson,
sem lék allan leikinn fyrir
Hammarby, varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að við-
beinsbrjóta andstæðing sinn,
Niklas Skoog, í leiknum sem var
vitaskuld algjört óviljaverk. - esá