Fréttablaðið - 08.06.2005, Side 38
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Kristján Arason, handbolta-
kempa og framkvæmdastjóri
einkabankaþjónustu KB banka,
segir besta ráð sem hann hafi
fengið að klára háskólanám
áður en hann hélt í atvinnu-
mennsku: ,,Mig langaði nú
strax út til Þýskalands að spila
en mamma sagði mér að klára
háskólann fyrst,“ segir hann
eftir örlítinn umhugsunarfrest.
Kristján segir þetta hafa
auðveldað honum lífið eftir að
hann sneri aftur heim úr at-
vinnumennskunni: ,,Ég gat val-
ið úr störfum í stað þess að
þurfa að setjast aftur á skóla-
bekk.“
Kristján; sem spilaði með
FH á Íslandi, Hameln og Gum-
mersbach í Þýskalandi, Teka
Santander á Spáni og er marka-
hæsti leikmaður Íslands frá
upphafi, segist ekki hafa verið
ánægður þegar móðir hans
lagði þetta fyrst til en hafi síð-
an tekið sönsum. Hann hvetur
fólk til að hlýða mæðrum sín-
um: ,,Mamma er alltaf best,“
segir Kristján. - jsk
B E S T A R Á Ð I Ð
Næstkomandi föstudag opnar Radisson SAS
1919 Hotel í gamla Eimskipahúsinu. Eigandi
þess er ferðamálafrömuðurinn Andri Már
Ingólfsson, hjá Heimsferðum, en hann eign-
aðist húsið á síðasta ári. Auk þess festi hann
kaup á nærliggjandi byggingu, Gjaldheimtu-
húsinu við Tryggvagötu 28. Heildarflatarmál
hótelsins er um fimm þúsund fermetrar.
Hótelið er fjögurra stjör-
nu lúxushótel með 70
herbergjum, þar af
eru 24 Standard her-
bergi, 28 Deluxe,
sextán Junior-svítur
og tvær lúxussvítur.
Staðsetningin gerist vart betri;
hótelið er í miðri Reykjavík. Það verður rek-
ið innan Radisson SAS hótelkeðjunnar sem
hefur einnig Hótel Sögu vinnan sinna vé-
banda ásamt Park Inn Ísland, fyrrum Radis-
son SAS Ísland Hotel. Hin norska Nina Thom-
assen er hótelstjóri Radisson SAS 1919 Hotel.
Hún hefur starfað hjá keðjunni samfellt í
átján ár.
ALLT FYRIR GESTINN
Gréta Björg Blængsdóttir, sölustjóri hótels-
ins, er ein af þeim sem leggja hart að sér dag
sem nótt við að opna hótelið á tilsettum tíma.
Iðnaðarmenn, ásamt starfsfólki hótelsins,
vinna nótt sem dag við að setja upp innrétt-
ingar, hengja upp gardínur, bera inn húsgögn,
þrífa svo eitthvað sé nefnt. En vert er að
nefna að mikið er lagt í öll húsgögn og muni
sem er öll sérinnflutt frá Ítalíu, Spáni, Aust-
urríki, Svíþjóð, Bretlandi, Finnlandi svo eitt-
hvað sé nefnt.
„Við erum að byggja upp fyrsta flokks hót-
el með persónulegri og faglegri þjónustu,“
segir Gréta Björg. Radisson SAS-keðjan legg-
ur mikla áherslu á að starfsfólk veiti per-
sónulega þjónustu við viðskiptavininn en sé
samt fagmennskan uppmáluð. „Þjónustuhug-
tak keðjunnar er: „Yes, I can!“ en í þessum
orðum felst ákveðin skuldbinding fyrir okkur
starfsfólkið, alveg frá toppi og niður úr.
Starfsfólkið er þjálfað í samræmi við hugtak-
ið og þegar á hólminn er komið er ekkert
vandamál of stórt að ekki sé hægt að leysa
það,“ segir hún.
Annað móttó hjá keðjunni er hugtakið
„fresh, host and easy“ og gefur til kynna að
það sé auðvelt að eiga viðskipti við Radisson
SAS-keðjuna og hótelin í heild
sinni. „Það er ekkert
þunglamalegt yfir
okkur hér á Radisson
SAS 1919 Hotel. Hér
er gestrisni ávallt til
staðar og við viljum um-
fram allt gera vel við okkar
gesti. Ef eitthvað er að, þá björgum við því án
málalenginga. Við viljum að gestir okkar
kunni að meta andrúmsloftið, starfsfólkið og
alla umgjörðina þannig að þeim líði eins og
þeir séu heima hjá sér og vilji koma aftur til
okkar. Starfsfólkið á að vera vinalegt, glað-
legt en samt látlaust í umgengni við gesti
okkar,“ bætir hún við.
STYRKUR Í MERKINU
Gréta Björg hefur heimsótt fyrirtæki og
ferðaskrifstofur, kynnt hótelið og þá þjón-
ustu sem verður í boði. Hún segir að vel
gangi að bóka og viðtökur og fyrirspurnir
frá fyrirtækjum hafi verið miklar og góðar.
Radisson SAS 1919 Hotel höfðar til fyrir-
tækja af öllum stærðum og gerðum, sem
taki á móti erlendum gestum allan ársins
hring.
Hún segir að mörgum finnist vera kom-
inn tími til að fá nútímalegt lúxushótel sem
býður upp á þann möguleika fyrir athafna-
fólk sem stoppar stutt, vill vera miðsvæðis
og fá toppþjónustu. Gréta Björg er fús til að
viðurkenna að samkeppni milli hótela í
Reykjavík er hörð og ekkert gefið eftir.
„Styrkur hótelsins liggur meðal annars í því
að vera innan Radisson SAS-keðjunnar sem
er vel þekkt í Evrópu og einkum á Norður-
löndunum. Það hjálpar auðvitað líka til að
mjög margir þekkja til Eimskipahússins, er-
lendis sem hérlendis.“
Aðspurð um verðið segir Gréta Björg að
hótelið bjóði upp á fullkomlega samkeppnis-
hæft verð.
EINNIG FYRIR ÍSLENDINGA
Það kemur skemmtilega á óvart hversu vel
húsið hentar fyrir hótelrekstur. Herbergi
sem höfðu verið notuð undir skrifstofur eru
af æskilegri stærð sem hótelherbergi og
lofthæð er mikil.
Eitt af sérkennum hótelsins er greiður að-
gangur að því. Gestir geta gengið inn frá að-
alinnganginum Hafnarstrætismegin,
Tryggvagötu og Pósthússtræti. Ef gengið er
inn frá Pósthússtræti er komið inn á veit-
ingastaðinn Salt, sem tekur um 65 manns í
sæti, og bætist við í flóru veitingastaða í
miðbænum. Jafnframt er rekinn bar undir
heiti Salts. Ragnar Ómarsson matreiðslu-
meistari mun ráða ríkjum í sérhönnuðu opnu
eldhúsi sem er sett upp samkvæmt ströng-
ustu kröfum meistara frá Radisson SAS-
keðjunni. Rekstraraðilar hótelsins ætla að
beina sjónum sínum að íslenskum gestum og
leggja áherslu á að staðurinn sé ekki ein-
göngu fyrir viðskiptavini hótelsins.
Hverjar eru horfurnar í ferðaþjónustu?
„Við erum náttúrlega bjartsýn, annars vær-
um við ekki að þessu,“ svarar hún hlæjandi.
Ferðamönnum fjölgar á Íslandi með hverju
árinu en því má ekki gleyma að landið er í
harðri samkeppni við önnur lönd eins og
Norðurlöndin ásamt Austur-Evrópulöndun-
um, sem eru nánast eins og óplægður akur.
Ferðamenn sem koma til landsins vilja ferð-
ast til staða sem eru enn tiltölulega ókannað-
ir en gera samt kröfur um þægindi. Gréta
Björg telur að gæðaþjónusta við gestina geti
skipt sköpum. „Við Íslendingar höfum ekki
alltaf verið talin þjónustuglöð en nú verðum
við heldur betur að bretta upp ermarnar ef
við ætlum að standast samkeppnina.“
Radisson SAS 1919 Hotel
Hótelstjóri: Nina Thomassen
Fjöldi herbergja: 70
Starfsmenn: Um 70
Lúxushótel opnar í miðbænum
Radisson SAS 1919 opnar með pompi og prakt í Eimskipahúsinu á föstudaginn.
Þetta er eitt glæsilegasta hótel landsins og verður engu til sparað. Svíturnar
eru fleiri en hefðbundnu herbergin. Eggert Þór Aðalsteinsson bað Grétu Björgu
Blængsdóttur sölustjóra um að segja frá nýja hótelinu og sérstöðu þess.
HILDUR KRISTMUNDSDÓTTIR hefur verið
ráðin útibússtjóri í útibúinu á Seltjarnar-
nesi frá 1. júní nk. Hildur hóf störf í Ís-
landsbanka sem
verðbréfafulltrúi í
útibúinu í Hafnarfirði
árið 1998 og varð
síðan þjónustustjóri í
útibúinu að Suður-
landsbraut árið 2001.
Hildur lauk sálfræði
frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið
1995, rekstrar og viðskiptanámi í Endur-
menntun Háskóla Íslands árið 2001 og
MBA, jafnhliða starfi sínu, einnig frá HÍ
árið 2004.
MAGNEA ÞÓREY HJÁLMARSDÓTTIR hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri Flug-
leiðahótela. Hún lauk námi í hótelstjórn-
un frá IHTTI,
Neuchatel í Sviss
árið 1991 og MBA
námi frá University
of Surrey 2003. Hún
hóf hótelferil sinn í
Sviss þaðan sem
hún fór til Japan
áður en hún hóf
störf á Holiday Inn
Reykjavík 1992-1995, var aðstoðarhótel-
stjóri Hótels Esju og Loftleiða frá 1996-
1998, forstöðumaður landsbyggðarhót-
ela Flugleiðahótela h/f 1998-1999, fram-
kvæmdastjóri ráðstefnunnar „Konur og
lýðræði við árþúsundamót“, sem haldin
var á vegum ríkisstjórnarinnar 1999.
Hún var forstöðumaður Icelandair hot-
els 1999-2001. Að námi loknu hefur
Magnea starfað við Háskólann í Surrey
við skipulagningu alþjóðlegra ráðstefna
sem og ráðgjafi á sviði markaðsmála og
gæðastjórnunar.
KÁRI KÁRASON hefur verið ráðinn sem
aðstoðarframkvæmdastjóri fyrir Icelea-
se. Hann hefur verið framkvæmdastjóri
Flugleiðahótela frá árinu 1999, en var
áður forstöðumaður
á fjármálasviði FL
Group frá árinu 1994.
Icelease tók til star-
fa fyrr á þessu ári og
er nýtt fyrirtæki inn-
an FL Group sem
annast kaup, sölu og
leigu flugvéla á al-
þjóðlegum markaði.
Icelease er ætlað útrásarhlutverk á
þessum nýja starfsvettvangi innan FL
Group og hefur félagið að undanförnu
lagt áherslu á Asíumarkað og leigði
meðal annars fimm Boeing 737-800 þot-
ur til Air China eins og greint var frá fyr-
ir skömmu.
THEODÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR hefur verið
ráðin markaðsstjóri Smáralindar í stað
Erlu Friðriksdóttur sem tekur við starfi
bæjarstjóra í
Stykkishólmi 1.
ágúst nk. Theo-
dóra hefur starfað
hjá Smáralind frá
árinu 2000 og hef-
ur gengt starfi
þjónustustjóra
undanfarin þrjú ár
ásamt því að
vinna að mark-
aðsmálum versl-
unarmiðstöðvarinnar. Hún starfaði áður
í innflutningsdeild Byko í átta ár.
STANDA Í STRÖNGU Gréta Björg Blængsdóttir (standandi), sölustjóri Radisson SAS 1919 Hotel, og Nina Thomassen (sitjandi) hótelstjóri vinna hörðum höndum að því að opna eitt
glæsilegasta hótel landsins sem staðsett verður í Eimskipafélagshúsinu við Pósthússtræti.
KRISTJÁN ARASON Segir móður sína
alltaf besta.
Klára skólann
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA