Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 56
SJÓNARHORNSVIPMYND
Rómverjar hertóku borgina árið 29. Borgin var eyðilögð af Húnum árið 447
en byggð upp aftur af keisaranum Byzantine og skírð Triaditsa. Árið 1376 var
borgin skírð Sofia sem þýðir viska. Borgin var hertekin af Ottómanveldinu
árið 1382 og varð höfuðborg tyrkneska héraðsins Rumelíu. Rússar hertóku
borgina árið 1878 og hún varð höfuðborg sjálfstæða ríkisins Búlgaríu árið eft-
ir. Í seinni heimsstyrjöldinni náðu Rússar Sofiu sem og Búlgaríu aftur úr
höndum Þjóðverja.
ÍBÚAFJÖLDI: 1,208,930.
HÆÐ: 550 metrar.
LANDSVÆÐI: 1,310 ferkílómetrar.
ÞÉTTLEIKI BYGGÐAR: 907 manneskjur á ferkílómetra.
MEÐALALDUR ÍBÚA: 38,3 ár.
KJÖRORÐ BORGARINNAR: „Það vex en eldist ekki.“
ÚTFLUTNINGSVÖRUR: Málmur, textíll, gúmmí, leðurvörur og prentverk.
8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR 16
Vissir þú ...
… að 5.327 pör kysstust samtímis
í tíu sekúndur 14. febrúar árið
2004 en það var liður í „Close-up
Lovapalooza“-hátíðinni í Manila á
Filippseyjum?
… að stærsta stjörnuþokan er
miðstjörnuþoka Abell 2029
stjörnuþokuklasans í 1.070 milljón
ljósára fjarlægð í Meyjarmerkinu
en hún er 5,6 milljónir ljósára að
þvermáli?
… að dýpsta gljúfur í heiminum
er Vikos-gljúfrið í Pindusfjöllum í
norðvesturhluta Grikklands en
það er níu hundruð metra djúpt
og aðeins 11.000 metrar eru á
milli gljúfurbarmanna?
… að Apa, sherpi frá Nepal, hefur
klifið Everest oftast eða alls þrett-
án sinnum?
… að mesti hiti sem mælst hefur
í sjó er 404˚C en hann mældist
undan vesturströnd Bandaríkj-
anna árið 1985?
… að rófulausa broddskordýraæt-
an, Tenrec ecaudatus, sem lifir á
Madagaskar hefur gotið 31 af-
kvæmum og er það mesti fjöldi
afkvæma sem um getur meðal
villtra spendýra?
… að vænghaf karlfugls hrímtros-
ans í suðurhöfum er það mesta
sem mælst hefur eða 3,63 metr-
ar?
… að háhyrningurinn er hrað-
skreiðasta sjávarspendýrið en
hann mældist á 55,5 kílómetra
hraða á klukkustund í Norðaustur-
Kyrrahafi 12. október árið 1958?
… að besti hástökkvari í hópi
skordýra er froskhopparinn, Phila-
enus spumarius, en hann getur
stokkið upp í sjötíu sentímetra
hæð eða meira en 115 sinnum
líkamsstærðina?
… að elsta kanína heims heitir
Baby og er fædd í ágúst árið 1990
í Bandaríkjunum?
… að miðað við fyrirliggjandi tölur
ver Svasíland minnstu fé til her-
mála eða 1.335 krónum á mann
miðað við árið 2003? Íbúafjöldi
landsins var 1.104.000 árið 2001.
… að stærsti orkuframleiðandi í
heimi er Bandaríkin en þau fram-
leiddu 75.295 júl af orku, þar á
meðal óblandað eldsneyti, fljót-
andi eldsneyti og gaseldsneyti
auk raforku?
Erlendir ferðamenn njóta lífsins í miðborginni./Ljósmynd: GVA
Opið virka daga kl. 10-20
laugardaga kl. 10-17
Sofia þýðir viska.
SOFIA ER HÖFUÐBORG BÚLGARÍU en landið er staðsett á milli Rúmeníu
og Tyrklands. Borgin var stofnuð fyrir sjö þúsund árum og er önnur elsta
höfuðborgin í Evrópu.