Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 12

Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 12
12 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Haffræði- og sjómæl- ingaskip í eigu franska sjóhersins liggur í Reykjavíkurhöfn meðan áhöfnin hvílist og teknar eru nýjar vistir. Skipið er mjög nútímalegt og er eitt afkastamesta skip í heimi hvað varðar sjó- mælingar. Berenguer skipstjóri leyfði blaða- mönnum að skoða skipið á dögunum. Hann baðar út öngum eins og Frökkum er einum lagið þegar hann lýsir stærð og getu haf- fræði- og sjómælingaskipsins Beautemps-Beaupré. Philippe Berenguer skipstjóra er mikið í mun að sannfæra fólk um ágæti skips síns enda er það eitt afkasta- mesta skip í heimi hvað varðar sjómælingar. Beaupré er mjög nútímalegt haffræði- og sjómælingaskip í eigu franska sjóhersins og liggur nú við landfestar í Reykjavíkur- höfn. Það hefur verið lengi á sjó við ýmsar sjómælingar og rann- sóknir og því kærkomið fyrir áhöfn skipsins að hvíla lúin sjó- mannsbein á Íslandi meðan safn- að er vistum. Berenguer er annar tveggja skipstjóra sem hafa stjórnina á Beaupré undir höndum. Áhafnirn- ar eru tvær og vinnur hvor um sig í fjóra mánuði í senn en skipið er á ferðinni allt árið um kring. Áhöfnin samanstendur af um 30 sjóliðum og 20 vísindamönnum en skipið hefur tvennan tilgang; annars vegar að stunda sjómæl- ingar og hins vegar að safna gögn- um til að athuga áhrif sjós og and- rúmslofts á veður. Þar sem haf- straumar liggja um alla jörðina ferðast skipið um allan heim. Skipið er vel útbúið til hafrann- sókna og hefur því verið fengið til að leysa af hendi ýmis verkefni á alþjóðavettvangi. Til dæmis var það fengið til Indónesíu til að athuga afleiðingar jarðskjálftans við flekaskilin. Þá var það fyrir stuttu fengið til þess að leita að svarta kassa flugvélar sem fórst á hafi. Fjórar tilraunastofur eru um borð og er bæði hægt að rannsaka sýni um borð en einnig hægt að frysta þau og flytja á land til frek- ari rannsókna. Berenguer segir lítinn frítíma skapast á skipinu enda sé áhöfnin fáliðuðu miðað við stærð skipsins. Þegar menn eru ekki að sinna skylduverkum séu þeir í þjálfun og til dæmis gangi kokkurinn í ýmis önnur verk en í eldhúsinu. Þar sem menn eru fjarri fjöl- skyldum sínum í fjóra mánuði í senn er það kannski af hinu góða að frítíminn sé sem minnstur. Berenguer gerir þó lítið úr vinnu- tímanum. „Þetta er líf hermanns- ins,“ segir hann, sem ætlar þó að leyfa sér að slaka á meðan hann er hér á landi. Mestan áhuga hefur hann á að stunda sundlaugarnar en Bláa lónið og gullni hringurinn eru þó einnig á dagskrá. solveig@frettabladid.is Guðmundur Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni, er ánægður með þá niðurstöðu Al- þjóða hvalveiðiráðsins að fella tillögu Japana um að leyfa takmarkaðar veið- ar í atvinnuskyni. „Mér finnst að það megi alls ekki leyfa hvalveiðar,“ segir Mummi og finnst sorglegt að litið sé á það sem tap mannsins hvað hvalurinn étur mikið. „Þetta yfirskin „vísindaveið- ar“ er bara dulbúnar hvalveiðar,“ segir hann og finnst að Íslendingar verði að finna aðra lausn á fjármálum sínum. Mummi er hræddur um að það endi á því að hvalir verði veiddir. „Þegar tog- ararnir fara að koma hálftómir heim byrjar firringin. Við stefnum í að blóð- mjólka þessa jörð og á endanum verða þeir drepnir,“ segir hann og telur mikið meðvitundarleysi ríkja hjá mann- kyninu gagnvart náttúrunni. MUMMI Í GÖTUSMIÐJUNNI Vísindavei›ar eru dulbúnar hvalvei›ar HVALVEIÐAR Í ATVINNUSKYNI SJÓNARHÓLL Það var gott að komast af stað á mánudaginn eftir langan og strangan undirbúning. Upphitunin við Sjónarhól og hlý hvatningarorð hleyptu í okkur eldmóði og ánægjulegt að fá fylgd vina og vandamanna fyrsta spölinn. Allt gekk vel í fyrstu eða þar til Lína langsokkur heltist úr lest- inni en tuskubrúðan Lína er með í för. Henni hafði verið komið fyrir í beltisstreng Bjarka og í einhverju skrefinu hrökk hún upp úr án þess að við tækjum eftir því. Þegar upp komst um óhappið snéri Tómas við og fann hana í vegarkantinum og verður hennar tryggilegar gætt hér eftir. Fyrsta daginn gengum við að Litlu kaffistofunni og héldum þaðan í gærmorgun eftir kaffi og pönnukökur. Við gengum sem leið lá upp Hellisheiðina og niður gömlu Kambana. Þar var engin umferð og þægilegt að ganga. Við komum svo í Hvera- gerði um miðjan dag í gær. Ein og ein blaðra hefur skotið upp kollin- um á tánum á okkur en það er ekkert sem ekki má plástra yfir. Bjarki hefur ákveðið að bjóða hár sitt til sölu og er það falt þeim sem hæst býður. Ágóðinn rennur til Sjónarhóls og koma peningarnir sér vel á þeim bæ. Ekki er víst að greiningadeildir bankanna telji þetta góða fjárfestingu en við erum vissir um að svo sé og færi þeim sem kaupir ómælda ánægju. Hafir þú áhuga getur þú haft samband við okkur í síma 695- 7010. Í dag göngum við frá Hveragerði að Vegamótum. Bestu kveðjur, Bjarki og Guðbrandur. Lína stakk af og hári› hans Bjarka til sölu HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI nær og fjær „Albufeira greip mig strax. Bærinn virka›i á mig í fyrstu líkt og Pat- reksfjör›ur flar sem ég bjó einu sinni og lei› mjög vel.“ LINDA FREITAS VEITINGAMAÐUR Í PORTÚGAL Í MORGUNBLAÐINU. „Ég held a› fla› séu ekki háar sektir vi› flví a› skreyta styttur bæj- arins flví flá flyrfti nú a› fara a› sekta allar dúfurnar sem eru alltaf a› skíta á flær.“ SALVÖR GISSURARDÓTTIR FEMÍNISTI Í FRÉTTABLAÐINU. OR‹RÉTT„ “ Íþróttahúsin í Vesturbyggð: Klif, Bylta e›a Uppsalir Íbúar Vesturbyggðar eiga nú það erfiða verk fyrir höndum að velja nafn á nýrisin íþróttamannvirki á Bíldudal og Patreksfirði. Til að létta sér verkið greip bæjarstjórn til þess ráðs að leita inn- blásturs hjá almenningi, enda hafa þorpin alið af sér and- ans menn á borð við Jón úr Vör og Jón Kr. Ólafsson. Nú hefur bæjarstjórn valið út fjögur nöfn fyrir hvort hús sem fólki gefst kostur á að kjósa um á Netinu. Á Patreksfirði koma nöfn- in Klif, Brattahlíð, Miðvangur og Íþróttamiðstöð Patreksfjarðar til greina en á Bíldudal koma til greina Byltan, Uppsalir, Kistan og Deiglan. Lýðræðið verður þó ekki þráðbeint því bæjarstjórn mun hafa niðurstöður kosninganna til hliðsjónar þegar endanlegt nafn verður valið. Hægt er að greiða atkvæði á vefsíðunum patreks- fjordur.is og arnfirdingur.is en kosningunni lýkur á miðnætti í kvöld. -bs Fljótandi tilraunastofa SKIPSTJÓRINN Philippe Berenguer lýsir því af ákafa hvernig vísindarannsóknum er háttað um borð í Beautemps-Beaupré. BEAUTEMPS-BEAUPRÉ Franski fáninn blakti við hún þegar skipið lagðist að bryggju í Reykjavík. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.