Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 70

Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 70
30 8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Séð og heyrt lækk-aði á dögunum lausasöluverð blaðs- ins til að mæta sam- keppni frá nýja glans- ritinu Hér og nú, sem er í eigu sömu aðila og Fréttablaðið. Sviptingar hafa að undan- förnu verið í liðssveit Séð og heyrt en ritstjórar blaðsins, þeir Kristján Þorvaldsson og Bjarni Brynjólfsson, sitja sem fastast og hafa gert frá upphafi blaðsins. Þeir hafa nýlega fengið til liðs við sig sunnlenska blaðamann- inn Sigurð Boga Sævarsson til að fylla það skarð sem myndaðist þeg- ar Hanna Eiríksdótt- ir, dóttir hins skel- egga blaða- manns Ei- ríks Jóns- sonar, skipti um vettvang og hóf störf á DV. Innan borgarstjórnarflokks sjálf-stæðismanna virðist mikil stemn- ing fyrir komandi átök- um við R-listann. Sjálf- stæðismenn fengu aðeins sex borgarfull- trúa kjörna í síðustu kosningum en eins og frægt er orðið hirti F- listinn einn og R-listinn hlaut átta. Eins og alltaf þegar kosn- ingar nálgast eru mörg nöfn nefnd en mikil stemning hefur í gegnum árin verið í prófkjörum hjá sjálfstæð- ismönnum. Allt lítur út fyrir að Gísli Marteinn Baldursson ætli sér ofar- lega á lista og sama gildir um Júlíus Vífil Ingvarsson og Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson. Enn hefur engin kona bent á að hún ætli sér ofarlega á lista en einna helst hafa verið nefnd nöfn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Margrétar Einarsdóttir. Lárétt: 1 vísdómsfuglinn, 6 ánægð, 7 málm, 8 leikfélag, 9 fæði, 10 mjólkuraf- urð, 12 ferðalag, 14 verkfæri, 15 kyrrð, 16 drykkur, 17 lærði, 18 kjáni. Lóðrétt: 1 tjón, 2 liðin tíð, 3 tveir eins, 4 eðli, 5 fæða, 9 væntumþykja, 11 hæð, 13 lofa, 14 hik, 17 ónefndur. LAUSN. Lárétt: 1 ugluna,6sæl,7ál,8lr, 9áta, 10ost,12túr, 14tól,15ró,16öl, 17 nam,18flón. Lóðrétt: 1usli,2gær, 3ll,4náttúra, 5ala,9ást,11 hóll,13róma,14töf, 17nn. Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 Opið laugardaga frá 10-14.30 SIGIN GRÁSLEPPA OG SJÓ SIGINN FISKUR SIGIN RÁSLEPPA OG KÆST SKATASTÓR H M R , Á föstudaginn fór fram menning- aruppboð á Grand Rokk þar sem fjöldi þekktra hljóðfæra voru seld til safnara. Meðal þess sem boðið var upp var gítarinn hans JoJo, sem Bruce Springsteen tók í á Strikinu 1988. Það var Guðlaugur Tryggvi Óskarsson, sem rekur fyrirtækið GT Óskarsson í Kópavogi, sem keypti gítarinn á 22 þúsund krón- ur. Gítarinn verður ekki í slæmum félagsskap hjá Guðlaugi því fyrir á hann Bubbagítarinn sem seldur var í söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. „Ég lét smíða sérstakan glerkassa utan um gítarinn hans Bubba og gítarinn hans JoJo fær sömu meðferð,“ segir Guðlaugur Tryggvi, sem er nýbyrjaður að safna gítörum. „Þegar byrjað er að safna getur maður ekki hætt,“ bætir hann við en meðal þess sem Guðlaugur hefur sankað að sér er tveir gamlir bílar, Kadilakk og Rússajeppi, auk nokkurra penna sem hann reyndar er hættur að safna. freyrgigja@frettabladid.is GUÐLAUGUR TRYGGVI Fékk gítarinn hans Bubba í söfnuninni Hjálparhönd úr norðri og er nú kominn með Springsteen-gítarinn. Þegar Valgerður Mattíasdóttir hætti með Innlit / Útlit og færði sig yfir á sjónvarpsstöðina Sirkus, sem rekin er af 365, var ljóst að hefja þyrfti leit að eftirmanni hennar. Henni er nú lokið og var ekki leitað langt yfir skammt. Það verður lærisveinn Völu, Þórunn Högnadóttir, sem mun ritstýra þáttunum en hún hefur aðstoðað Völu undanfarið ár í þáttunum. Þórunn var reyndar á leiðinni út úr bænum þegar Fréttablaðið náði tali af henni, ætlaði að fara austur á Hótel Geysi til þess að að- stoða þar við margvíslega hluti. „Já, ég er að taka við hlutverki Völu,“ staðfestir hún og viður- kennir að það eitt og sér verði alls- kostar ekki létt verk. „Mér líst bara vel á þetta þótt það verði erfitt að feta í fótspor hennar Völu,“ segir hún en er þó full sjálfstrausts enda vafalaust feng- ið góða reynslu af samstarfi sínu með Völu. Þórunn, sem ekki er menntaður hönnuður, hefur unnið lengi sem stílisti og aðstoðað fólk við að gera híbýli þess smekkleg. „Innanhús- hönnun hefur lengi verið ástríða hjá mér,“ segir hún. Innlit / Útlit hefur verið einn vinsælasti þátturinn í íslensku sjónvarpi undanfarin ár. Þrátt fyr- ir það fær þátturinn smá upplyft- ingu þó að yfirbragðið verði það sama. „Það verður ýmislegt gert til þess að stokka þáttinn upp og áhorfendur munu sjá breytingar,“ segir hún. „Við erum að vinna að því að fá nýtt og ungt fólk til þess að stjórna þættinum með mér en það er ekkert komið á hreint í þeim efnum,“ segir Þórunn, spennt yfir þessum tímum en nýju þættirnir munu væntanlega fara í loftið í ágúst. freyrgigja@frettabladid.is ÞÓRUNN HÖGNADÓTTIR Hún verður nýr ritstjóri Innlit / Útlit og tekur við af „lærimeistara“ sínum, Valgerði Mattíasdóttur. ÞÓRUNN HÖGNADÓTTIR: BREYTINGA AÐ VÆNTA Fetar í fótspor Völu Matt ...fær Kjartan Jakob Hauksson, sem er lagður af stað á ný hring- inn í kringum landið í árabát til styrktar Sjálfsbjörgu. HRÓSIÐ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Geymir tvo gítara í glerkassa Hið besta mál Ja, er það ekki bara hið besta mál? Mér finnst al- veg að það megi skoða það. Það getur vel verið að það sé skynsam- legt, ég bara hef ekki kynnt mér það nógu vel. Ég kannski hef ekki nógu sterka skoð- un á þessu af því að ég er uppruna- lega Keflvíkingur. Reykjavík er ekki mín fæðingarborg. Ömurleg hugmynd Mér finnst það öm- urleg hugmynd. Vegna þess að Hafnarfjörður er hin sanna höfuðborg Ís- lands. Það á að leggja niður Reykja- vík sem höfuðborg Íslands. Reykjavík er bara ljót borg og ég vil sem minnst af henni vita. Og hin sveitarfélögin ekki heldur, það væri ömurlegt ef Hafna- fjörður sameinaðist þeim. Vil halda í sér- stöðu bæjarfé- lagsins Ég get ekki sagt að ég sé hlynnt því að sameina sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu. Ég vil halda í sérstöðu bæjarfélagsins, í sérstöðu Garða- bæjar. Ég myndi vilja halda þessu í núverandi stöðu. ÞRÍR SPURÐIR Hanna María Karlsdóttir, leikkona og Reykvíkingur Haraldur Freyr Gíslason, tromm- ari og Hafnfirðingur Stella Rósenkranz, danskennari og Garðbæingur Á AÐ SAMEINA SVEITARFÉLÖGIN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU? 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi F-listans hefur lýst því yfir að listinn vilji sameina sveitarfélögin 7 á höfuðborgarsvæðinu FRÉTTIR AF FÓLKI [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 16. Höskuldur Jónsson. Mýrarljós. » FA S T U R » PUNKTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.