Fréttablaðið - 20.05.2005, Qupperneq 25
Límónubaka
Köld og björt og frískandi er
límónubakan svolítið eins og
maísólin sjálf. Listakokkurinn
Anna Hrönn Jóhannsdóttir kom
færandi hendi með þessa upp-
skrift frá Suðurríkjum Banda-
ríkjanna. Þetta er baka sem gott
er að eiga í frystinum og taka
fram þegar hitinn fer að kæfa
okkur í sumar. Gerið botninn
með því að blanda kexmylsnu,
sykri og smjörbráð vel saman.
Smyrjið bökuform og þrýstið svo
mylsnublöndunni jafnt yfir botn-
inn og upp eftir hliðum formsins.
Bakið í 175 gráðu ofni í 10 mínút-
ur. Kælið. Útbúið fyllinguna með
því að þeyta sykur og eggjarauð-
ur vel saman, þar til blandan
verður þykk og ljós. Blandið þá
mjólkinni, límónuberki og
límónusafa út í. Hellið svo blönd-
unni í skelina og frystið. Takið út
úr frystinum 10 mínútum áður en
bakan er borin fram. Skreytið
með þeyttum rjóma og límónu-
bátum. ■
3FÖSTUDAGUR 20. maí 2005
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Fá›u hól
fyrir framan sjónvarpið
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR EFTIRRÉTT
BOTNINN
1/2 pakki hafrakex (gerir um 3 dl af
mylsnu)
1/2 dl sykur
6 msk. smjör (brætt)
FYLLING
6 eggjarauður
1/2 dl sykur
1 dós niðursoðin þykk sykruð mjólk
(fæst í versluninni Filippseyjum á
Hverfisgötu)
2 msk. rifinn límónubörkur
safi úr 4-5 límónum
FRESITA: Létt, freyðandi og fagurrautt
Á heitu sumarkvöldi á því herrans ári 1717 rakst landkönn-
uðurinn Amedee Frezier á blóðrauðan ávöxt, þar sem hann
var á ferðum sínum um hið nýfundna land Chile. Frakkanum
forvitna þótti ávöxturinn fagurrauði hafa einstaklega sætan
og höfugan ilm og bragðast yndislega. Hann var ákaflega
uppnuminn yfir fundi sínum og færði frönsku konungshirð-
inni fyrstu jarðarberjaplönturnar, sem Spánverjar nefndu
Fresita, við heimkomu sína. Franska drottningin tók miklu
ástfóstri við berin blómlegu og kaus að njóta þeirra með
daglegu kampavínsglasi sínu. Komst þessi samsetning í tísku
og nú hafa Chilemenn sameinað þessi tvö dýrðlegu hráefni í
einum drykk.
Íslendingar hafa tekið Fresita opnum örmum og er það vin-
sælasta freyðivínið hérlendis. Fresita er ferskt og mjúkt vín
með einstaka bragðfyllingu og hentar vel sem fordrykkur eða
vín með eftiréttum. Það er 100% náttúruafurð og er lágt í
alkóhóli, eða 7,9%. Það er ákaflega góður grunnur fyrir kokk-
teila, t.d. ef blandað er í það smá lögg af rommi, koníaki,
vodka, tekíla eða líkjör.
Fæst í þremur stærðum í Vínbúðum: 750 ml flaska kostar
890 kr., 375 ml flaska kostar 490 kr. og 187 ml flaska 239 kr.
PETER LEHMANN:
Hörkukaup í
gæðavínum
Ástralskir dagar hafa staðið undan-
farnar vikur og hafa fjölmargir vínunn-
endur nýtt sér að þar má gera hörku-
góð kaup í gæðavínum. Meðal þeirra
vína sem fást á kynningarverði eru
fjögur vín frá meistara Peter Leh-
mann, einum kunnasta víngerðar-
manni Ástralíu. Einnig er vert að
benda á að fleiri vín frá Lehmann
hafa lækkað í verði nýlega vegna auk-
innar sölu hérlendis og hagstæðari
innkaupa. Peter Lehmann er einn
kunnasti vínframleiðandi Ástralíu, oft
nefndur baróninn af Barossa. Leh-
mann-vínin hafa notið gífurlegra vin-
sælda um allan heim og er Ísland þar
engin undantekning. Ein vinsælasta
vínlínan frá Peter Lehmann nefnist
Wildcard enda þykir Lehmann mikill
„gambler“, tók mikla áhættu við upp-
byggingu hátæknivædds víngerðar-
húss síns og þótti því viðeigandi að
nefna fyrirtækið eftir söguhetjunni
Sky Masterson, fjárhættuspilaranum
mikla úr bókum bandaríska smá-
sagnahöfundarins Damon Runyons.
Peter Lehmann Wildcard
Chardonnay
Afar góð ræktunarskilyrði eru
fyrir chardonnay-þrúguna í
Suður-Ástralíu. Vínið hefur
ferskan ávaxtaríkan karakter
með smá suðrænum blæ
þar sem greina má melón-
ur og ferskjur ásamt hun-
angsvotti. Vínið er einstak-
lega vel samstillt með
hreint og ferskt eftirbragð.
Hentar vel með flestu sjáv-
arfangi og ljósu kjöti.
Kynningarverð á áströlsk-
um dögum 990 kr.
Peter Lehmann Wildcard
Shiraz
Vín úr shiraz-þrúgunni eru
sennilega þekktustu vín-
afurðir Ástrala, allt frá
skemmtilegum neyslu-
tegundum upp í gríð-
arstór og mikil vín.
Berjasprengja af bestu
gerð, kryddaður
karakter en engu að
síður er fínleiki og
mýkt í fyrirrúmi og
jafnvægið gríðarlega
gott.
Kynningarverð á
áströlskum dögum
1.090 kr.
sumar gjafir
skipta öll
börn máli!