Fréttablaðið - 22.06.2005, Side 63
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2005
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudag
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14
„Þetta er ein af kammeróperum
Brittens. Það skemmtilegasta
við þessa óperu er að hún fjallar
um yfirnáttúrulega hluti. Þetta
er afskaplega yndisleg drauga-
saga. Hún gerist á herragarði
einhvers staðar í heiminum þar
sem ýmis mál eru óútkljáð og ill-
ir andar og draugar takast á svo
að úr verður mikið sjónarspil,“
segir Halldór E. Laxness sem
leikstýrir óperunni Tökin hert
eftir breska tónskáldið Benja-
min Britten, sem verður frum-
sýnd í Íslensku óperunni 21.
október næstkomandi.
„Þetta er ein af þessum óper-
um sem gefur geysilega skemmti-
lega möguleika á túlkun. Við ætl-
um að reyna að fara mjög nútím-
legar leiðir og við munum nota nú-
tímafjöltækni til að skapa drauga-
gang í Íslensku óperunni,“ segir
Halldór.
Óperan var frumsýnd í Feneyj-
um árið 1954 en texti hennar er
eftir Myfanwy Piper og er byggð-
ur á smásögu Henry James, The
Turn of the Screw, sem kom út
árið 1898. Hljómsveitarstjóri
verður Kurt Kopecky og Snorri
Freyr Hilmarsson búninga- og
leikmyndahönnuður.
„Þetta er ein af perlum nútíma-
óperunnar og sem leikstjóri er
alltaf gaman að takast á við slík
verk en til þess að geta það þurf-
um við að hafa yfir hæfileikafólki
að ráða, sérstaklega í hlutverk
piltsins og stúlkunnar í óperunni.
Það vill svo til að við höfum tvo
söngvara sem henta afskaplega
vel í hlutverkin, þau Þórunni Örnu
Kristjánsdóttur og Ísak Ríkharðs-
son, sem er ellefu ára undrabarn.
Svo höfum við frábæra söngvara í
öðrum hlutverkum, það er eins
með óperuna og pókerinn, það
verður að hafa fullt hús til að geta
spilað leikinn,“ segir Halldór og
bætir því við að hér sé á ferðinni
sannkölluð draugasýning. ■
HALLDÓR E. LAXNESS „Við ætl-
um að reyna mjög nútímalega
leið í túlkun og við munum nota
nútíma fjöltækni til að skapa
draugagang í Íslensku óperunni,“
segir Halldór E. Laxness, leikstjóri
Tökin hert eftir Benjamin Britten,
sem frumsýnd verður í Íslensku
óperunni 21. október.
Ópera eftir Benjamin Britten sýnd í haust:
Sannköllu›
draugas‡ning
Heimkoma og blóm
„Ég er búinn að taka þátt í fjórum
sýningum í nokkrum löndum á
þessu ári og er mjög ánægður
komuna hingað heim til Íslands
því þetta er einungis í annað sinn
sem ég held sýningu hér á landi,“
segir Arnór G. Bieltveldt, sem
opnar sýningu í Sýningarsal Ís-
lenskrar Grafíkur, Tryggvagötu
17, laugardaginn 25. júní kl. 15.
Arnór býr rétt fyrir utan
Chicago í Bandaríkjunum þar sem
hann kennir myndlist í mennta-
skóla, en hann hefur ekki búið hér
á landi síðastliðin tuttugu ár.
Á sýningunni eru átta málverk
og ellefu teikningar og segir
Arnór þema þeirra vera blóm.
Sýning Arnórs stendur yfir til
10. júlí. ■
KVÖLDROÐI „Litanotkunin tengist Íslandi,
mér fannst ég vera kominn í íslenskt
landslag að kvöldi til. Ég kom hingað til
lands fyrir tveimur árum og málaði íslensk-
ar landslagsmyndir, en nú er ég farinn að
nota ímyndunaraflið meira en þá. Samt
eymir eftir af íslenska landslaginu sem ég
vinn enn þá með í huganum,“ segir Arnór
um málverkið.