Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 60
8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við vonum ...
... að íslenska knattspyrnulandsliðið rífi sig
upp í kvöld eftir áföll síðustu daga
og rúlli yfir Maltverja. Þetta
er besta tækifæri Íslands
á sigri í riðlinum en
hætt er að við að
liðið ljúki keppni í
riðlinum án sigurs
klári þeir ekki
dæmið í kvöld.
Heyrst hefur ...
... að íslenskum landsliðsmönnum í
knattspyrnu sé það ómögulegt orðið að
skora gegn Möltu. 21 árs leikurinn í gær
var þriðji leikurinn í röð sem Íslandi
mistekst að skora og nú er að sjá hvort
A-landsliðið geti brotið þennan múr hjá
einum af slökustu knattspyrnuþjóðum
Evrópu. Malta fékk 35 mörk á sig í fyrstu
13 leikjunum gegn Íslandi en hefur nú
haldið hreinu í 270 mínútur.
sport@frettabladid.is
20
> Við mælum með ...
.... að Akureyringar fjölmenni
á landsleik Íslands og
Svíþjóðar í kvöld og hjálpi
til við að grafa Svíagrýluna
endanlega. Það er ekki á
hverjum degi sem
Akureyringar fá slíkan
toppleik til bæjarins og með
því að fjölmenna á pallana í
kvöld setja þeir pressu á að fá
fleiri landsleiki í framtíðinni.
Ísland mætir Möltu í kvöld í undankeppni HM. Hei›ar Helguson gat ekki teki› flátt í leiknum gegn Ung-
verjalandi sökum leikbanns og óvissa er me› flátttöku hans í leiknum í kvöld vegna veikinda.
Heiðar tæpur vegna veikinda
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið æfði í
gær fyrir leikinn gegn Möltu sem
verður á Laugardalsvelli í kvöld.
Þegar um 10 mínútur voru liðnar
af æfingunni þurfti Heiðar Helgu-
son að hætta þar sem hann var
slappur og sagði Logi Ólafsson,
annar landsliðsþjálfaranna, við
Fréttablaðið um kvöldmatarleytið
í gær að ólíklegt væri að hann
yrði alveg tilbúinn í leikinn þó að
erfitt væri að meta það á þessari
stundu. Metið verður í samráði
við lækni hvað gert verður.
Ný varnarlína
Ljóst er að það verður alveg ný
varnarlína í leiknum gegn Möltu í
kvöld frá því gegn Ungverjalandi
vegna meiðsla og leikbanna. Logi
segist aldrei hafa lent í því á sín-
um þjálfaraferli að neyðast til að
skipta um heila vörn.
„Hvorki ég né Ásgeir höfum
lent í einhverju líkt þessu, í leikn-
um á laugardag fór stór hluti fyrri
hálfleiks í að gera að meiðslum
manna. Þetta var ótrúleg upplifun
en við reynum að taka það já-
kvæða úr leiknum með okkur í
leikinn gegn Möltu.
Það er margt jákvætt í okkar
leik, góð stemmning og góður
vinnuandi í hópnum. Þetta er enn
fyrir hendi þrátt fyrir áföllin,“
sagði Logi.
Þegar Ísland og Malta mættust
í fyrri leiknum voru Möltumenn
með tvo menn fyrir aftan fjögurra
manna línu, þrjá þar fyrir framan
og einn fremstan. „Þeir léku aft-
arlega gegn okkur í fyrri leiknum
og við reiknum með að þeir geri
það sama nú. Við þurfum að koma
af hörku í leikinn og vera með
mikla pressu á boltann eins og
gerðist gegn Ungverjum. Einnig
þurfum við að nýta vel breidd
vallarins.“
Óhjákvæmilega verða tals-
verðar breytingar á liði Íslands í
kvöld, bæði aftarlega og framar-
lega að sögn Loga. Bjarni Ólafur
Eiríksson, leikmaður Vals, var
kallaður inn í landsliðið fyrir leik-
inn en það er í fyrsta sinn sem
hann er valinn. „Bjarni hefur
staðið sig vel á æfingum og er
framtíðarmaður. Við treystum
ungu leikmönnunum fullkomlega
til að fara út í þetta verkefni,“
sagði Logi Ólafsson.
elvar@frettabladid.is
Íslenska 21 árs landsliðið gerði markalaust jafntefli við Möltu í gær:
FÓTBOLTI Íslenska 21 árs landslið-
ið varð að sætta sig við marka-
laust jafntefli við Möltu á KR-
vellinum í gær og jafnteflið er
mikill sigur fyrir Möltubúa ef
marka má viðbrögð þeirra eftir
leik en þeir hafa fengið öll fjögur
stigin í riðlinum út úr tveimur
leikjum sínum við íslenska liðið.
Tveir frábærir heimaleikir í
fyrrahaust þar sem Búlgaría og
Svíþjóð lágu bæði 3-1 gáfu góð
fyrirheit fyrir leikina í þessari
törn en þegar upp er staðið fékk
íslenska liðið aðeins eitt stig og
skoraði ekki mark í leikjunum
tveimur.
„Það er ekki hægt að fá fleiri
færi í leik og það er alveg með
ólíkindum að við höfum ekki náð
að skora. Við sköpuðum okkur
fullt að færum en náðum bara
ekki að setja boltann yfir línuna.
Það er að sjálfsögðu mjög
svekkjandi því við áttum mikið
meira skilið út úr þessum leik,“
sagði Eyjólfur Sverrisson lands-
liðsþjálfari. „Þetta datt ekki fyr-
ir okkur í þessum tveimur leikj-
um en ég er viss um það að við
eigum eftir að opna markareikn-
inginn okkar aftur,“ bætti Eyjólf-
ur við en íslenska liðið á nú eftir
þrjá leiki í riðlinum, heimaleik
gegn Króötum og útileiki gegn
Búlgörum og Svíum.
„Við fengum heilan helling að
færum og hefðum átt að nýta
eitthvert þeirra. Okkur vantar
smáákveðni í að klára sóknirnar
og við erum ekki að spila af sömu
getu og við eigum að gera og höf-
um gert hingað til. Það sýnir sig
bara að ef við erum ekki að spila
100% leik þá vinnum við ekki
þessa leiki. Við ætluðum okkur
stóra hluti í þessum tveimur
leikjum en þetta gekk ekki upp
hjá okkur. Við verðum bara að
bæta okkur og koma sterkari til
leiks næst. Það voru framfarir í
dag frá því í Ungverjaleiknum
enda kannski ekki annað hægt og
það komu góðir kaflar inn á milli
en því miður náðum við ekki að
nýta færin,“ sagði Hannes Þ. Sig-
urðsson sem skoraði sex mörk í
heimaleikjunum tveimur í fyrra-
haust en komst eins og aðrir í lið-
inu ekki á blað í leikjunum gegn
Ungverjalandi og Möltu.
Sigur hjá 19 ára liðinu
Theódór Elmar Bjarnason
skoraði bæði mörkin í 2–0 sigri
19 ára landsliðsins í vináttu-
landsleik gegn Svíum í gær.
Fyrra markið gerði Theódór
Elmar úr víti. Liðin mætast aftur
í Sandgerði í hádeginu á
fimmtudaginn.
ooj@frettabladid.is
Ekki hægt a› fá fleiri færi í leik
Það vakti athygli að þegar ís-
lenska karlalandsliðið í hand-
bolta vann sinn fyrsta sigur á
fullskipuðu liði Svía í tæp
sautján ár gerði liðið það án
Ólafs Stefánssonar, sem sat
uppi í stúku og horfði á félaga
sína eiga góðan leik og yfirbuga
gömlu Svíagrýluna. Ólafur var
ánægður með leikinn og það að
liðið skyldi spjara sig án hans.
„Það var tilgangurinn,“ sagði
Ólafur af sínu þjóðþekkta lít-
illæti en hann hefur leikið
ellefu landsleiki gegn Svíum
á ferlinum og hefur Ísland
tapað þeim öllum.
„Kollegi minn, Einar Holm-
geirsson, spilaði frábærlega
og það gæti orðið erfitt fyrir mig
að vinna aftur mína stöðu. 6:0
vörnin í seinni hálfleik var líka
góð og mér leist vel á það og
eins það að spila með tvo línu-
menn. Sóknarleikurinn var líka
fínn og þetta gekk mjög vel,“
sagði Ólafur þegar Fréttablaðið
hitti á hann eftir leik en Einar
Hólmgeirsson átti stórleik í
hægri skyttunni og skoraði 9
mörk úr aðeins 12 skotum.
Einar hefur skorað 33 mörk
og nýtt 63%
skota sinna
í fjórum síðustu leikjum án Ólafs og
það er því spennandi tvíeyki sem lands-
liðsþjálfarinn Viggó Sigurðsson getur
teflt fram á næstunni. Ólafur Stefánsson
hefur ekki spilað með landsliðinu síðan
á Heimsmeistaramótinu í Túnis en
hann kom ekki strax til móts við lands-
liðið að þessu sinni þar sem hann tók
þátt í kveðjuleik fyrir Talant Dujshebaev
um helgina.
ÓIafur er klár í næstu leiki og spilar
með í seinni leiknum gegn Svíum á Ak-
ureyri í kvöld. „Skrokkurinn er í fínu
standi og ég verð með í leiknum fyrir
norðan enda vona ég að það verði ekki
fleiri setur uppi í stúku hjá mér,“ sagði
Ólafur en leikurinn fer fram í KA-húsinu
og hefst klukkan 20.
ÓLAFUR STEFÁNSSON: HEFUR ALDREI UNNIÐ SVÍA OG MISSTI AF SIGURLEIKNUM Í FYRRAKVÖLD
Gæti or›i› erfitt a› slá Einar út úr li›inu
Sendu SMS skeytið JA MMF á
númerið 1900 og þú gætir unnið.
12. hver vinnur.
Vinningar eru:
Miðar f. 2 Mr & Mrs Smith
Glæsilegur varningur tengdur
myndinni t.d. úr og bolir
DVD myndir
Margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið.
SMS leikur
Guðjón Þórðarson:
Er hér til fless
a› ná árangri
FÓTBOLTI Það gustar um Guðjón
Þórðarson í stjórastól Notts
County þótt ekki hafi hann setið
lengi. Hann er búinn að leggja lín-
urnar fyrir leikmenn liðsins sem
hann segir hafa leikið undir getu.
Guðjón segir að geti þeir ekki far-
ið eftir því sem hann segir geti
þeir fundið sér annað félag.
„Þeir geta farið sínar leiðir en
ef þeir gera það verða þeir ekki
ánægðir með það hvar þeir enda,“
sagði Guðjón í samtali við Nott-
ingham Evening Post en hann
hyggst beita heraga hjá Notts
County. „Ef leikmönnum líkar
ekki við aðferðir mínar geta þeir
farið annað. Það er ekkert vanda-
mál af minni hálfu. Agi er mikil-
vægur og menn vita hvenær þeir
hafa farið yfir strikið. Ég er ekki í
þessu starfi til að eignast vini. Ég
er hér til þess að ná árangri.“
HARÐUR HÚSBÓNDI Það er enginn
miskunn hjá Guðjóni.
ÚFF Það má segja að þessi mynd sé táknræn fyrir gengi 21 árs landsliðsins í leikjunum
gegn Ungverjum og Möltu. Þar gekk lítið sem ekkert upp. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
HEIÐAR TÆPUR Sveinbjörn Brandsson,
læknir landsliðsins, hugar hér að Heiðari
fyrir leikinn gegn Möltu ytra.
FRÉTTABLAÐIÐ/DOMENIC AQUILINA