Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 4
SJÁVARÚTVEGUR „Þessi niðurstaða er auðvitað vonbrigði. Við vorum að vonast til þess að niðurstaðan myndi miða eitthvað í áttina,“ sagði Árni Mathiesen sjávar- útvegsráðherra eftir að ljóst var að tillaga Japana á ársfundi Al- þjóðahvalveiðiráðsins um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnu- skyni hafði verið felld. Hann sagði aðspurður engar hugmyndir um annað en að Íslendingar sætu áfram í Alþjóðahvalveiðiráðinu. „Við getum ekki stundað hval- veiðar, hvort sem er vísindaveiðar eða veiðar í atvinnuskyni, nema vera innan einhverrar stjórnunar- stofnunar og Alþjóðahvalveiðiráð- ið er eina stjórnunarstofnunin sem býðst og því verður það svo,“ sagði Árni. Tillaga Japana um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnuskyni var felld með meirihluta atkvæða á fundinum í Suður-Kóreu en til þess að heimilt yrði að hefja veið- ar þurfti þrjá fjórðu hluta allra atkvæða fundarins. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, sagði að niðurstaðan kæmi honum ekki á óvart en dagskrá fundarins væri ekki tæmd og því væru menn enn að ræða ýmis atriði sem meðal annars snerust um hvalveiðar í atvinnuskyni. Auk þess hefði verið lagt hart að Japönum að hætta við áform sín um að tvöfalda kvóta veiddra hvala í vísindaskyni. „Viðræður standa enn yfir og verið er að ræða ýmis mál en þetta er eins og við var að búast og við verðum enn að sætta okkur við að veiðar eru aðeins heimil- aðar í vísindaskyni,“ segir Stefán. Engar hvalveiðar hafa verið stundaðar hér á landi í atvinnu- skyni frá því árið 1986 en nú standa yfir veiðar í vísindaskyni. Frá því að mælingar hófust árið 1948 hafa verið veiddir hér á landi tæplega sautján þúsund hvalir en aðeins nokkur hundruð þeirra eru veiddir í vísindaskyni og til stend- ur að þeim veiðum verði hætt árið 2006. hjalmar@frettabladid.is KAUP Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 65,8 66,2 119,75 120,33 79,55 79,99 10,68 10,74 10,12 10,18 8,60 8,65 0,60 0,60 96,26 96,84 GENGI GJALDMIÐLA 21.06.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 4 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR SVEITASTJÓRNARMÁL Hugmyndir kvikmyndafyrirtækis um upptökur í Krísuvík voru kynntar á fundi skipulags- og bygginganefndar Hafnarfjarðar í gær. Um er að ræða stríðsmynd, en einn af forsvars- mönnum fyrirtækisins er leikarinn og leikstjórinn Clint Eastwood. „Deilur standa núna aðallega um gróður, en búið er að haga tillögunni þannig að hún kemur ekki nálægt neinum fornminjum eða neinu slíku,“ segir Bjarki Jóhannesson, forstöðumaður skipulags- og bygg- ingasviðs Hafnarfjarðarbæjar. Skiptar skoðanir eru um þau áhrif sem upptökurnar gætu haft á gróð- ur í Krísuvík, sem er hluti af Reykjanesfólkvanginum. Um- hverfisnefnd Hafnarfjarðarbæjar skilaði neikvæðri umsögn um málið, en á fundinum voru aðrir aðilar sem staðhæfðu að upptökurn- ar hefðu mjög lítilvæg áhrif á gróðurlífið, sem auðveldlega yrði hægt að bæta fyrir. Málið verður tekið fyrir í skipu- lags- og byggingarráði í vikunni og líklega liggur niðurstaða fyrir í byrjun næstu viku, en endanleg ákvörðun liggur hjá bæjarráði Hafnarfjarðar. - at Sjávarútvegsrá›herra segir ni›urstö›una vonbrig›i Tillaga Japana um a› hafnar yr›u hvalvei›ar í atvinnuskyni var felld á ársfundi Alfljó›ahvalvei›irá›sins í gær. Sjávarútvegsrá›herra segir ni›urstö›una vonbrig›i en íhugar ekki úrsögn úr rá›inu. Sakamenn á Norðurlöndum: Framsal au›- velda› NORÐURLÖNDIN Dómsmálaráðherr- ar Norðurlandanna náðu sam- komulagi um ný samningsdrög um framsal sakamanna. Gert er ráð fyrir að málsmeðferð um framsal sakamanna milli Norður- landanna verði stytt og einfölduð. Ráðherrarnir voru á árlegum fundi, sem að þessu sinni var haldinn í Danmörku. Þar var einnig meðal annars rætt um mörk milli dómstóla á alþjóðavísu og innan lands og kom fram að það sætti vaxandi gagnrýni á þjóðþingum ríkjanna að alþjóða- dómstólar færu inn á valdasvið þeirra. ■ Maður keypti bíl: Dæmdur fyr- ir skjalafals DÓMSTÓLAR Fertugur maður hlaut í gær sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að falsa áritun þrítugrar konu á skuldabréf sem hann notaði til að kaupa bíl á bílasölu í Reykja- vík. Bréfið var gefið út í júní 2001 og konan óafvitandi komin í ábyrgð fyrir rúmar 1,3 milljónir króna. Ákæra var gefin út á hendur manninum í apríl síðastliðnum, en hann játaði fyrir dómi. Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir þjófnaði og til sekt- argreiðslna vegna fíkniefna- brots. Þrír mánuðir dómsins voru skilorðsbundnir til þriggja ára. - óká Bönnuð innan 18 www.heineken.is VEÐRIÐ Í DAG 200 þúsund króna sekt: Ók dópa›ur um borgina DÓMSTÓLAR Tvítugur maður hefur verið dæmdur til greiðslu 200.000 króna fyrir margvísleg fíkniefnabrot og fyrir að aka bifreið víða um Reykjavíkur- borg um miðjan október í fyrra undir áhrifum slævandi lyfs og fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti í þrjá mánuði og þarf að greiða máls- kostnað upp á rúmar 310.000 krónur. Upptæk voru gerð 4,8 grömm af hassi og 13,6 grömm af amfetamíni. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en horft var til þess að maður- inn játaði sakargiftir og var ekki með sakaferil sem hafði áhrif á refsingu. Þá stundar hann vinnu og sækir AA-fundi. - óká KRÍSUVÍK Bæjarráð Hafnarfjarðar ákveð- ur bráðum hvort Clint Eastwood og félögum verði leyft að taka upp kvik- mynd á svæðinu.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Eastwood í Krísuvík: Hafnfir›ingar tvístígandi ÁRNI MATHIESEN „Engar hugmyndir um annað en að við verð- um áfram í Alþjóða- hvalveiðiráðinu.“ Veiðum hætt 1954 Veiðar hófust 1974 Veiðum hætt 1959 Veiðum hætt 1989 163 8.888 292 70 61 2.574 2.885 2.200 6 Fjöldi veiddra hvala í vísinda- skyni á Íslandi 1986-2004 Fjöldi veiddra hvala í atvinnuskyni á Íslandi 1986-1995 Steypi- reyður Lang- reyður Sand- reyður Hrefna Lang- reyður Sand- reyður Búr- hvalur Hnúfu- bakur Hrefna Veiðum hætt 1982 Veiðum lýkur 2006 Veiðum hætt 1988 NIÐURSTAÐA ATKVÆÐAGREIÐSLU LIGGUR FYRIR Eftir að ljóst var að tillaga Japana um hvalveiðar í atvinnuskyni hafði verið felld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.