Fréttablaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 8. júní 2005
Borgarholtsskóli
Innritun nemenda úr grunnskóla á haustönn
2005 stendur yfir og lýkur 14. júní
Í boði eru eftirtaldar námsbrautir:
Nánari upplýsingar um einstakar námsbrautir eru á heimasíðu
Borgarholtsskóli, v/Mosaveg, 112 Reykjavík. Sími 535 1700. Bréfasími 535 170
Sjá nánar á heimasíðu: www.bhs.is
Bóknám til stúdentsprófs:
• Félagsfræðabraut
• Málabraut
• Náttúrufræðibraut
Iðnám:
• Grunndeild bíliðna
• Fyrrihlutanám í málmiðnum
Listnám:
• Margmiðlunarhönnun, grafísk áhersla
• Margmiðlunarhönnun, fjölmiðlatækni
Annað starfsnám:
• Félagsliðabraut, Námsbraut fyrir
aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum
• Verslunarbraut
Almenn námsbraut er einnig í boði fyrir þá nemendur sem ekki
standast inntökuskilyrði á aðrar námsbrautir.
Við aðstoðum nemendur og forráðamenn við rafræna innritun vikuna 6.-10.
júní kl. 9-16.
Opið hús verður í skólanum 13. og 14. júní kl. 11-18 þar
sem kynnt er það nám sem er í boði.
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Raddbeiting fyrir allar tegundir söngs
Cathrine Sadolin heldur nám-
skeið hér á landi 15. og 16.
júní fyrir atvinnusöngvara úr
öllum tónlistargeirum.
Cathrine Sadolin er einn helsti
raddfræðingur og söngkennari
heims. Hún hefur unnið að rann-
sóknum á raddtækni í ýmsum stíl-
beitingum og tegundum í hátt í tutt-
ugu ár og byggir kenningar sínar á
eigin reynslu sem bæði klassísk
söngkona og rokkari. Hún heldur
„masterclass“ hér á landi 15. og 16.
júní næstkomandi. Björk Jónsdótt-
ir, söngkona og söngkennari, hefur
veg og vanda af komu hennar hing-
að til lands. „Rannsóknir Cathrine
má nota í allar tegundir söngs og
hún hefur til dæmis fundið kerfi til
að byggja upp raddir þeirra sem
hafa starfað lengi innan rytmíska
geirans, sungið djass, popp og rokk,
og slitið út röddunum sínum. Hún
hefur gefið út bækur sem hafa ver-
ið lofaðar af gagnrýnendum, lækn-
um og talmeinafræðingum.
Cathrine Sadolin er kölluð til
þegar söngvari á við vandamál að
stríða, hvort sem er í frægum óp-
eruhúsum eða stúdíói þar sem verið
er að taka upp poppplötu.“ Á nám-
skeiðinu ætlar Sadolin að kynna
tækni sína og síðan halda
masterclass þar sem verða fimmt-
án virkir þátttakendur sem bera
vandamál sín undir kennarann, sem
leiðbeinir þeim fyrir framan áhorf-
endur. „Það er alltaf á ábyrgð
söngvarans að vinna hvað hann vill
gera og ég spyr alltaf: hvað get ég
gert fyrir þig? Söngvarinn verður
því að þekkja sína rödd og vita hvað
hann vill vinna með og gera.“
Björk kynntist aðferðum Sadolin
fyrir nokkrum árum. „Ég keypti
bók eftir Cathrine Sadolin alveg
óvart þegar hún var nýkomin út og
fannst kenningar hennar mjög
áhugaverðar. Af tilviljun fann ég
heimasíðuna hennar og fór að skrif-
ast á við Cathrine. Það fór svo að
hana langaði til að koma til Íslands
þannig að við ákváðum að skella
bara á námskeiði hérna í nóvember
síðastliðnum. Það sló í gegn, sér-
staklega fyrir söngvara í rytmíska
geiranum sem fundu loksins tækni
sem virkaði fyrir þá söngbeitingu
sem þeir nota.“
Ennþá er laust fyrir virka þátt-
takendur á námskeiðið 15. og 16.
júní og svo er öllum frjálst að koma
og hlusta á Sadolin skýra kenningar
sínar og kenna. Þeim sem komast
ekki núna er ráðlagt að örvænta
ekki því Sadolin kemur aftur til
landsins í októberlok.
Skráning og nánari upplýsingar
eru á www.fih.is/masterclass eða á
skrifstofu FÍH. ■
Björk Jónsdóttir, söngkona og söngkennari, stendur fyrir komu Cathrine Sadolin til landsins.
Nú var í fyrsta sinn auglýst eftir um-
sóknum í meistaranám í reikningshaldi
og endurskoðun við viðskipta-og hag-
fræðideild HÍ og var hópurinn sem
sótti um nám á því sviði fjölmennastur
allra. Því námi lýkur með MAcc gráðu.
Aðsókn í hinar ýmsu línur í MS námi
var einnig mjög góð og meiri en áður
hefur sést í flestum tilfellum. Þær eru
fjármál, hagfræði, heilsuhagfræði,
markaðsfræði og alþjóðaviðskipti og
stjórnun og stefnumótun. Um MA nám
í mannauðsstjórnun sóttu tæplega 60
manns.
Deildin mun í haust bjóða upp á nýja
námsleið í grunnnámi, viðskiptafræði
með áherslu á upplýsingatækni, BS-U.
Markmiðið með því námi er að útskrifa
viðskiptafræðinga með góða þekkingu
á hönnun, greiningu og stjórnun upp-
lýsingakerfa. Línan er kennd í samstarfi
við tölvunarfræðiskor.
Boðið verður upp á nýtt nám við Háskóla Íslands í haust í viðskiptafræði með
áherslu á upplýsingatækni.
Fjöldinn sló öll fyrri met
UMSÓKNIR Í MEISTARANÁM Í VIÐSKIPTA-OG HAGFRÆÐIDEILD HÁSKÓLA
ÍSLANDS ERU Á FJÓRÐA HUNDRAÐ OG SLÓ FJÖLDINN ÖLL FYRRI MET.
Jóhannes var valinn úr hópi þrettán umsækjenda
um stöðuna og tekur við henni 1. ágúst. Hann hef-
ur um árabil rekið arkitektastofuna Glámu Kím. Þar
hefur hann unnið að fjölda metnaðarfullra verkefna
á sviði arkitektúrs og skipulags ásamt félögum sín-
um og átt hlut að fjölmörgum byggingum fyrir ein-
staklinga, fyrirtæki og stofnanir. Hann hefur líka
unnið náið með listamönnum við útfærslu verka
þeirra við opinberar byggingar. Jóhannes hefur ver-
ið aðstoðarkennari við Listaháskólann en tekur við
deildarforsetaembættinu af Halldóri Gíslasyni sem
heldur til starfa í Noregi.
Jóhannes Þórðarson arkitekt
Sest í stól deildarforseta
NÝR FORSETI HÖNNUNAR-OG ARKITEKTÚRDEILDAR HEFUR VERIÐ RÁÐINN Í
LISTAHÁSKÓLANN. SÁ ER JÓHANNES ÞÓRÐARSON ARKITEKT.