Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 32

Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 32
Sífellt fleiri spila nú póker á net- inu. Nú er svo komið að í Bret- landi hafa tvö fyrirtæki sem sér- hæfa sig í póker-keppnum á net- inu, Party Gaming og Empire On- line, í hyggju að skrá sig á hluta- bréfamarkað. Umfang heimsmarkaðarins hefur þrefaldast á tveimur árum og talið er að hlutabréf í Party Gaming einu og sér muni seljast fyrir 600 milljarða króna, sem gerir fyrirtækið stærra en breska flugfélagið British Airways. Ástæðan fyrir auknum vin- sældum pókerkeppna á netinu er talin tvíþætt: í fyrsta lagi þurfi hæfileika til að njóta velgengni í póker, öfugt við margar tegundir fjárhættuspila þar sem heppni ræður mestu. Í öðru lagi sé fólk farið að treysta netinu og hiki ekki lengur við að gefa upp kortanúmer og aðrar persónu- upplýsingar. Ekki spilli svo fyrir að fjár- hættuspil séu í tísku og spilavíti spretti upp eins og gorkúlur víða um heim. Þeir eru þó til sem hafa áhyggjur af þessari þróun. Nú þurfi ekki lengur að klæða sig í smóking, gera sér ferð í spilavíti og fá sér martini til að spila held- ur geti menn einfaldlega sest fyrir framan tölvuna á baðsloppnum. Sálfræðingurinn Adrian Scarfe, sem sérhæfir sig í með- ferð spilasjúklinga, hefur miklar áhyggjur af þessu: ,,Nú er fíknin vandamál allan sólarhringinn. Fólk verður háð bæði spilunum og netinu“. Verðbréfamiðlarinn Paul gefur þó ekki mikið fyrir áhyggj- ur Scarfes: ,,Þetta er ekkert stressandi. Það skaðar engan að skemmta sér aðeins. Mér finnst þetta raunar mjög róandi eftir erfiðan vinnudag“. - jsk MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN8 NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI Menn eru ekki á eitt sáttir um þá ákvörðun hinnar alþjóðlegu ICANN-stofnunar, sem sér um úthlutun léna á internetinu, að leyfa klámsíðum að notast við endinguna xxx. Icann samþykkti umsókn lénsölufyrir- tækisins ICM um að hefja sölu á vefsíðum með endinguna og munu þær vera falar á tæpar 4 þúsund íslenskar krónur. Talsmaður ICM sagðist í yfirlýsingu telja ákvörðun ICANN byggða á mál- efnalegum rökum: „Nú munu börn ekki geta heimsótt klámsíður í jafn miklum mæli án þess að það komist upp“. Tekjur klámiðnaðarins námu á síðasta ári 800 milljörðum króna. Icann hafði áður hafnað umsókn sama efnis frá ICM árið 2000 en eitthvað virðist hafa breyst síðan þá. Karl Auerbach, fyrrum stjórnarmeðlimur ICANN, sagði hins vegar ákvörðunina fárán- lega: „Mig grunar að þarna ráði peningar för. Stofnunin hefur áður hafnað umsóknum frá skólum, trúfélögum og sam- tökum listamanna um eigin endingar. Þetta er stórfurðulegt“. Talið er að hægrisinn- aðir trúflokkar í Banda- ríkjunum muni krefjast þess að klámsíður verði skyldaðar til að taka upp endinguna. Erfitt gæti hins vegar reynst að rétt- læta slíkt lagalega. Bjarni Rúnar Einarsson netverji hafði þetta um málið að segja: „Margir telja auðvelt aðgengi að klámi vera eitt stærsta vandamálið sem fylgir net- inu. Þetta gæti auðveldað fólki að sía slíkt efni út. Hins vegar er gallinn sá að ekki er hægt að skylda klámvefi til að taka endinguna upp“. Arthur Ólafs- son, vefstjóri www.b2.is, sagði síðuna ekki hafa í hyggju að taka upp endinguna xxx enda liti hann ekki á b2 sem klám- síðu: „Ég held að það muni nú ekki ganga að koma þessu öllu svona undir einn hatt. Síður með endingunni eru dýrari auk þess sem auðveldara á að vera að hindra að- gang að þeim. Maður skilur ekki alveg hver hvat- inn á að vera“. jsk@frettabladid.is JENNA JAMESON KLÁMMYNDASTJARNA Fólk segir hvatann vanta fyrir klámsíður til að taka upp endinguna xxx. Síður með ending- unni eru dýrari auk þess sem auðveldara er að hindra aðgang að þeim. Sífellt fleiri spila netpóker Fyrirtæki sem sérhæfir sig í pókerkeppnum á netinu er stærra en British Airways. Vísindamenn hafa náð að einangra DNA-erfðaefni úr tönn bjarndýrs sem dó út fyrir 40 þúsund árum og vonast til að endurlífga björninn. Björninn var eitt sinn útbreiddur í Evrópu og lifði einkum þar sem nú er Austurríki. Hann hafðist við í hellum, en dó út við lok ísaldar. Segja vísindamennirnir að næst sé á dagskrá að einangra erfðaefni úr forföður mannsins, Neanderdalsmanninum. Vona vísinda- mennirnir að einhvern daginn muni Neanderdalsmaður aftur ganga um á jörð- inni: „Þetta er bara tímaspursmál. Ég held að okk- ur muni takast það,“ sagði dr. Eddy Rubin, sem haft hefur yfirumsjón með rannsóknum. Rubin sagði hins vegar með öllu ómögu- legt að einangra erfðaefni úr risaeðlum, til þess væri einfaldlega of langt síðan þær dóu út: „Jurassic Park var bara vísinda- skáldskapur og verður aldrei að veru- leika“. - jsk NEANDERDALS- MAÐURINN Vísindamenn hafa einangrað erfðaefni úr bjarndýri sem dó út fyrir 40 þúsund árum. Þeir segja Neanderdalsmanninn næstan. Ætla að endurlífga björn Vísindamenn segja ekki ómögulegt að Neander- dalsmenn gangi aftur um jörðina. Bin Laden ekki hand- samaður Yfirvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi hafa varað tölvunot- endur við að opna dreifipóst sem segir hryðjuverkahöfðingjann Osama bin Laden hafa verið handsamaðan. Pósturinn inniheldur vírus sem veldur því að Windows-stýri- kerfið hrynur. Segir í póstinum að bin Laden hafi verið handtek- inn fyrir nokkrum mínútum og að sjónvarpsstöðvar á borð við BBC og CNN muni innan skamms flytja fréttina. James Kay, yfirmaður breska fyrirtækisins Blackspider, sem sérhæfir sig í vírusvörnum, segir starfsmenn sína hafa stöðvað meira en milljón tölvuskeyti sem segi frá handtöku bin Ladens. - jsk OSAMA BIN LADEN Tölvupóstur sem sagði frá handtöku hans reyndist innihalda tölvuvírus. SEAN CONNERY Í HLUTVERKI JAMES BOND Bond þarf ekki lengur að klæða sig upp til að fara í póker. Hann getur einfaldlega sest fyrir framan tölvuna á nærklæðum einum fata. Ágreiningur um xxx-endingar Ekki er hægt að skylda klámsíður til að taka sér endinguna xxx. Enginn hvati er fyrir hendi. Vefsíða breska þingsins er úrelt og óaðgengileg, samkvæmt skýrslu bresku lýðræðissamtak- anna Hansard Society. Segir í skýrslunni að ný og betri vefsíða yrði fyrsta skrefið í átt að betri samskiptum þingsins við al- menning. ,,Síðan er eins og skjalasafn frá miðöldum. Það er erfitt að vafra, engin tækifæri eru til skoðanaskipta og leitarvél síð- unnar er handónýt,“ sagði Gemma Rosen- blatt, talsmaður Hansard Society, og bætti við: ,,Vef- síða þingsins ætti að vera sniðin að þörfum almenn- ings, ekki þing- manna.“ - jsk Þingmenn á netinu BRESKA ÞINGHÚSIÐ Lýðræðissamtök segja vef- síðu breska þingsins úrelta og óaðgengilega.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.