Fréttablaðið - 22.06.2005, Side 10
FAGNAR FLUGRÉTTINDUM Hanadi Zakaria,
fyrsta sádi-arabíska konan sem fær at-
vinnuflugmannsréttindi, brosir hér til ljós-
myndara í flugskólanum Mideast Aviation
Academy í Amman í Jórdaníu.
10 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Kortanúmerum stolið í Bandaríkjunum á allt að hálfs árs tímabili:
Hundru› íslenskra korta í hættu
ÞJÓFNAÐUR Talið er að tölvuþrjótar í
Bandaríkjunum hafi komist yfir
greiðslukortanúmer í allt að hálft
ár áður en lokað var fyrir lekann. Á
þriðja hundrað íslensk kortanúmer
komust í hendur þjófanna og þurfa
eigendur þeirra að fá ný kort.
Lekinn var rakinn til Card-
Systems Solutions í Bandaríkjun-
um, en fyrirtækið sérhæfir sig í af-
greiðslu greiðslubeiðna fyrir fjár-
málastofnanir. Alls er talið að
þjófarnir hafi haft aðgang að um 40
milljónum kortanúmera frá helstu
greiðslukortafyrirtækjum.
Bergþóra Karen Ketilsdóttir,
forstöðumaður upplýsingatækni-
sviðs Mastercard, segir búið að
loka kortum sem talið er að
þjófarnir hafi náð. „Við vorum búin
að uppgötva 16 kort með okkar
eigin svikavakt, en síðan fengum
við upplýsingar um að þau væru 50
í allt og lokuðum þeim,“ segir hún.
„Kort frá VISA Íslandi sem
tengjast málinu eru 179 talsins, en
þar af er talsvert af kortum sem
búið var að loka,“ segir Þórður
Jónsson, sviðsstjóri hjá VISA Ís-
landi. -óká
Deilurnar í Garðasókn:
Engar sættir í nánd
PRESTSDEILA „Ég sagði sem var, að
sættir hefðu verið reyndar og
ekki tekist,“ segir Matthías G.
Pétursson, formaður Garða-
sóknar, en áfrýjunarnefnd þjóð-
kirkjunnar hefur sent málsaðil-
um í deilumálinu í Garðasókn
sáttatillögu. Sóknarpresturinn,
Hans Markús Hafsteinsson,
lýsti sig reiðubúinn til sátta en
gagnaðilar hans ekki.
„Ég svaraði erindinu þannig
fyrir hönd sóknarprestsins að
hann væri reiðubúinn til þrautar
að ná sáttum sem allir gætu
unað við og hann rétti þannig
fram sáttahönd en því höfnuðu
hinir,“ segir Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður Hans
Markúsar.
Lögmenn sóknarformannsins
og varaformanns sóknarinnar
auk djákna og prests hafa hafn-
að sáttatillögu Páls Sigurðsson-
ar, formanns áfrýjunarnefndar-
innar. Er því búist við að áfrýj-
unarnefndin kveði
upp úrskurð sinn í
málinu á næstu
dögum en Hans
Markús hefur þeg-
ar tilkynnt að hann
muni ekki una úr-
skurði áfrýjunar-
nefndarinnar um
tilfærslu í starfi.
-hb
FLUGSAMGÖNGUR Lenging Akur-
eyrarflugvallar um 460 metra er
forsenda þess að hægt sé að
hefja arðvænlegt millilandaflug
til og frá Akureyri, segir Njáll
Trausti Friðbertsson, viðskipta-
fræðingur og flugumferðar-
stjóri. Í Samgönguáætlun 2005 til
2008 er ekki gert ráð fyrir leng-
ingu Akureyrarflugvallar heldur
einungis að gerð verði könnun á
þörf fyrir lengingu flugbrautar-
innar ásamt fyrstu kostnaðará-
ætlun. „Lengingin kostar 300 til
350 milljónir króna, svipað og tíu
til fimmtán kílómetra langur
vegaspotti,“ segir Njáll Trausti.
Á fjölmennum kynningar-
fundi á Hótel KEA á Akureyri í
gær kynnti Njáll Trausti niður-
stöður verkefnis sem hann hafði
umsjón með, fyrir hönd Rann-
sóknastofnunar Háskólans á
Akureyri, um millilandaflug frá
Norður- og Austurlandi til
áfangastaða í Evrópu. Að hans
mati er Akureyrarflugvöllur
vannýttur og nauðsynlegt að
lengja hann til að skapa forsend-
ur fyrir aukinni nýtingu. „Akur-
eyrarflugvöllur fullnægir öllum
helstu kröfum flugrekstraraðila
öðrum en flugbrautarlengd. Með
því að lengja völlinn í 2.400
metra munu fleiri tegundir flug-
véla geta notað hann og um leið
yrði völlurinn hentugri fyrir
lággjaldaflugfélög,“ segir Njáll
Trausti.
Kaupfélag Eyfirðinga kostaði
rannsóknarverkefnið og segir
Andri Teitsson, framkvæmda-
stjóri KEA, að félagið sé tilbúið
að leggja fram umtalsverða fjár-
muni svo hægt verði að ráðast í
lengingu flugbrautarinnar sem
fyrst. „Við stefnum á að ræða við
samgönguyfirvöld og þá fyrst
kemur í ljós hvort hægt er að
flýta framkvæmdum og hversu
mikla fjármuni KEA er tilbúið að
leggja í verkefnið,“ segir Andri.
Grænlandsflug hélt uppi
beinu flugi tvisvar í viku á milli
Akureyrar og Kaupmannahafnar
á árinu 2003 og segir Magnús Þór
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarð-
ar, að 6.640 manns hafi nýtt sér
þjónustuna: „Flugið var ákveðið
með stuttum fyrirvara og nýting-
in var slök til að byrja með en óx
jafnt og þétt og var komin í um
70 prósent þegar Grænlandsflug
ákvað snögglega að hætta
fluginu.“ kk@frettabladid.is
Forstjóri Neytendastofu:
Níu sækja
um stö›una
NEYTENDUR Níu sóttu um starf for-
stjóra Neytendastofu, átta karlar
og ein kona.
Þau eru Egill Heiðar Gíslason,
Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ingólf-
ur Oddgeir Georgsson, Jóhannes
Þorsteinsson, Jón Egill Unndórs-
son, Jón Magnússon, Leo J.W.
Ingason, Páll Haraldsson og
Tryggvi Axelsson.
Neytendastofa er ný ríkis-
stofnun. Hún á að gegna eftirlits-
hlutverki á sviði neytendamála,
ásamt því að vinna að stefnumót-
un og annast útgáfu upplýsinga
um þau mál. Ráðið verður í
stöðuna frá 1. júlí. ■
BERGÞÓRA KAREN KETILSDÓTTIR Búið er
að loka öllum greiðslukortum sem grunur
lék á að hefðu komist í hendur tölvuþrjóta
í Bandaríkjunum. Hún hvetur fólk til að
fylgjast vel með greiðsluyfirliti sínu.
Morðhótun
rekin ofan
í sendiherra
Jón Baldvin
Hannibalsson
dæmdur í
Héraðsdómi
Reykjavíkur
SPÁNN
RÁÐIST GEGN MAFÍÓSUM
Spænska lögreglan handtók um
helgina 28 manns frá fyrrverandi
Sovétlýðveldum sem grunaðir
eru um að standa fyrir skipu-
lagðri glæpastarfsemi á vinsæl-
um ferðamannastöðum í landinu.
Rassían var gerð á Costa del Sol,
Alicante og í Barcelona.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
M
YN
D
A
P
ALFREÐ ÞORSTEINSSON Í Elliðaánum á
opnunardegi á mánudag.
Borgarstjórn:
Alfre› forseti
SVEITARSTJÓRNARMÁL Alfreð Þor-
steinsson var kjörinn forseti borg-
arstjórnar í gær. Tekur hann við
forsetastarfinu af Árna Þór Sig-
urðssyni, sem gegnt hefur starfinu
frá árinu 2002, en í leyfi hans
aðundanförnu hefur Stefán Jón
Hafstein gegnt starfi forseta borg-
arstjórnar. Alfreð hefur átt sæti í
borgarstjórn fyrir hönd Reykja-
víkurlistans frá árinu 1994 en fyrst
tók hann sæti í borgarstjórn fyrir
Framsóknarflokkinn árið 1971 og
sat þá til ársins 1978. -hb
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Niðurhal dótturinnar:
Mó›ir fer í
fangelsi
BRETLAND Emily Price, tánings-
stúlka frá Cheltenham á Englandi,
hefur heldur betur komið móður
sinni í klandur með því að hlaða
niður tónlist með vinsælum hljóm-
sveitum á tölvu sína. Þar sem móð-
irin, Sylvia að nafni, er ábyrgðar-
maður stúlkunnar hefur henni verið
send sekt upp á hálfa milljón króna
fyrir athæfi dótturinnar.
„Ég veit ekki hvernig ég get
aflað þessara peninga. Ég verð að
fara í fangelsi af því að ég á ekki
svo mikið fé,“ sagði Sylvia Price í
viðtali við The Guardian.
Vegna ólöglegs niðurhals verða
tónlistarmenn af talsverðum tekj-
um og því tekur lögreglan á slíkri
iðju af mikilli hörku. ■
Kaupfélagi› vill styrkja
lengingu Akureyrarflugvallar
Til a› koma á hagkvæmu millilandaflugi til og frá Akureyri flarf a› lengja flugvöllinn. Kostna›urinn er
talinn vera 300 til 350 milljónir króna og er KEA tilbúi› a› leggja fram umtalsver›a fjármuni svo hægt
ver›i a› rá›ast í framkvæmdir hi› fyrsta.
VÍDALÍNSKIRKJA Í GARÐASÓKN Úrskurðar-
nefnd þjóðkirkjunnar kveður upp úrskurð
sinn á næstu dögum í deilu-
málinu í Garða-
sókn.
Þau mistök urðu í blaðinu þegar
fjallað var um framúrkeyrslu
ráðuneyta úr fjárlögum 18. júní
síðastliðinn að talað var um
sýslumannsembættið í Keflavík
þegar átt var við sýslumanns-
embættið á Keflavíkurflugvelli.
Rangt var farið með nafn viðmæl-
anda í grein Fréttablaðsins um
bensínverð í gær. Konan heitir Sig-
ríður Böðvarsdóttir.
Rangt var farið með nafn sjón-
varpsstjóra Skjás eins, Magnúsar
Ragnarssonar, í forsíðufrétt Frétta-
blaðsins í gær.
LEIÐRÉTTING
FJÖLMENNUR KYNNINGARFUNDUR Um 100 manns mættu á fundinn og þurfti að stækka
salinn þar sem fundurinn var haldinn og bæta við borðum og stólum til að allir fundar-
gestir kæmust fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K