Fréttablaðið - 22.06.2005, Síða 1
Valdamestu
stjörnurnar
▲
KVIKMYNDIR 26
OPRAH WINFREY
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Fréttasími: 821 7556
ATVINNULEYFI „Það er alveg sjálf-
sagt og eðlilegt að taka undir
ýmislegt sem kemur fram í máli
ASÍ en mér finnst málatilbúnað-
ur sambandsins í heild sinni
mjög furðulegur og því til
skammar,“ segir Eiríkur Elís
Þorláksson, lögmaður Geymis
ehf., en ASÍ kannar nú hvort að-
búnaður og launakjör pólskra
starfsmanna fyrirtækisins stríði
gegn lögum.
Eiríkur segir að ASÍ hafi sent
út tilkynningu í gær til þess að
gera fyrirtækið ótrúverðugt.
Hann hafi óskað eftir því að
hitta forsvarsmenn ASÍ í gær til
að benda þeim á tiltekin atriði
sem væru röng í þeirra máli en
því hafi verið hafnað.
Meðal þess sem deilt er um er
hvort mánaðarlaun verkamanna
séu undir þeim samningum sem
gilda hér á landi.
Halldór Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóri ASÍ, segir að
Pólverjarnir fái laun og kjör
langt undir samningum og aðbún-
aður þeirra sé ekki með viðun-
andi hætti. Nú sé verið að reyna
að leiðrétta kjör þeirra hjá þeim
fyrirtækjum sem þeir starfa hjá.
Samkvæmt einum samningnum
átti starfsmaðurinn að fá 120.000
fyrir 250 stunda vinnu á mánuði.
Sjá síðu 14/ - hb
Lögmaður Geymis ehf. vegna ummæla ASÍ um aðbúnað pólskra verkamanna:
Fur›ulegar ásakanir og ósannindi
ÞRIÐJUDAGUR
22. júní 2005 - 167. tölublað – 5. árgangur
Nýtt v
iðski
ptabl
að
með Frét
tablaðinu
alla miðvikudaga
Sögurnar • Tölurnar • Fólkið
Auglýsingasími 550 5000
Þverrandi virðing fyrir stjórn-
málamönnum
Jón Ormur Halldórsson segir að
stjórnmálamenn séu hvorki trúverðug-
ir talsmenn sígildra við-
miða né heldur traustvekj-
andi túlkendur hins al-
þjóðlega og almenna inn í
staðbundinn og sérstakan
heim.
UMRÆÐAN 16
Betri en ég átti von á
Þjálfari spútnikliðs Vals, Willum Þór
Þórsson, segir að liðið hafi leikið betur
en hann hafi átt von á fyrir
mót. Valur er með hæstu
meðaleinkunn allra liða í
Landsbankadeildinni í
einkunnagjöf
Fréttablaðsins.
ÍÞRÓTTIR 20
Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Unglingar í blaða-
mennsku skrifa
greinar í unglinga-
vinnunni.
UNGA FÓLKIÐ 24
Úr vísindatrylli í Kvöldþáttinn
Marteinn Þórsson kvikmyndagerðar-
maður framleiðir Kvöld-
þáttinn, sem sýndur
verður á sjónvarps-
stöðinni Sirkus. Hann
er þekktastur fyrir
mynd sína og vísinda-
tryllinn One Point 0.
FÓLK 32
St‡rir alfljó›legum
barnaskóla
BERTA FABER
Í MIÐJU BLAÐSINS
● nám ● ferðir
▲
Stjórnin falast eftir
stofnfé sparisjó›sins
Einhverjir stofnfjáreigendur sem ekki studdu núverandi stjórn Sparisjó›s
Hafnarfjar›ar hafa fengi› tilbo› í stofnfjárbréf sín. Tali› er a› núverandi
stjórn sé a› tryggja fla› a› gamla stjórnin nái ekki völdum á n‡.
VIÐSKIPTI Enn á ný er tekist á um
völdin í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Gengið er á stofnfjáreigendur í
sparisjóðnum um að kaupa af
þeim stofnfjárbréfin. Eigendur
stofnfjár í sjóðnum eru um 47
talsins. Mikil verðmæti liggja í
stofnfénu, sem er 15,5 milljónir
að uppfærðu nafnverði, og er
meðaleign hvers stofnfjáreig-
anda um 328 þúsund krónur. Talið
er líklegt að heildarverðmæti
stofnfjár í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar sé vel á fimmta tug millj-
óna króna virði á hvern stofnfjár-
eiganda. Nokkrir stofnfjáreig-
endur sem rætt var við í gær-
kvöldi staðfestu þetta en svo
virðist sem aðeins hafi verið rætt
við hluta stofnfjáreigenda um
kaup á bréfum þeirra.
Mikið hefur verið undir niðri í
sparisjóðnum eftir hallarbylting-
una í vor þegar hópur undir
forystu Páls Pálssonar, núverandi
stjórnarformanns, felldi gömlu
stjórnina. Þá sagði Páll að mark-
mið nýrrar stjórnar væri að
tryggja rekstur SPH, sem væri
sterk og góð fjármálastofnun.
Páll sá meðal annars tækifæri í
því að stækka hlutdeild SPH á
fyrirtækjasviði. Við það tilefni
sagði Páll: „Við boðum hugmynd-
ir um ákveðna útrás og ætlum að
stækka sjóðinn,“ og bætti því við
að höfuðstöðvar Sparisjóðsins
yrðu áfram í Hafnarfirði. Ekki
náðist í Pál í gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hyggst núverandi stjórn
styrkja tök sín á sparisjóðnum.
Sigurður G. Guðjónsson lögmað-
ur vann fyrir stjórnina í aðdrag-
anda hallarbyltingarinnar.
Sigurður G. neitaði í samtali við
Fréttablaðið að eiga nokkurn
þátt í söfnun bréfanna. Það
fékkst staðfest í gærkvöldi að
hvorki SPRON né Sparisjóður
vélstjóra, tveir af stærstu spari-
sjóðum landsins, eru meðal
kaupenda.
- eþa/bg
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
FREMUR HÆG NORÐLÆG EÐA
BREYTILEG ÁTT OG BJART VÍÐA
SYÐRA Skýjað með köflum og lítilsháttar
rigning norðanlands. VEÐUR 4
VEÐRIÐ Í DAG
ÚTLENDINGASTOFNUN Í SETUSTOFUNNI Fulltrúi frá Útlendingastofnun kannaði aðstæður pólsku verkamannanna og ræddi við þá í setu-
stofu húsnæðisins sem þeir fengu úthlutað til búsetu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
GIN LJÓNSINS Björgun telpunnar kom
mjög á óvart.
Skynugar skepnur:
Ljón bjarga
lítilli stúlku
ADDIS ABABA, AP Þrjú ljón björguðu
tólf ára gamalli eþíópískri telpu úr
klóm mannræningja sem hugðust
neyða hana í hjónaband.
Stúlkunni hafði verið haldið í sjö
daga og hún sætt barsmíðum. Þá
skárust ljónin í leikinn, ráku ill-
mennin á brott og biðu hjá telpunni
uns lögreglan kom á vettvang
nokkrum klukkustundum síðar.
Dýrafræðingar telja að ljónin
hafi að líkindum ruglað kjökri
stúlkunnar saman við mjálm unga
sinna og því hafi þau haldið yfir
henni hlífiskildi. ■
Menntaskólinn á Ísafirði:
Deilt um
námsmat
SKÓLAMÁL Enn er ósætti milli Ólínu
Þorvarðardóttur, skólameistara
Menntaskólans á Ísafirði, og Ingi-
bjargar Ingadóttur, enskukennara
við skólann, vegna einkunnagjafa,
en dómssátt náðist milli þeirra um
svipað mál í apríl.
Farið var yfir vorpróf Ingibjarg-
ar og henni tilkynnt að þau yrðu
send þriðja aðila til yfirferðar. Ingi-
björg hefur vísað málinu til lög-
manns Kennarasambandsins. Hún
segir að Ólína hafi ekki rætt við sig
áður en farið var yfir prófin. Ólína
segir málið mjög sorglegt en kýs að
tjá sig ekki um málefni einstakra
starfsmanna. - ss