Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 42
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN18
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Nauðsynlegt er fyrir alla að
virkja leiðtogann í sér, algjör-
lega óháð því hvar innan fyrir-
tækisins þeir starfi. Leiðtogar
eru ekki endilega stjórnendur
en leiðtogar spyrja spurninga og
taka engu sem gefnum hlut.
Dögg Hjaltalín hitti Lee Warr-
en yfir hádegisverði.
Leiðtogi er ekki nafnorð heldur sagnorð seg-
ir Lee Warren sem kom hingað til lands til að
kenna íslenskum nemendum hvað fælist í því
að vera leiðtogi.
Lee leggur áherslu á að það sé bæði hættu-
legt og erfitt að vera leiðtogi. Þeir reyni að
stjórna aðstæðum hverju sinni. „Leiðtogar
eru ekki endilega forstjórar, stjórnarfor-
menn eða millistjórnendur, þeir eru alls stað-
ar innan fyrirtækisins.“
Lee Warren var gestakennari í MBA-námi
við Háskóla Íslands og kenndi íslenskum
námsmönnum þá list að vera leiðtogi. Hún
ögraði nemendum sínum og lét þá vinna
krefjandi verkefni, þó aðallega sem snertu
þá persónulega.
Hún bendir á hlæjandi að nú hafi hún út-
skýrt á tveimur mínútum það sem hafi tekið
hana tvo daga að kenna. „Aðalatriði er að
nemendurnir taki þetta til sín og nýti sér
þetta í starfi. Fólk verður að líta í eigin barm
og það er í raun erfiðasti hluti námskeiðs-
ins.“
KALT Á TOPPNUM
Lee Warren byggir kennslu sína á kenning-
um þeirra Martins Linsky og Ronalds
Heifetz. Þeirra kenningar fjalla um það að
það sé hættulegt að vera leiðtogi og þeir
benda einnig á leiðtoginn sé alls staðar í fyr-
irtækinu. Fólk eigi að vinna markvisst að því
að virkja leiðtogann í sjálfum sér. Áskorunin
og erfiði hlutinn af því að vera leiðtogi felst í
því að vera sífellt að fá fólk til að gera eitt-
hvað sem það vill kannski ekki gera. Lee seg-
ir manneskjur í eðli sínu íhaldssamar og því
séu breytingar alltaf erfiðar fyrir þær.
Breytingar eru þó nauðsynlegar fyrir fram-
þróun. Eins benda þeir á oft sé einmanalegt
og kalt á toppnum.
Lee skilgreinir leiðtoga á tvenns konar
hátt: annars vegur tæknilegur leiðtogi og
hins vegar áunninn leiðtogi. Normið sé sífellt
að breytast og því þurfi leiðtoginn að breyt-
ast með.
HORFA YFIR DANSGÓLFIÐ
Lee segir að fólk sé ekki annaðhvort leiðtogi
eða ekki, það fæðist ekki sem leiðtogi. „Fólk
á að þróa leiðtogahæfileikana með sér því að
vera leiðtogi fæst ekki með því að fá vald
upp í hendurnar.“
Lee útskýrir gjörðir leiðtoga á mjög
myndrænan en einfaldan hátt. „Leiðtogi er
sá sem fer upp á svalirnar á dansleik og horf-
ir yfir dansgólfið. Frá svölunum sér hann til
dæmis hverjir eru að dansa saman, á hvaða
hátt, hverjir dansa í takt og hverjir dansa
best. Út frá þessum upplýsingum getur leið-
toginn ákveðið hvert næsta skref verður.“
Eitt af því sem Lee leggur mesta áherslu á
er að leiðtogi sé ekki endilega stjórnandi,
leiðtogi á að búa í öllum starfsmönnum.
„Hver starfsmaður á að líta í eigin barm og
hugsa hvernig næst betri árangur. Með því
að gera eitthvað á betri veg er hann leiðtogi.
Hæfni leiðtoga ræðst ekki af því hversu of-
arlega í fyrirtækinu hann vinnur heldur
hvort honum takist að fá fólk til að eiga
frumkvæði og hrífa samstarfsfélagana sína
með sér.“
SKIL MILLI EINKALÍFS OG VINNU
Lee Warren leggur mikla áherslu á að ein-
staklingar skilji á milli einkalífs og vinnunn-
ar. „Til að ná árangri í starfi þarf fólk að átta
sig á því að öll gagnrýni er ekki persónuleg
heldur fagleg. Ef fólk skilur
þetta ekki er það sífellt fyr-
ir persónulegum árásum og
líður illa í vinnunni. Fólk má
ekki kikna undir álaginu.
Blaðamaður bendir henni
á að í litlu landi eins og Ís-
landi sé það oft erfitt. Hún
segir þvert á móti sé það
mikilvægara í litlu landi
eins og Íslandi. Fólk verði að
komast frá vinnunni.
Aðalatriði leiðtogans er
ekki endilega að vita svörin
heldur frekar að velta upp
spurningum. „Leiðtoginn
finnur vandamálin og reynir
að leysa þau. Hann kemst á
endanum á leiðarenda en
ekki endilega þá leið sem
hann hélt að hann færi í upp-
hafi.“
Lee segir að allir þurfi að
temja sér gagnrýna hugsun
og spyrja spurninga. Finna
ógnanirnar, sem gætu til
dæmis falist í samkeppnis-
aðila. „Allir ættu að leitast
við að tileinka sér hugsunar-
hátt leiðtoga og reyndar gera það margir án
þess að átta sig á því. Mjög nauðsynlegt er að
fólk taki frumkvæðið.“
NÝTA KUNNÁTTTUNA
Lee kenndi nemendum í MBA við Háskóla Ís-
lands og sagði hún þá hafa staðið sig vel. Hún
hafi greinilega sýnt nemendunum alveg nýja
hlið á kennslu. Allir voru látnir vinna í hóp-
um og reyndi kennslan meira á nemendurna
andlega en vitsmunalega. „Ég lét þá vinna í
leiðtoganum í sjálfum sér. Leiðtoginn verður
að leggja sjálfan sig algjörlega í það.“
Lee segir nemendurna hafa verið hissa á
því hversu mikið þeir þurftu að leggja af
mörkum. „Bandarískir nemendur mótmæla
að vísu stundum því þeir eru vanir að leggja
eitthvað af mörkum vitsmunalega en alls
ekki persónulega.“
Leiðtogafræðin snúist mikið um nýta eig-
in reynslu á jákvæðan hátt og tengja við eig-
in upplifun. „Nemendurnir þurftu að finna
hvernig þeirra hópur ynni
og hvaða tækifæri þau
hefðu. Ég lét þau segja sínar
reynslusögur og láta þau
vinna með sitt eigið líf því
hver er tilgangurinn ef þú
lærir ekki að nýta þér það
sem þú kannt.“
Á HJÓLI Í FRAKKLANDI
Lee spyr mikið um Ísland og
vill fræðast um land og þjóð.
Íslenskar bókmenntir heilla
hana og hyggst hún festa
kaup á bók eftir nóbels-
skáldið meðan á dvöl hennar
stendur hér. Lee hrífst af
sögunni af sjálfstæða,
þrjóska bóndanum Bjarti í
Sumarhúsum og segir hlæj-
andi að hann hafi greinilega
verið leiðtogi.
Lee ræðir við blaðamann
um land og þjóð og segir hún
greinilegt að mikill leiðtogi
búi í brjóstum Íslendinga.
Hún heillast af krafti og
dugnaði þjóðarinnar eins og
hún segir sjálf.
Lee kennir um leiðtoga við Kennedy
School of Government við Harvard og hefur
gert það síðustu 20 ár. Hún segist óvart hafa
endað þar en henni líki það mjög vel. Áður
vann hún fyrir ýmis góðgerðasamtök og seg-
ist hún geta nýtt reynsluna frá þeim störfum
sínum vel í kennslunni.
Lee ætlar að dvelja hér á landi í nokkra
daga og ætlar bregða sér meðal annars í
Skaftafell en hún hefur gaman að fjallgöng-
um. Hún tengir áhugamál sín strax við kenn-
ingarnar um leiðtoganna og segir nauðsyn-
legt fyrir alla að hafa áhugamál, hæfni þeir-
ra til að takast á við vandamál aukist.
Dugnaður og krafturinn einkennir Lee en
hún hyggst fara beint til Frakklands frá Ís-
landi og hyggst hjóla þar um. Líklega ætlar
hún að virkja leiðtogann í sér í þeirri ferð.
Hádegisverður fyrir tvo
á Galíleó
Graskerssúpa
Sjávarréttasalat með hörpuskel,
krækling, rækjum og
kapersdressingu
Cannelloni með ricottaosti og spínati
Drykkir:
Vatn með lime
Sódavatn með lime
Alls: 3.050
▲
H Á D E G I S V E R Ð U R I N N
Með Lee
Warren
kennara við Harvard
Verðskuldað
tækifæri
Aurasálinni berst mikið af rusl-
pósti og tilboðum um þátttöku í
ýmsum fjárfestingum. Mikilvægt
er að kunna að greina á milli
raunverulegra tækifæra og fjár-
plógsstarfsemi. Aurasálin lætur
til dæmis aldrei aftur blekkjast
af pýramídafyrirtækjum.
Í einu bréfinu sagði eitthvað á þá
leið að þar sem Aurasálin væri
„future leader in business and
industry“ þá stæði henni til boða
„a unique opportunity“ til að „get
an invaluable edge on the
competition“. Þetta lætur vel í
eyrum Aurasálarinnar.
Það eina sem Aurasálin þarf að
gera er að opna bankareikning og
leyfa syni fyrrverandi herfor-
ingja í lýðræðisher Afríkuríkis-
ins Kúmar að leggja 250 þúsund
dali inn á reikninginn. Fyrir við-
vikið fær Aurasálin tíu prósent
af upphæðinni – eða fimmtán
milljónir. Það eina sem þarf að
gera er að senda hundraðþúsund-
kall inn á reikning í Cayman-eyj-
um til að liðka fyrir umsýslunni.
Einhverjir kynnu að halda að
þetta sé svikamylla. En Aurasálin
er þess fullviss að svo er ekki.
Auðvitað ætlar Aurasálin ekki að
sleppa sér í gleðinni fyrr en pen-
ingurinn er kominn í hús. Það
verða ekki gerð sömu mistök og
fyrir nokkrum árum þegar Aura-
sálin ætlaði að græða milljónir á
því að kaupa tvö þúsund lén,
meðal annars davidoddsson.com
og rikisstjornislands.com. Þetta
kostaði ekki mikið, svona fimm
dali hvert, en þetta safnaðist
saman og aldrei hefði Aurasál-
inni dottið í hug að ekki væri
hægt að selja eitt einasta lén.
Aurasálin hafði reiknað það út að
ef hægt væri að selja tíu lén á
hálfa milljón hvert þá væri
gróðinn fimm milljónir.
Þá fór Aurasálin beint í bankann
og hækkaði yfirdráttinn og keyp-
ti sér nýjan bíl og ný jakkaföt til
að lúkka rétt fyrir fundina með
þeim sem áttu að kaupa lénin.
Þannig að í staðinn fyrir að eiga
fimm milljónir stóð Aurasálin
eftir með þriggja milljóna yfir-
drátt og kreditkortaskuld upp á
tvö hundruðþúsundkall.
Aurasálin mun ekki gera sömu
mistökin aftur. Hún mun ekki
endurnýja bílinn en það er aug-
ljóst að fataskápurinn þarf end-
urnýjun auk þess sem athafna-
menn eins og Aurasálin þurfa að
geta fylgst með heimsfréttunum.
Þess vegna hækkaði Aurasálin
yfirdráttinn, en bara umtvær
milur til að geta keypt þrenn ný
jakkaföt, gervihnattadisk og 50
tommu plasma sjónvarpsskjá.
Lærdómurinn sem Aurasálin dreg-
ur af þessu tækifæri er einfald-
ur: Með eljusemi, útsjónarsemi
og þolinmæði munu tækifærin
koma. Það eina sem þarf til að
græða á þeim er að vera tilbúinn
að grípa þau og umfram allt – að
láta ekki plata sig.
A U R A S Á L I N
Leiðtogi er sá sem fer upp á svalirnar á dansleik og horfir yfir dans-
gólfið. Frá svölunum sér hann til dæmis hverjir eru að dansa saman, á
hvaða hátt, hverjir dansa í takt og hverjir dansa best...
Leiðtogahæfileikar lærast
FÓLK Á AÐ VIRKJA LEIÐTOGANN Í SJÁLFUM SÉR OG TAKA FRUMKVÆÐI Oft getur þó verið napurt og einmanalegt
á toppnum, segir í kenningum sem Lee starfar eftir.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/S
te
fá
n