Fréttablaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 64
ARNA FREMUR GJÖRNING SINN Arna Valsdóttir sýnir myndlistargjörning á Björtum dögum í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld.
Myndlistargjörningur
Örnu Valsdóttur er verk
sem er í stöðugri þróun.
Hún hefur sýnt þennan
gjörning víða og nú er
röðin komin að Björtum
dögum í Hafnarfirði.
Arna Valsdóttir flutti í gærkvöld
myndlistargjörning sinn „Ég er
ögn í lífrænni kviksjá“ í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu og ætlar að
endurtaka leikinn í kvöld. Sýn-
ingin er liður í dagskrá Bjartra
daga, sem er lista- og menningar-
hátíð Hafnarfjarðar.
Arna segir gjörninginn vera
„tilraun til þess að komast inn í
kviksjána og gera mannslík-
amann að örðunni sem breytir
þeirri mynd sem við sjáum. Kvik-
sjáin heillaði mig sem barn og
heillar mig sem fullorðið barn.
Hún virkjar ákveðið kaos og tek-
ur agnir tilverunnar úr samhengi
en skapar á sama tíma sérkenni-
lega rökrétt samhengi og kyrrð“.
Verkið er gagnvirk leikmynd
sem byggir á samspili ljóss og
skugga, hreyfingar, litar og
hljóðs. Hún segir rýmið vera
myndflötinn sem hún vinnur með
og síðan dregur hún myndina
fram með því að leika sér með þá
möguleika sem bjóðast á hverj-
um stað. Áhorfandinn gengur síð-
an inn í verkið, getur haft áhrif á
það og leikið sér með eigin skynj-
anir.
Arna segir sýninguna í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu vera hluta af
langtímaverkefni. „Ég ferðast á
milli staða og set verkið upp í
mismunandi rýmum. Það tekur
lit og lögun af því rými sem það
mætir, það þróast og breytir um
form og í raun veit ég aldrei hver
útkoman verður fyrr en á reynir.“
Verkið hefur hún meðal ann-
ars sett upp á Vísindadegi Há-
skólans á Akureyri, á samnor-
rænni ráðstefnu leikskólakenn-
ara á Akureyri, í Ketilhúsinu á
Akureyri, í Nýlistasafninu, og nú
síðast í Garðskagavita. ■
24 8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
EKKI MISSA AF…
„Við erum að spinna út frá barnalögum,“ segir
Antonia Hevesi organisti um tónleika í Hafnar-
fjarðarkirkju í kvöld. Hún hefur fengið til liðs
við sig Samúel Samúelsson básúnuleikara,
Samma í Jagúar, og saman ætla þau að flytja
nokkur alþekkt barnalög í nánast óþekkjanleg-
um búningi.
„Það verður ekki auðvelt að þekkja öll lögin.
Samt verður þetta ekkert djassað, heldur frek-
ar þjóðlegt eða klassískt sem hæfir þessum
barnalögum. Við verðum í hefðbundnum tón-
tegundum en leikum okkur að þessu.“
Til gamans ætla þau að dreifa til áheyrenda
blaði þar sem nöfnin á lögunum eru skrifuð,
en þó ekki í þeirri röð sem þau eru flutt.
Áheyrendur geta spreytt sig á að merkja við
hvert lag sem þau þekkja.
„Ég hafði nú reyndar ekkert hugsað út í það,“
sagði Antonia þegar hún var spurð hvort þeir
sem gætu þekkt öll lögin fengju einhver verð-
laun.
Tónleikarnir eru liður í dagskrá Bjartra daga í
Hafnarfirði og hefjast klukkan 20 í kvöld.
Kl. 19.30
Bókakvöld verður haldið á Björtum dögum
í Gamla bókasafninu í Hafnarfirði. Rithöf-
undarnir Andri Snær Magnason og Einar
Kárason lesa upp úr verkum sínum.
menning@frettabladid.is
Leika sér að barnalögum
Kviksjáin heillar Örnu
!
... dansleikhúskeppni á stóra
sviði Borgarleikhússins annað
kvöld þar sem níu verk fyrir leik-
ara og dansara, hvert um sig 10
mínútur að lengd, keppa til sig-
urs.
... fyrstu Þingvallagöngu sum-
arsins, sem farin verður annað
kvöld. Árni Hjartarson jarðfræð-
ingur ætlar að fjalla um jarðfræði
Þingvalla meðan gengið er um
svæðið.
... Kórastefnunni við Mývatn
núna um helgina, þar sem fjórir
kórar auk 50 söngvara úr öðrum
kórum halda tónleika á fimmtu-
dag, föstudag og sunnudag. Há-
punkturinn verður flutningur á
óratóríunni Messías eftir Händel á
sunnudaginn.
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17 UPPS,
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPS.,
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20,
Mi 15/6 kl 20,
Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TÍMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi
við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,-
Einstakur viðburður
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Fi 9/6 kl 20 - UPPS., Fö 10/6 kl 20
Lau 11/6 kl 20, Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20
Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!!!
Aðeins 2 sýningarhelgar eftir
Missið ekki af einleik Eddu Björgvins
í Borgarleikhúsinu • Sími 588 8000