Fréttablaðið - 22.06.2005, Síða 20
Alþjóðaskólinn í Reykjavík
tekur nú á móti umsóknum
fyrir næsta skólaár. Í skólan-
um gefst íslenskum og erlend-
um krökkum tækifæri á að
nema í alþjóðlegu umhverfi.
Alþjóðaskólinn í Reykjavík er
einkarekinn grunnskóli innan
Víkurskóla í Reykjavík sem býður
upp á alþjóðlega menntun fyrir
krakka á aldrinum fimm til tólf
ára. Skólinn hefur nýlokið sínu
fyrsta starfsári og er um þessar
mundir að taka á móti umsóknum
fyrir næsta skólaár. Berta Faber,
skólastjóri Alþjóðaskólans, er
ánægð með starf vetrarins og segir
að samstarfið við Víkurskóla hafi
gengið vel.
„Alþjóðaskólinn byrjaði sem
samstarfsverkefni milli Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur, banda-
ríska sendiráðsins og Víkurskóla. Í
vetur voru nemendur átta talsins
og komu úr ýmsum áttum. Skólinn
er til dæmis hugsaður fyrir börn
þeirra sem koma til að vinna tíma-
bundið hér á landi, til dæmis í
sendiráðunum eða hjá ýmsum al-
þjóðafyrirtækjum. Þetta eru þá oft
börn sem búa tímabundið hér á Ís-
landi en munu ekki koma til með að
setjast hér að til frambúðar. Þá
getur verið gott fyrir þau að koma
inn í svona alþjóðlegt umhverfi í
stað þess að vera dembt beint út í
íslenska skólakerfið. Alþjóðaskól-
inn hentar líka vel sem undirbún-
ingur fyrir íslenska krakka sem
eru að flytja til útlanda og eins
fyrir börn sem hafa búið erlendis
og vilja til dæmis halda enskunni
við,“ segir Berta.
Alþjóðaskólinn byggir á alþjóð-
legu líkani og alþjóðlegar
námskrár eru notaðar til að skipu-
leggja skólastarfið. Allt bóklegt
nám í skólanum fer fram á ensku
en verklegt nám eins og mynd-
mennt og handavinna fer fram inn-
an Víkurskóla. Berta bendir á að
mikið sé lagt upp úr móðurmáls-
kennslu og þótt íslensk börn taki
þátt í þessu alþjóðlega námi fái þau
líka kennslu í sínu móðurmáli.
Eins og stendur er um tveggja
ára þróunarverkefni að ræða og
þegar þeim reynslutíma er lokið
verður tekin ákvörðun um framtíð
skólans. Berta segir að verkefnið
sé mjög skemmtilegt og margt sé
hægt að gera til að efla skólann enn
frekar. „Okkur langar til dæmis að
taka inn eldri nemendur í framtíð-
inni. Eins og stendur er nám af
þessu tagi ekki í boði fyrir elstu
bekki grunnskólans en það væri
gaman að bæta úr því,“ segir
Berta. Hún telur að eftirspurn eftir
námi af þessu tagi fari vaxandi,
ekki síst í tengslum við uppbygg-
ingu háskólanna og útþenslu ís-
lenskra fyrirtækja sem fá hingað
erlenda starfsmenn til tímabund-
inna starfa. thorgunnur@frettabladid.is
Agi
Besta leiðin til að læra þau fög sem manni leiðast er að beita sig aga. Taka frá
reglulegan tíma til að sinna þessu fagi og klára verkefnin, hvort sem manni lík-
ar betur eða verr. [ ]
NÁMFLOKKAR REYKJAVÍKUR - FRÍKIRKJUVEGUR 1, 101 REYKJAVÍK - SÍMAR: 5512992 / 5514106 - Kt. 480269-7489 - FAX: 5629408
Netfang: nfr@namsflokkar.is Heimasíða: http://www.namsflokkar.is
Sumarskóli 2005
Summerschool
Íslenska fyrir útlendinga/Courses in Icelandic
stig 1 – 4 / level 1 – 4
Sta›ur: Hagaskóli, Mjódd.
Skráning / fullor›nir: 06. – 28. júní
Skráning/ börn: til 06. júní.
Stö›upróf : 23. og 27. júní kl. 17 - 19
Skólagjald: kr. 17.000.-
Morgunkennsla fyrir fullor›na:
11. -28. júlí, kl. 920- 1200 alla virka daga .
Gæsla fyrir börn flátttakenda er í bo›i á
morgnana.
Kvöldkennsla fyrir fullor›na:
04.–28.júlí, flrjú kvöld í viku: mánudaga,
flri›judaga og fimmtudaga kl. 18 - 21.
Námskei› fyrir börn og unglinga
6 - 15 ára (1.-9. bekkur):
11. -28. júlí alla virka daga.
Námskei›in eru ókeypis fyrir börn.
Íslenskukennsla:kl.0900-1200
Tómstundastarf: fyrir 6 – 12 ára,
(leikir, vettvangsfer›ir og fl) kl. 1200-1600.
Takmarka›ur fjöldi barna kemst a› í
tómstundastarfi› og munu fleir ganga fyrir sem
ekki hafa teki› flátt í flví á›ur. fieir sem ekki
komast a› ver›a látnir vita me› fyrirvara, einnig
er bent á önnur tómstundanámskei› á vegum
ÍTR.
Place: Hagaskóli, Mjódd.
Enrollment / adults: June 06 th -28 th
Enrollment / children: until June 06 th
Placement test:June 23rdand 27 th at 17 – 19
Schoolfee: kr. 17.000.-
Morningclasses for adults:
July 11t h - 28t h at 920 - 1200 Mondays
through Fridays. Childcare is provided in the
mornings.
Evening classes for adults:
July 04th-28th three evenings a week:
Mondays, Tuesdays, and Thursdays at 18 -
21.
Courses for children, ages 6 to 15
(grade 1-9):
July 11 th -28 th Mondays through Fridays.
These courses are free of charge.
Courses in Icelandic: kl.090 0-1200
Recreation/summercamp: for ages
6 – 12 at 1200-1600.
The recreation course in the afternoon is
available for a limited number of children and
those who have never attended this course
before will have priority, others will be notified
in time. Please contact ÍTR for alternative
courses available at ÍTR.
Nánari uppl‡singar / Further information :
Mi›bæjarskóli, Fríkirkjuvegur 1, 101 Reykjavík
sími: 5512992 netfang: nfr@namsflokkar.is www.namsflokkar.is
Hentar krökkum sem
eru að flytja til útlanda
Berta Faber er skólastjóri Alþjóðaskólans í Reykjavík. Nemendur skólans koma víða að en
flestir eru börn erlendra starfsmanna sem koma til tímabundinna starfa hér á landi.
Þessir hressu krakkar eru nú á sumarnámskeiði í Alþjóðaskólanum. Þar eru unnin ýmis
þemaverkefni út frá alþjóðlegri námskrá.
Útileikirnir
endurvaktir
Á NÆSTU VIKUM VERÐUR FARIÐ Í
LEIKI VÍÐA UM BORGINA.
„Við viljum sjá börn að leik úti
við og erum að reyna að endur-
vekja gömlu leikina, Fallin spýt-
an, Brennó, Skessuleik og hvað
þeir nú heita. Þess vegna réðum
við til okkar ungt og ferskt fólk
sem er góðar fyrirmyndir. Það
kann þetta allt saman og er til-
búið að leiða starfið. Krakkarnir
þurfa ekkert að borga, bara
mæta á réttum tíma,“ segir Soffía
Pálsdóttir, hjá Íþrótta- og tóm-
stundaráði borgarinnar. Þessa
vikuna er mætt við Vesturbæjar-
laug og í næstu viku verður
Landakotstúnið leikvöllurinn. Síð-
an verður haldið upp að Breið-
holtslaug, á Klambratún og svo
koll af kolli. Svo halda krakkarnir
þessum leikjum lifandi í hverfun-
um eftir að leiðbeinendurnir ein-
beita sér að næsta hverfi. Upp-
lýsingar um leikina eru á vefnum
www.itr.is.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Einstakur atburður í
mannkynssögunni
Íslenskir nemendur fara til Hawaii til að fylgjast með þegar
geimfarið Deep Impact mætir halastjörnunni Temple 1.
Kennarar, stjörnufræðingar og
nokkrir háskóla- og framhalds-
skólanemendur hér á landi
munu halda til Hawaii um
næstu mánaðamót til að fylgj-
ast með árekstri geimfars við
halastjörnuna Temple 1. Geim-
farinu var skotið á loft 12. janú-
ar síðastliðinn og mun mæta
halastjörnunni 4. júlí. Vísinda-
menn telja áreksturinn geta
veitt þeim ómetanlegar upplýs-
ingar um innri gerð hala-
stjarna.
„Þetta er ofsalega spennandi
og við verðum þarna í stúku-
sæti að fylgjast með þessum
einstaka atburði í mannkyns-
sögunni,“ segir Ásta Þorleifs-
dóttir jarðfræðingur, sem hefur
ásamt öðrum átt veg og vanda
að þessu verkefni. Auk hennar
munu Snævarr Guðmundsson,
Agnes Ösp Magnúsdóttir, Lilja
Steinunn Jónsdóttir, Snorri
Björn Gunnarsson, Tómas Guð-
mundsson, Sævar Helgi Braga-
son, Sverrir Guðmundsson og
Ingimar Guðmundsson fara og
fylgjast með verkefninu.
Verkefnið, sem gengur undir
nafninu „Deep Impact“, er af-
rakstur samstarfs íslenskra
stjarnfræðinga og stjarnvís-
indadeildar háskólans á
Hawaii. Í vetur hafa íslenskir
framhaldsskó lanemendur
fengið aðgang að gögnum úr
Faulkes-stjörnusjónaukanum á
Hawaii og auk þess gefist kost-
ur á að fræðast um störf vís-
indamanna um allan heim, sem
bíða þess nú spenntir að geim-
farið rekist á halastjörnuna.
Nánari upplýsingar um verk-
efnið og halastjörnuna má fá á
eftirfarandi slóðum:
http://stjornuskodun.is/di og
http://deepimpact.jpl.nasa.gov. ■
Geimfarinu Deep Impact var skotið á
loft 12. janúar síðastliðinn.
M
YN
D
G
ET
TY