Fréttablaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 20
Ferðatöskur
Á ferðalögum getur komið sér vel að vera með áberandi ferðatösku í skærum litum. Ef
ferðataskan sker sig úr ertu fljótari að þekkja hana á færibandinu og þarft heldur ekki að
hafa áhyggjur af því að einhver annar taki hana í misgripum. [ ]
Í félagsskap fákanna í Mosfellsbæ
Hestamenn verja mörgum
stundum í reiðtúra og hesta-
stúss á vorin. Við kíktum í
heimsókn á félagssvæði Harð-
ar í Mosfellsbæ.
Reiðleiðirnar liggja víða í Mosfells-
bænum. Góður hringur er í grennd
við flugvöllinn og út að Blikastöðum
er gatan greið. Leirurnar eru líka
vinsælar til útreiða og þar er oft
skellt á skeið. Svo er undirgangur
undir Vesturlandsveginn og þaðan
liggur leiðin upp í Mosfellsdal. Þar
er hægt að fara ýmsar götur, ein
þeirra liggur um Skammadalinn og
Álafosskvosina heim. Þetta er frá-
bær staður fyrir hestafólk.
Jónas Ágústsson er að koma með
hestinn sinn Vallar frá dýralæknin-
um. Vallar er frá Vallanesi í Skaga-
firði og er annar tveggja hesta
Jónasar. „Svo á dóttir mín einn líka.
Hún leiddi mig út í þetta því hún var
komin í hestamennskuna á undan
mér,“ segir hann. Hann kveðst hafa
byrjað á að moka undan hennar
hesti og séð svo að hann gæti alveg
eins farið að ríða út og hafa eitthvað
gaman af þessu! „Ég hafði ekki ver-
ið innan um hesta frá því ég var
strákur í sveit um fermingaraldur-
inn,“ segir hann.
Jónas segir ótrúlega mikið stúss
í kringum hestana og því fylgja
ýmsar áskoranir. „Við höfum hross-
in í hagagöngu norður í Húnavatns-
sýslu og fyrsta vorið sem ég átti
hesta ákvað ég að ríða norður. Ég
taldi að það væri tiltölulega létt
fyrst allir aðrir gætu þetta en það
var meira mál en ég hélt.“ ■
Vika á Spáni
hertzerlendis@hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
77
07
03
/2
00
5 11.900
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.
*
Fiat Punto eða sambærilegur
Miklar endurbætur voru gerðar ný-
verið á Fosshóteli í Reykholti og
opnaði það nýverið sem fyrsta
menningartengda hótelið á Íslandi.
„Við erum með þríþætt þema í
gangi á hótelinu sem skiptist í
norræna goðafræði, íslenskar bók-
menntir og klassíska tónlist,“ segir
Einar Valur Þorvarðarson hótel-
stjóri.
„Húsinu er til að mynda skipt upp í
níu heima eins og í goðafræðinni
og á hverjum gangi er sýning af
einhverju tagi um rúnir og bók-
menntir eða goðin svo dæmi séu
tekin,“ segir,“ segir Einar Valur.
Veitingstaðurinn er miðpunktur
hótelsins og þar hefur verið útbúin
tunglstofa sem er koníaksstofa „Við
gerðum einnig Hringadróttinssögu-
herbergi sem er sjónvarpsstofa, en
sú saga tengist norrænu goðafræð-
inni mikið,“ segir Einar Valur. Hann
segir að öllu hafi verið skipt út við
endurbæturnar á hótelinu og nú
séu ný 34 herbergi á hótelinu með
baði.
„Auk menningarinnar erum við að
leggja áherslu á þægindi og því
höfum við sett baðker inn á her-
bergin svo gestirnir geti slappað
vel af,“ segir Einar Valur.
Sigurður er upprennandi hestamaður á þrettánda ári sem ver mörgum stundum í að
snúast kring um hestana með pabba sínum, Elíasi Þórhallssyni sem er tamningamaður.
Hér nær hann í stóðhestinn Klerk frá Votmúla sem er stólpagripur undan Örvari frá
Garðabæ og Sunnu frá Votmúla.
Jónas Ágústsson var að koma með hestinn
sinn Vallar úr skaufahreinsun hjá dýralækn-
inum. Á myndinni til hægri er Andrea að
gefa vini sínum gott í gogginn. Hann bregst
glaður við enda heitir hann Glaður.
Sjónvarpsstofan er í anda Hringadróttinssögu
FOSSHÓTEL Í REYKHOLTI ER FYRSTA MENNINGARTENGDA HÓTELIÐ Á ÍSLANDI EN ÞAÐ VAR OPNAÐ NÝVERIÐ EFTIR
MIKLAR ENDURBÆTUR. Á HÓTELINU ERU 34 HERBERGI.
Fosshótel í Reykholti er menningartengt
hótel.