Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 30

Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN6 Ú T L Ö N D Þórlindur Kjartansson skrifar Óttinn við efnahagsveldi Kína verður sífellt meira áberandi enda virðast kínverskar verksmiðjur geta framleitt gæðavörur í næstum hvaða vöruflokki sem er á miklu lægra verði en Vesturlönd geta keppt við. Næsta áhyggjuefni þeirra sem óttast samkeppni við Kína er að næsti stóriðnaðurinn sem muni lúta í lægra haldi fyrir kínverskri framleiðslu sé bílaiðn- aðurinn. Bílafyrirtækin í Evrópu og Bandaríkjunum eiga ekki sjö dagana sæla um þessar mundir enda vex kostnaður við framleiðsluna stöðugt og sam- keppnin frá öflugum fyrirtækjum í Asíu verður stöðugt þungbærari. Nokkur kínversk fyrirtæki hafa á síðustu árum unnið ötullega að vöruþróun og stefna að því að koma vörum sínum á markaði í Evrópu og Banda- ríkjunum á næstu árum. Kínverska ríkisstjórnin hefur fjárfest fyrir tugi milljarða í uppbyggingu svæðis fyrir utan Sjanghæ þar sem unnið er að rannsóknum, þróun og framleiðslu á bílum. Tals- maður yfirvalda sagði í viðtali við The Economist fyrir skemmstu: „Við höfum byggt þetta upp á þremur árum en það tók hundrað ár að byggja Detroit,“ og vísar til höfuðborgar bandaríska bíla- iðnaðarins þar sem höfuðstöðvar General Motors og Ford er að finna. Ljóst er að mikill stórhugur er að baki hugmynd- um Kínverja um þátttöku í alþjóðlegum bílaiðnaði og er markaðssetning í Mið-Austurlöndum komin ágætlega af stað. Kínversku fyrirtækin líta á það sem prófraun fyrir vöruna áður en markaðssetning í Evrópu og Bandaríkjunum hefst fyrir alvöru. Ljóst er að kínversku framleiðendurnir geta boð- ið miklum mun ódýrari bíla en aðrir. Smábíllinn Chery QQ mini kostar til að mynda aðeins um 3.500 Bandaríkjadali – sem samsvarar um 230 þúsund ís- lenskum krónum. Reyndar telja forsvarsmenn í evr- ópskum og bandarískum bílaiðnaði að kínverskir keppinautar þeirra fari heldur frjálslega með höf- undarrétt og einkaleyfi og að hönnuninni sé beinlín- is stolið. Þá vilja forsvarsmenn General Motors fá úr því skorið fyrir bandarískum dómstólum hvort vöruheitið Chery sé of líkt Chevy. Sumir telja þó að hættan sem öðrum bílafram- leiðendum stafi af þeim kínversku kunni að vera of- metin þar sem reynslan sýni að mjög langan tíma taki að vinna næga tiltrú markaðarins til að öðlast verulega hlutdeild. Eins fer neikvæð umræða í garð kínverskra framleiðenda vaxandi og það kann ein- nig að draga úr möguleikum þeirra til áframhald- andi landvinninga. Heimildir: Financial Times, The Economist Danska leikfangafyrirtækið Lego hefur tilkynnt að það hygg- ist selja skemmtigarðana fjóra sem eru í eigu fyrirtækisins, Legolöndin. Lego hefur rekið skemmtigarða í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Englandi og Dan- mörku. Á síðasta ári var Lego rekið með 20 milljarða króna tapi og var það aðeins í fjórða skipti í sögu fyrirtækisins sem það skil- ar ekki hagnaði. Lego hefur á undanförnum árum reynt að færa út kvíarnar og bætt mörgum vöruflokkum, til að mynda útilegubúnaði, tölvuleikjum og skófatnaði, við hina hefðbundnu Lego-kubba. Hafa þessar tilraunir að mestu mistekist. Stjórnendur fyrirtækisins vona að með sölu skemmtigarð- ana losni um fé sem síðan eigi að nota til leikfangafram- leiðslu. - jsk Rambo snýr aftur Kvikmyndafyrirtækið Miramax hefur selt Nu Image-réttinn til að gera framhaldsmynd um John Rambo, sem Sylvester Stallone lék svo eftirminnilega um árið. Miklar lagadeilur hafa orðið um framleiðslurétt- inn og sagðist Avi Lerner, forstjóri Nu Image, vera gríðarlega ánægður með að sættir skuli hafa náðst í málinu og hyggst fyrirtækið hefja tökur fljótlega: „Ef fjórða myndin gengur vel lofa ég því að við framleiðum númer fimm og sex. Rambo er alger gullnáma.“ Stallone sjálfur hafði þetta um málið að segja: „Ég er búinn að skrifa undir og hef tekið aftur fram höfuðklútinn, vélbyssuna og lásbogann. John Rambo hefur engu gleymt.“ - jsk Þann 8. júní 1949 kom út bókin 1984 eftir George Orwell. Hún seldist strax vel og er almennt álitin einhver áhrifamesta bók tuttugustu aldarinnar. 1984 fjallar um heldur óhuggulegt framtíðarríki þar sem ríkisvaldið hefur heljartök á einstakling- unum og hefur uppi umfangsmikla blekkingar- starfsemi til þess að halda almenningi í skefjum. Aðalsöguhetjan starfar hjá sannleiksráðuneytinu við að falsa sögulegar heimildir svo þær passi við þann áróður sem stjórnvöld hafa í frammi. Bókin lýsir ákaflega óaðlaðandi framtíðarsýn sem litast af aðstæðum í Bretlandi á árunum eftir Síðari heimsstyrjöldina þar sem allar lífsnauðsynj- ar voru skammtaðar og Bretar misstu stjórn á heimsveldi sínu þótt stjórnvöld gerðu hvað þau gætu til að halda því fram að ósigrar heimsveldis- ins væru í rauninni sigrar. Framtíðarsýn Orwells fól meðal annars í sér að til- raun væri gerð til að heila- þvo fólk með því að breyta tungumálinu. Tungumálið „Newspeak“ – eða nýtal – er flatneskjulegt stofnanamál þar sem blæbrigði og til- finningar víkja fyrir ill- skiljanlegu og þversagna- kenndu blaðri. Með framförum í upp- lýsingatækni og möguleik- um til misnotkunar hennar hafa ýmis hugtök úr 1984 orðið hluti af daglegum orðaforða. Hugtakið „Stóri bróðir“ sem táknar hið alsjáandi auga ríkisvalds- ins er komið úr bókinni og vísa stuðningsmenn per- sónuverndar mjög gjarnan til bókarinnar í mál- flutningi sínum. - þk S Ö G U H O R N I Ð 1984 kemur fyrst út radissonsas.com * Yes I Can! er skrásett þjónustuhugtak Radisson SAS hótela. Það mótar grunninn að stefnu okkar. Radisson SAS 1919 hótel Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík, sími 599 1000, fax 599 1001, netfang info.1919.reykjavik@radissonsas.com Ég sef alltaf er *já þar sem sagt Við tökum vel á móti þér á Radisson SAS 1919 hóteli, Reykjavík Brown vill hjálpa Afríku Breski fjármálaráðherrann fer fram á aukna þróunaraðstoð. Vestrænir bílaframleiðendur sjá fram á erfiða samkeppni ef kínverski bílaiðnaðurinn kemst á flug. Ódýrustu bílarnir kosta undir 300 þúsund krónum en þó verður ekki vand- ræðalaust fyrir Kínverja að vinna sér markaðshlutdeild á stærstu markaðssvæðum heims. NÝ AFURÐ ÚR KÍNVERSKA BÍLAIÐNAÐINUM Kínverskar sýn- ingarstúlkur við nýjasta Chery-bílinn, sem kynntur var á bílasýningu fyrir skemmstu. Framleiðslukostnaður kínverskra bíla er miklu lægri en bandarískra og evrópskra. Bílabylting að hefjast í Kína Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting miðill gjaldmiðils) BTC Búlgaría 391,20 Lev 40,39 -2,8% Carnegie Svíþjóð 78,50 SEK 8,67 0,6% deCode Bandaríkin 7,88 USD 64,58 7,8% EasyJet Bretland 2,27 Pund 117,56 -2,7% Finnair Finnland 6,88 EUR 79,21 -3,4% French Connection Bretland 2,72 Pund 117,56 -2,3% Intrum Justitia Svíþjóð 49,70 SEK 8,67 -6,5% Low & Bonar Bretland 1,10 Pund 117,56 -3,0% NWF Bretland 5,85 Pund 117,56 1,4% Scribona Svíþjóð 14,10 SEK 8,67 -2,6% Singer & Friedlander Bretland 3,13 Pund 117,56 -0,9% Skandia Svíþjóð 41,30 SEK 8,67 -2,4% Somerfield Bretland 1,98 Pund 117,56 -0,5% Miðað við gengi bréfa og gjaldmiða 7.júní 2005 Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 7 , 8 8 - 0 , 9 % Breski fjármálaráðherrann Gor- don Brown hefur skorað á olíu- framleiðslulönd að nota ríki- dæmi sitt til hjálpar Afríkulönd- um. Brown mun á næstu dögum fara á fund með öðrum evrópsk- um fjármálaráðherrum og hyg- gst hann nota tækifærið og fara fram á stuðning starfsbræðra sinna: ,,Ég vona að þau lönd sem auðgast hafa á hækkun olíuverðs sjái sér fært að auka framlag sitt til þróunarmála,“ sagði Brown. Brown og forsætis- ráðherrann, Tony Blair, hafa lagt fram tillögur þess efnis að fram- lag til þróunarmála verði tvöfald- að, og viðskiptahindrunum gagn- vart Afríkuríkjum aflétt. Einnig vilja þeir félagar að ríkari lönd sleppi að innheimta skuldir Afríkuríkja. Brown sagð- ist hafa fulla trú á því að tillög- urnar fengjust samþykktar, sér- staklega þar sem þær nytu stuðn- ings Bandaríkjastjórnar. - jsk Nýr forstjóri Orkla Orkla, sem rekur meðal annars Elkem, móðurfélag Íslenska járnblendifélagsins, hefur skipt um forstjóra. Nýi stjórinn heitir Dag J. Opedal og gegnir hann jafnframt stöðu stjórnarfor- manns. Talið er að Dag fái um fjörutíu milljónir í árslaun. Orkla er risafyrirtæki á norskan mælikvarða og teygir anga sína allt frá matvælafram- leiðslu og fjölmiðlarekstri til fjármálastarfsemi. Markaðsvirði samsteypunnar er 480 milljarðar króna og eru starfsmenn sam- steypunnar um 20.000. - eþa SYLVESTER STALLONE Í HLUTVERKI RAMBOS Sly segist hafa tekið aftur fram höfuðklútinn, vélbyss- una og lásbogann. John Rambo hafi engu gleymt. GORDON BROWN OG TONY BLAIR Vilja stórauka framlag ríkari þjóða til þróunarmála. Lego í vanda LEGOLAND Lego hefur nú tilkynnt að það hyggist selja þá fjóra skemmtigarða sem það hefur rekið. Fr ét ta bl að ið /N or di c Ph ot os /A FP Fr ét ta bl að ið /N or di c Ph ot os /A FP JOHN HURT Í 1984 Win- ston Smith er söguhetjan í skáldsögunni. Ljósmynd úr bíómynd sem gerð var eftir bókinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.