Fréttablaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,89 64,19
116,97 117,53
78,51 78,95
10,55 10,61
9,98 10,04
8,60 8,65
0,60 0,60
94,36 94,92
GENGI GJALDMIÐLA 08.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,26 -0,60%
4 8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Íslendingur stýrir dansk-bandarískri vísindastöð á Grænlandi:
Tekur upp hljó› úr geimnum
VÍSINDI Íslenski verkfræðingurinn
Eggert Guðmundsson starfar á
dansk-bandarísku vísindastöðinni
Kellyville á Grænlandi við það að
taka upp hljóð frá himingeimnum.
Hljóðin eru síðan rannsökuð af
hernaðarlegum og borgaralegum
sérfræðingum í Bandaríkjunum.
„Við hlustum á og tökum á móti
hljóðum af öllum gerðum. Það er
margt sérstakt sem berst til jarð-
ar en hvað það er veit ég ekki,“
sagði Eggert í samtali við Aften-
posten fyrir nokkru.
Á vísindastöðinni sem er uppi í
fjöllum nokkra kílómetra frá Kan-
gerlussuaq, eða Syðri-Straum-
firði, þar sem Bandaríkjamenn
höfðu eitt sinn herflugvöll, eru
hljóðin tekin upp. Einnig er fylgst
með ósonlaginu. Allt er svo skráð
niður í sambandi við hljóð, ljós og
ósonlag en auk þess eru teknar
myndir af ljósi.
Eggert hefur búið á Grænlandi
í tæp átta ár. Hann fluttist þangað
og starfaði hjá dönsku veðurstof-
unni strax eftir að námi lauk í
Danmörku. Hann hefur nú starfað
sem stöðvar- og tæknistjóri í
Kellyville í þrjú ár. -ghs
Barátta um völd
og baktjaldamakk
Orsakirnar fyrir afsögn Hjalta fiorkelssonar skólastjóra Landakotsskóla má rekja til
valdabaráttu innan skólans. Skólanefnd hefur ekki brug›ist vi› stu›ningsyfirl‡singu
foreldra vi› Hjalta og búist er vi› flví a› n‡r skólastjóri ver›i rá›inn í hans sta›.
LANDAKOTSSKÓLI Séra Hjalti Þor-
kelsson skólastjóri Landakots-
skóla sagði af sér á föstudag
vegna samstarfsörðugleika við
skólanefnd. Afsögnin er afleiðing
illinda sem skekið hafa skólann
undanfarna mánuði.
Samkvæmt bókun á kennara-
fundi í Landakotsskóla frá 1.
mars gengu kennararáðsfulltrú-
arnir Guðbjörg Magnúsdóttir,
Helga Guðrún Loftsdóttir og
Irena Kojic á fund skólanefndar
þann 28. janúar síðastliðinn og
lögðu fram athugasemdir þar
sem „gróflega er vegið að starfs-
heiðri og orðstír skólastjóra, að-
stoðarskólastjóra og nokkurra
nafngreindra kennara við skól-
ann.“ Í bókuninni kemur fram að
kennararáðsfulltrúarnir hafi far-
ið langt út fyrir þann ramma sem
kennararáði er ætlað að starfa
eftir. Lýst var yfir vantrausti á
kennararáðsfulltrúana og skorað
á þá að segja af sér með öllum
greiddum atkvæðum.
Á fundi með kennararáði 14.
febrúar krafðist Hjalti Þorkels-
son skólastjóri þess að fá afhent
öll gögn sem lögð voru fram á
fundi kennararáðs með skóla-
nefnd 28 janúar. Í kjölfarið fékk
Hjalti sendan útdrátt úr minnis-
punktum fundarins frá ritara
skólanefndar en Hjalti krafðist
þess að fá óbreytt eintak af
minnispunktunum. Skólanefnd
varð ekki við ósk Hjalta. Kennar-
ar við skólann óskuðu einnig eftir
því að fá óbreytt eintak af minnis-
punktunum en fengu þau svör frá
kennararáði að minnispunktarnir
væru glataðir. Kennararnir
kærðu athæfi kennararáðs til úr-
skurðarnefndar upplýsingamála í
forsætisráðuneytinu.
Í kjölfarið mögnuðust deilurn-
ar sem endaði með því að skóla-
nefnd sagði Bessí Jóhannsdóttur
aðstoðarskólastjóra upp störfum
og rökstuddi uppsögnina með
sparnaðaraðgerðum. Með upp-
sögn Bessíar taldi Hjalti skóla-
stjóri að skólanefnd hefði stigið
inn á valdsvið sitt sem skólastjóra
og við það gat hann ekki unað.
Skólastjórn Landakotsskóla
sendi frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem því er lýst yfir að full
samstaða sé milli stjórnar og
kennararáðs um áframhaldandi
skólastarf. Gunnar Örn Ólafsson
formaður skólanefndar Landa-
kotsskóla sagði að foreldrar yrðu
kallaðir á fund með skólanefnd í
vikunni.
ingi@frettabladid.is
Hringróðurinn – dagur 3:
Hvíld í gær
REYKJAFJÖRÐUR Kjartan Jakob
Hauksson hélt kyrru fyrir fram
eftir degi í gær og hvíldi sig eftir
átökin í fyrsta áfanga. Það viðraði
ekki vel til siglinga í gærmorgun
en búist er við betra veðri í dag.
Gærdeginum eyddi hann hjá ætt-
ingjum sínum í Reykjafirði þar
sem hann safnaði orku eftir að hafa
róið fyrir Kögur í mótvindi. ■
Sjálfstæðisflokkurinn:
Prófkjör vi›
val á listann
BORGARSTJÓRN Sjálfstæðisflokkur-
inn í Reykjavík mun efna til próf-
kjörs til að velja frambjóðendur á
lista flokksins í komandi borgar-
stjórnarkosningum. Þetta ákvað
stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, á
fundi sínum í gær. Stjórnin mun
leggja það til á fulltrúaráðsfundi í
byrjun september að prófkjörið
verði haldið um mánaðamót sept-
ember og október. Þátttöku í próf-
kjörinu hafa flokksbundnir sjálf-
stæðismenn, sextán ára og eldri
sem hafa búsetu í Reykjavík.
-hb
ÍTALÍA
FUNDU FALSAÐA SKÓ Ítölsk tolla-
yfirvöld haldlögðu í gær 35 þús-
und pör af „fölsuðum“ íþrótta-
skóm sem fluttir voru inn frá
Kína. Áætlað virði skónna er
rúmar 140 milljónir króna, eða
1,8 milljónir evra. Skórnir fund-
ust í fimm gámum í hafnarborg-
inni La Spezia, á vesturströnd
Ítalíu. Allir voru skórnir merktir
þekktum framleiðendum svo sem
Nike, Adidas og Puma.
VEÐRIÐ Í DAG
MÁLIN RÆDD Sjálfstæðismenn ætla sér
stóra hluti í borgarstjórnarkosningunum.
Líbíska lögreglan:
S‡knu› af
pyntingum
LÍBÍA, AP Níu líbískir lögreglumenn
og einn læknir voru í gær sýknað-
ir af ákæru um að hafa náð fram
með pyntingum játningu fimm
búlgarskra hjúkrunarkvenna.
Þær voru sakaðar um að hafa vilj-
andi smitað 430 börn með HIV-
veirunni og voru ásamt palest-
ínskum lækni dæmd til dauða.
Þau hafa setið í fangelsi í sex ár.
Fólkið heldur fram sakleysi sínu
og segist hafa orðið fyrir barsmíð-
um, raflostum og öðru ofbeldi af
hálfu lögreglu. Tvær kvennanna
segja að sér hafi verið nauðgað.
Í dómnum sem féll í gær segir
að sönnunargögn hafi verið of rýr
til að hægt sé að sakfella lögreglu-
mennina. Dauðadómnum var
áfrýjað til hæstaréttar og dóms er
að vænta í haust. ■
DÓMI FAGNAÐ Líbíski lögreglumaðurinn
Gomaa al-Mishri fagnar dómi í gær, en
hann ásamt níu öðrum var sýknaður af
ákæru um pyntingar fanga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
EGGERT GUÐMUNDSSON „Við hlustum á
og tökum á móti hljóðum af öllum gerð-
um. Það er margt sérstakt sem berst til
jarðar en hvað það er veit ég ekki,“ segir
Eggert sem hefur búið og starfað á Græn-
landi í átta ár.
FUNDUR FORELDRA Á fundi í Reykjavíkurkademíunni á mánudag samþykktu foreldrar
barna í Landakotsskóla áskorun til stuðnings Hjalta Þorkelssyni sem send var skólanefnd
Landakotsskóla. Kaþólski biskupinn á Íslandi Jóhannes Gjisen neitaði að taka við áskorun-
inni því hann sagðist ekkert hafa með skólann að gera. Kaþólska kirkjan hefur lýst því yfir
að hún beri traust til skólanefndarinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
Innbrot á Akureyri:
Brotist inn
í fjóra bíla
DÓMSMÁL Brotist var inn í fjóra
bíla á Akureyri í fyrrinótt og til að
bíta höfuðið af skömminni óku
þjófarnir tveimur bílanna
nokkurn spöl frá upphaflegu bíla-
stæði sínu. Annar þeirra er tölu-
vert skemmdur eftir, en kúpling
bílsins virðist hafa eyðilagst.
Sömu menn eru taldir hafa verið
að verki í öllum tilfellunum.
Málið er í rannsókn.
- mh