Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 66
Nýjasta mynd HeatherLocklear og Hilary Duff, The Perfect Man, er víst ekki upp á marga fiska. Heather þykir vera ósannfærandi sem þreytt einstæð móðir og Hilary þykir allt of væmin til að myndin höfði til annarra en táningsstúlkna sem dáist að henni. Sami leikstjóri gerir þessa mynd og gerði Cind- erella Story sem Duff lék í fyrir ári síðan og þykir þessi bjóða upp á mikið af því sama, ef ekki af verri gæðum. Elton Johnhefur nú ákveðið að hjálpa Pete Doherty, kærasta Kate Moss, að yfirstíga eiturlyfjavanda- mál sín. Elton, sem er mikill aðdá- andi Petes, átti sjálfur við mjög opinberan eiturlyfjavanda að stríða þangað til hann sneri við blaðinu árið 1990 og hefur verið þurr síðan. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Elton John leggur öðrum stjörnum lið því Robbie Williams segir hann hafa komið sér í með- ferð og Donatella Versace segist standa í eilífðri þakkarskuld við Elton fyrir að ná sér frá eiturlyfja- djöflinum. Charlotte Churchsegist ekki vilja sýna of mikið af beru holdi - en aðeins vegna þess að hún nennir ekki að stunda líkamsrækt. „Britney og Beyoncé eru mjög flottar, en ég vil ekki vera eins og þær, ég vil ekki leggja á mig alla þá vinnu,“ sagði óp- erusöngkonan, sem nú ætlar að verða popp- stjarna. Í lokaþætti raunveruleikaþáttannaBritney & Kevin: Chaotic játaði Kevin Federline óendanlega ást sína á eiginkonu sinni, poppstjörnunni Britney Spears. „Hún er engillinn minn. Hún er allt sem ég hef viljað fá í lífinu, allt sem ein manneskja getur verið og meira,“ sagði Kevin. Oprah Winfrey er valdamesta stjarnan samkvæmt nýjum lista bandaríska viðskiptablaðsins Forbes. Blaðið reiknaði saman laun, vinsældir á netinu og um- fjöllun á forsíðu blaða, í sjónvarpi og útvarpi til þess að finna út hvaða stjarna væri valdamest. Næstur í röðinni er golfsnilling- urinn Tiger Woods og í þriðja sæti er Mel Gibson. Efsti Bretinn er söngvarinn Elton John en hann skýtur stjörnum á borð við Tom Cruise ref fyrir rass. Cruise er í tíunda sæti og í ellefta er Brad Pitt, en báðir verða þeir að lúta í lægra haldi fyrir Johnny Depp sem er í áttunda. Fjöldi íþrótta- stjarna er á listanum, svo sem Michael Jordan sem er í 17. sæti en David Beckham verður að láta sér 26. sætið nægja. Jennifer Ani- ston heldur greinilega vinsældum sínum þrátt fyrir endalok Friends en hún er í 37. sæti. Einnig er ljóst af listanum að þáttastjórn- endurnir David Letterman og Jay Leno eru valdamiklir, en aðrir áhugaverðir er höfundur Harry Potter bókanna, JK Rowling, hljómsveitin Metallica og Desperate Housewives. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 3.30 m/ísl. tali Sýnd kl. 5, 8 og 10 Sýnd í Lúxus kl. 5 B.i. 10 ára ★★★★★ Fréttablaðið ★★★★1/2 kvikmyndir.is ★★★★ MBL ★★★★ X-FM ★★★1/2 SJ Blaðið 1/2 ★★★1/2 Kvikmyndir.com Yfir 36.000 gestirAðsóknarmestamynd ársins Sýnd kl. 4, 6 og 8 Eru allir klárir í ævintýralega fyndið ferðalag? Það sem getur farið úrskeiðis, fer úrskeiðis! Frábær gamanmynd fyrir alla fjölskylduna sem fór beint á toppinn í USA Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 OG 10.20 Hinn eini rétti Hefur aldrei verið eins rangur! Frábær gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í Lúxus kl. 8 og 10.30 B.i. 14 ára Yfir 22.000 gestir! „Skotheld frá A-Ö“ „Afþreying í hæsta klassa“ ★★★ 1⁄2 K&F- XFM ★★★ Blaðið „Þrælgóð skemmtun“ ★★★ Ó.Ö.H. DV ★★★★ Þ.Þ. FBL SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára Breskur glæpatryllir eins og þeir gerast bestir. Svartur húmor, ofbeldi og cool tónlist með Cult, Starsailor, FC Kahuna og Duran Duran. Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch ★★★ ÓÖH DV Sýnd kl. 5,40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára „Skotheld frá A-Ö“ „Afþreying í hæsta klassa“ ★★★ 1⁄2 K&F- XFM ★★★ Blaðið „Þrælgóð skemmtun“ ★★★ Ó.Ö.H. DV ★★★★ Þ.Þ. FBL Yfir 22.000 gestir! ★★★ MBL Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.40 Hinn eini rétti Hefur aldrei verið eins rangur! Frábær gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. FRUMSÝNING ★★★★★ Fréttablaðið ★★★★1/2 kvikmyndir.is ★★★★ MBL ★★★★ X-FM ★★★1/2 SJ Blaðið 1/2 ★★★1/2 Kvikmyndir.com Yfir 36.000 gestirAðsóknarmestamynd ársins Sýnd kl. 6 og 9 B.i. 16 ára Yfirtaka á Sparisjóði Hafnarfjarðar Tvö hundruð þúsund breytast í 46 milljónir ,,Við ætlum fjórar vinkonur saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ S á k ið f i k di bö Hvað segja börnin um námskeið í Keramik fyrir alla? saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ Sumarnámskeið fyrir skapandi börn, eldri og yngri, keramik, teikning, málun - allt innifalið - litlir hópar. Aðeins 8500 kr. vikan! Skráning í Keramik fyrir alla, sími 552 2882, Laugavegi 48b. Sjá lýsingu: www.keramik.is Su arnámskeið Keramik fyrir alla Ennþá laust á vinsælu barna ámskeiðin. Ein vika, allt innifalið kr. 8900.- Bókið núna. Þetta er líklega mikilvægasta út- gáfa Coldplay. Verst af öllu er að þeir gera sér grein fyrir því. Ég var búinn að lesa heilmikið um hversu miklum tíma og peningum þeir eru búnir að eyða í þessa plötu. Að pilt- arnir væru að reyna allt til þess að búa til nýtt sánd í von um að þróa sig lengra. Svo þegar ég hlusta á þessa plötu hljómar þetta nákvæm- lega eins og Coldplay, nema með einstaka gamaldags hljóðgervla- sándi undir flestum lögunum. Ekki búast við glænýjum hljóm frá góð- kunnri hljómsveit. Coldplay hefur aldrei tekið stór stökk áfram, og mun líklegast aldrei gera. Þeir eru þekktir fyrir allt annað en að taka áhættu. Þeir eru hægt og rólega að færast nær hljómi Phils Collins á áttunda áratugnum, og gera sér ör- ugglega enga grein fyrir því. Á þessari plötu eru vissulega lög sem ég hef átt erfitt með að koma út úr höfðinu á mér. Lagasmíðar hafa alltaf verið sterkasta hlið Coldplay, og þar hafa þeir ekki misst hæfi- leika sína eða snerpu. Sérstaklega er annað lagið gott, What If, sem hefur allt efnisinni- hald til að verða stærsti slagari Coldplay fyrr og síðar. Persónulega finnst mér þó að það hefði mátt út- setja lögin á athyglisverðari hátt. Það hefði verið mjög auðvelt og hefði lyft plötunni upp á æðra plan í stað þess að skilja lögin eftir í með- almennskunni. Niðurstaða erfiðis Coldplay er nægilega góð til þess að standast kröfur meirihlutans, en þetta er engin klassík. Að hlusta á þessa plötu er svipað og að borða lasagna úr örbylgjuofninum, í stað þess að fá það ferskt á veitingastað á Sikiley. Þetta hreyfði ekki mikið við mér, en að sama skapi fór platan aldrei í taugarnar á mér. Coldplay er að uppgötva nýja tegund af lyftutón- list, sem fáir eiga eftir að kvarta yfir. Lyfturokk, þar sem málamiðl- anir ráða og þar sem passað er upp á að fáir verði móðgaðir. Þeir munu líklegast aldrei toppa hina stórkost- legu frumraun sína, en þeir munu líklegast ekki heldur gera plötu sem aðdáendum þeirra finnst slöpp, þótt þeir séu bragðlitlir og daufir. Birgir Örn Steinarsson Brag›gó›, en brag›dauf COLDPLAY: X & Y NIÐURSTAÐA: Coldplay kaupir sér nýtt hljóm- borð og gerir enn eina „örugga“ plötu. Full af grípandi lögum sem við eigum öll bókað eftir að fá hundleið á áður en útvarpsstöðvarnar hætta að spila þau. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN OPRAH WINFREY Það er ekki skrítið að Íslendingar hafi gert veður yfir umfjöllun Opruh um íslenskar konur. Oprah er valdamesta stjarnan með gífurlegt áhorf og mikil áhrif. 1. Oprah Winfrey 2. Tiger Woods 3. Mel Gibson 4. George Lucas 5. Shaquille O'Neal 6. Steven Spielberg 7. Johnny Depp 8. Madonna 9. Elton John 10. Tom Cruise 11. Brad Pitt 12. Dan Brown 13. Will Smith 14. David Letterman 15. Lance Armstrong 16. Michael Jordan 17. Michael Schumacher 18. Will Ferrell 19. Kobe Bryant 20. P. Diddy 21. Jay Leno 22. J.K. Rowling 23. Metallica 24. Jennifer Lopez 25. Desperate Housewives 26. David Beckham Valdamestu stjörnurnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.