Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 8
HVERGI BANGIN Massouma al-Mubarak lét
hróp þingmanna ekki á sig fá.
Kona sver embættiseið:
Hróp ger›
a› rá›herra
KÚVÆT, AP Fyrsti kvenráðherra
Kúvæta sór embættiseið sinn í
fyrradag. Hróp voru gerð að
henni á meðan athöfnin stóð yfir.
Rúmur mánuður er síðan
kúvæskar konur fengu kosninga-
rétt og annar áfangi í jafnréttis-
baráttu þeirra náðist þegar
Massouma al-Mubarak settist í
stól ráðherra stjórnsýslumála.
Strangtrúaðir múslimar gerðu
hróp að al-Mubarak þegar hún sór
embættiseiðinn. Þeir telja hana
ekki kjörgenga þar sem hún var
ekki skráður kjósandi í ársbyrjun
eins og lög kveða á um. Þá höfðu
lög um kjörgengi kvenna hins
vegar ekki verið samþykkt. ■
1Hvaða merkisafmæli átti baráttukon-an Aung San Suu Kyi á dögunum?
2Hvar er ársfundur alþjóðahvalveiði-ráðsins haldinn?
3Hvað hefur Dagur Sigurðsson leikiðmarga landsleiki í handbolta?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR „Guðjón Arnar
Kristjánsson hefur ekki áttað sig á
því að árið 2003 breyttum við að-
ferðafræði við útreikning á hrygn-
ingarstofninum og hann er því að
bera saman epli og appelsínur,“
segir Björn Ævarr Steinarsson,
forstöðumaður veiðiráðgjafasviðs
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Björn segir því tölur Guðjóns um
hrygningarstofn þorsks alrangar,
en Guðjón Arnar hélt því fram í
Fréttablaðinu í fyrradag að Haf-
rannsóknastofnun hefði ofmetið
stofnstærð þorsksins í spám sín-
um. Björn segir stofnunina þvert á
móti ekki ofmeta stofnstærðina,
heldur hafi mat hennar staðist frá
árinu 2001. Guðjón Arnar fari hins
vegar með rangar tölur í grein
sinni og Björn nefnir til að mynda
að í skýrslu vorið 2003 komi fram
að veiðistofninn hafi verið um 914
þúsund tonn, en ekki 765 eins og
Guðjón haldi fram. Því hafi veiði-
stofninn verið í samræmi við
skýrsluna 2002, þar sem spáð var
að hann yrði 940 þúsund tonn.
„Það minnsta sem hægt er að
búast við frá mönnum í hans stöðu
er að farið sé rétt með. Með þessu
er vegið að okkar starfsheiðri,“
segir Björn Ævarr.
- ss
VERKALÝÐSFÉLÖG Þátttaka í stéttar-
félögum fer minnkandi og sífellt
lægra hlutfall af fólki á vinnumark-
aði er í stéttarfélögum. Gunnar Páll
Pálsson, formaður VR, segir að á
öðrum Norðurlöndum dragi úr þátt-
töku í stéttarfélögum, þar sé komin
samkeppni milli stéttarfélaga og
lággjaldastéttarfélaga.
„Þau eru einfaldari og bjóða
minni þjónustu, eru jafnvel án
kjarasamnings. Ég hef heyrt dæmi
um mánaðargjald upp á 330 danskar
krónur meðan hefðbundið félag
býður aðild fyrir 900 krónur á mán-
uði,“ segir hann.
Félagi í lággjaldastéttarfélagi
fær meðal annars lögfræðitrygg-
ingu fyrir aðstoð vegna ágreinings
við vinnuveitendur og boðið er upp
á fjölbreyttari atvinnuleysistrygg-
ingar.
Gunnar Páll segir að íslensku
stéttarfélögin búi sig undir aukna
samkeppni og að lággjaldastéttar-
félög geti farið að ryðja sér til rúms
hér á landi. „Það gæti gerst að fólk
vildi í auknum mæli standa utan
stéttarfélaga. Þá er eitt ráð að bjóða
upp á lægri félagsgjöld,“ segir
hann. -ghs
Lúxemborgarar:
Kjósa um
sáttmálann
BRUSSEL, AP Þrátt
fyrir óvissuna sem
ríkir um þessar
mundir í Evrópu-
sambandinu ætla
Lúxemborgarar að
halda sínu striki
og halda þjóðar-
atkvæðagreiðslu
um stjórnarskrár-
sáttmála ESB 10.
júlí næstkomandi.
Allmörg ESB-ríki hafa ákveðið
að fresta staðfestingu sáttmálans en
Lúxemborgarar og Pólverjar ætla
engu síður að halda þjóðaratkvæða-
greiðslur.
Skoðanakannanir sýna að and-
stæðingum sáttmálans hefur heldur
vaxið fiskur um hrygg. Jean-Claude
Juncker forsætisráðherra hefur
þegar lýst því yfir að hann muni
segja af sér hafni landsmenn sátt-
málanum. ■
LANDHELGISGÆSLAN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
HEILBRIGÐISMÁL Undirbúningur er
hafinn að flutningi Heilsugæslunn-
ar í Reykjavík úr húsnæði Heilsu-
verndarstöðvarinnar við Baróns-
stíg, að sögn Guðmundar Einarsson-
ar forstjóra. Þarfalýsing fyrir nýtt
húsnæði er á vinnuborðinu, en það
er flókið verk og umfangsmikið.
Samkvæmt nýlegum samningi
sem fulltrúar ríkis og borgar gerðu,
verður gamla Heilsuverndarstöðin
seld á almennum markaði. Þar
með þurfti að hefja leit að nýju
húsnæði fyrir Heilsugæsluna.
„Þetta húsnæði hentar okkur í
sjálfu sér alls ekki illa,“ segir
Guðmundur. „En það er sam-
eign ríkis og borgar og
þetta er
n i ð u r -
s t a ð a
þeirra, sem
gengur yfir
okkur eins og
aðrar ákvarð-
anir sem
teknar eru.“
Guðmund-
ur segir að
ekki geti
heitið að leit sé hafin að nýju hús-
næði. Mikil starfsemi sé í Heilsu-
verndarstöðinni og réttan undirbún-
ing þurfi áður en það verði hægt.
„Vinna þarf nýja þarfalýsingu
fyrir starfsemina og rökstyðja
hana. Við vinnum þetta verk vand-
lega og gefum okkar tíma í það,
enda veit ég ekki til þess að liggi
sérstaklega á.“
Jafnframt þessu er unnið að
því að finna miðstöð heimahjúkr-
unar við Grensásveg nýtt hús-
næði, að sögn
Guðmund-
a r .
Það kemur til af því að hún er í
leiguhúsnæði sem nú hefur verið
selt. Nýi eigandinn hefur þörf fyrir
húsnæðið til eigin nota.
„Kaup á nýju húsnæði fer eftir
reglum ríkisins,“ sagði Guðmundur.
„Miðstöðin hefur verið þarna frá
upphafi. Við höfum gert þarfalýs-
ingu fyrir starfsemi hennar. Þegar
það hefur fengið nauðsynlega um-
fjöllun í heilbrigðisráðuneytinu og
fjármálaráðuneytinu verður það
væntanlega auglýst undir þeim skil-
greiningum um gerð og staðarval
sem í lýsingunni eru. Það er ekki
ákveðinn tími á því hvenær við
þurfum að losa húsnæðið, en við
viljum ekki tefja fyrir öðrum notum
á því meira en óhjá-
kvæmilegt er, þannig að
við vinnum þetta eins
hratt og við getum.“
jss@frettabladid.is
JEAN-CLAUDE
JUNCKER
M
YN
D
/A
P
HEILSUVERNDARSTÖÐIN Ríki og
borg hafa ákveðið að selja gömlu
Heilsuverndarstöðina, svo Heilsu-
gæslan verður að flytja.
lytja ver›ur Heilsu-
gæsluna á brott
Hafinn er undirbúningur a› flutningi Heilsugæslunnar úr Heilsuverndarstö›-
inni vi› Barónsstíg. fiá flarf a› flytja mi›stö› heimahjúkrunar vi› Grensásveg.
fia› er leiguhúsnæ›i sem nú hefur veri› selt og ver›ur teki› til annarra nota.
BJÖRN ÆVARR STEINARSSON Björn segir formann Frjálslynda flokksins bera saman epli
og appelsínur.
HRYGNINGARSTOFN ÞORSKS
Tölur í þúsund tonnum
Spá Tölur Rauntölur
Guðjóns A.
2002 575 285 279
2003 339 265 374
2005 492 262 530*
Heimild: Hafrannsóknastofnunin
*Reiknað út miðað við eldri aðferðir
Grein formanns Frjálslynda flokksins:
Vegi› a› starfshei›ri
Dagskrárstjóri Rásar 2:
A›eins einn
umsækjandi
RÚV Sigrún Stef-
ánsdóttir sótti ein
um laust starf dag-
skrárstjóra Rásar
2 og landshluta-
stöðva Ríkis-
útvarpsins, en um-
s ó k n a r f r e s t u r
rann út á sunnu-
dag. Önnur um-
sókn barst en var
dregin til baka.
Sigrún hefur
undangengin ár verið yfirmaður
upplýsingadeildar Norrænu ráð-
herranefndarinnar og Norðurlanda-
ráðs í Kaupmannahöfn. Sigrún á að
baki um tuttugu ára starf hjá Ríkis-
útvarpinu við frétta- og dagskrár-
gerð.
Útvarpsráð fær umsóknina til
afgreiðslu en ráðið kemur næst
saman í ágúst. - bþs
SIGRÚN STEFÁNS-
DÓTTIR Eini um-
sækjandinn um
stöðu dagskrár-
stjóra Rásar 2.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
GUNNAR PÁLL PÁLSSON Formaður VR telur að lággjaldastéttarfélög geti farið að ryðja sér
til rúms hér á landi eins og er að gerast í nágrannalöndunum. VR veltir því fyrir sér
hvernig félagið eigi að bregðast við aukinni samkeppni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR:
Ód‡r stéttarfélög í samkeppni
ÞYRLAN SNÖGG Í FLUG Þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-LIF,
sótti í gærdag til Grundarfjarðar
hjartveikan sjúkling sem þurfti
að komast með hraði á Landspít-
alann við Hringbraut. Hjúkrunar-
fræðingur á Grundarfirði óskaði
eftir flutningnum klukkan 14.22,
en svo vel vildi til að þyrlan var
við æfingar á Breiðafirði þegar
kallið barst. Þyrlan lenti í
Reykjavík um klukkan 15.30.