Fréttablaðið - 22.06.2005, Side 33

Fréttablaðið - 22.06.2005, Side 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 9 NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið sannanir þess að Forn-Egyptar hafi fjöldafram- leitt gler fyrir meira en 3.000 árum. Áður var talið að Egyptar hefðu flutt inn gler frá Mesópótamíu, þar sem nú eru Sýrland og Írak, en fornleifa- uppgröftur við árósa Nílar hef- ur leitt annað í ljós. Fundu vísindamennirnir rústir glerverksmiðju frá 13. öld fyrir Krist. Í rústunum voru fjörutíu heilir glerlistmunir og voru flestir þeirra rauðir að lit. Rautt gler var afskaplega sjald- gæft á fornöld og þótti mikil munaðarvara. Telja vísindamennirnir að rauðir glermunir hafi verið nokkurs konar stöðutákn og nokkuð sem ríki gátu státað sig af við nágranna sína. Einn forn- leifafræðinganna, dr. Tilo Rehren, líkti rauðu gleri við kjarnorku: „Það má framleiða orku á marga aðra vegu, en kjarnorkan er nokkurs konar stöðutákn. Aðeins stórveldi búa yfir kjarnorku og í fornöld framleiddu einungis stórveldi rautt gler“. - jsk Mikilvægara er að eiga góð tengsl við vini sína en fjölskyldu ef markmiðið er að lifa langa ævi. Vísbendingar um þetta er að finna í nýlegri ástralskri rann- sókn. Fylgst var með fimmtán hundruð einstaklingum í tíu ár en þeir voru allir yfir sjötugu þegar rannsóknin hófst. Tíu árum síðar höfðu 22 prósentum færri látist í hópi þeirra sem áttu samskipti við fimm vini eða fleiri en í hópi þeirra sem voru vinafærri. Ekki virðist hafa áhrif á lang- lífi hvort samskipti við fjölskyld- una séu mikil eða lítil. Vísinda- mennirnir telja huganlegt að samskipti við fjölskylduna kunni í einhverjum tilvikum að valda streitu en slíkt sé sjaldgæfara í samskiptum jafnaldra. - þk Gott að eiga gamla vini Bólugrafnir unglingspiltar eru ólíklegri til að fá hjartaáfall síðar á ævinni en þeir sem eru lausir við slík vandamál. Rannsóknin var gerð í Bret- landi. Fylgst var með tíu þúsund mönnum og í ljós kom að þeir sem voru bólugrafnir í æsku voru í þriðjungi minni hættu á að fá hjartaáfall. Vísindamennirnir sem unnu rannsóknina segja að líklegt sé að ástæða niðurstöð- unnar tengist hormónastarfsem- inni sem einnig veldur unglinga- bólum. Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi að mun meiri líkur voru á því að bólugrafnir drengir fengju krabbamein í skjaldkirtil- inn síðar á ævinni þótt ekki hafi tekist að sýna fram á óyggjandi tölfræðileg tengsl þar á milli. LUKE CHADWICK OG NICKY BUTT Þriðjungi minni líkur eru á að Chadwick fá hjartaáfall en Butt. EGYPTALAND TIL FORNA Forn-Egyptar kunnu svo sannarlega að skemmta sér og þótti fátt flottara en rauðir glermunir meðal ríka og fræga fólksins. Fagnaðarefni fyrir bólugrafna drengi TRAUSTIR VINIR Hasarmyndahetjurnar Sly og Arnold ættu að halda góðu sambandi enda gæti það lengt lífslíkur beggja. Fr ét ta bl að ið /G et ty Im ag es Fr ét ta bl að ið /A FP N or di c Rautt gler stöðutákn Egyptar fjöldaframleiddu gler fyrir meira en 3.000 árum. Rautt gler þótti eftirsóknarverðast og líkja vísindamenn mikilvægi þess við kjarn- orku dagsins í dag.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.