Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 58
sumar gjafir
skipta öll
börn máli!
„Það er mjög gaman og mikil virð-
ing í því að fólk taki eftir því sem
maður er að gera og meti það að
einhverjum verðleikum,“ segir
Rúnar Júlíusson, sem var út-
nefndur bæjarlistamaður Reykja-
nesbæjar á þjóðhátíðardegi Ís-
lendinga, 17. júní. Rúnar tók við
viðurkenningunni úr höndum
Árna Sigfússonar bæjarstjóra á
hátíðarhöldum í skrúðgarðinum.
„Kannski völdu þeir mig af því ég
varð sextugur á árinu,“ segir
Rúnar, sem fæddist aðeins
nokkrum metrum frá staðnum
þar sem verðlaunin voru afhent.
Bæjarlistamaður Reykjanes-
bæjar er valinn af bæjarráði einu
sinni á hverju kjörtímabili og ber
því titilinn í fjögur ár. Hann hlýtur
styrk frá bænum til að auðvelda
honum að stunda list sína en í stað-
inn ber honum að kynna list sína
fyrir bæjarbúum með einhverjum
hætti. „Það fylgdi ekki bréfinu að
þetta væri kvöð, en maður gerir
það nú samt,“ segir Rúnar, sem
heldur reglulega tónleika í bæn-
um. Hann segir líklegt að hann
standi fyrir einhverjum uppákom-
um í tilefni af nafnbótinni.
„Síðan kemst maður á stall í
skrúðgarðinum með hinum bæj-
arlistamönnunum,“ segir Rúnar
en nöfn bæjarlistamanna eru
skráð á stall listaverks eftir Er-
ling Jónsson, sem fyrstur hlaut
nafnbótina 1991.
Rúnar kemur mikið við sögu í
sýningu Poppminjasafns Íslands
sem opnuð var á þjóðhátíðardag-
inn í Gryfjunni í Duushúsum. Sýn-
ingin heitir Stuð og friður og er
tileinkuð áttunda áratugnum. „Við
Magnús Kjartansson og sonur
minn spiluðum þar,“ segir Rúnar
sem segir að það hafi alltaf verið
draumur sinn að það yrði tónlist-
arminjasetur í Reykjanesbæ þar
sem hægt væri að fletta upp í
öllum poppfræðum.
Rúnar ætlar að verja sumrinu
á svipaðan hátt og síðustu 45 ár,
þ.e. spilandi hér og þar um landið.
„Það hefur aldrei verið meira að
gera,“ segir Rúnar sem er meðal
annars bókaður til að spila í fimm-
tugsafmæli árið 2012.
Rúnar hefur ekki skipulagt
neitt frí í sumar enda hvorki hald-
inn golf- né veiðidellu. „Tónlistin
er mín della og vinna,“ segir Rúnar
sem finnst gaman að fá viðurkenn-
ingu og segist loks vera farinn að
heyra grasið vaxa sem hann hefur
sáð fyrir í gegnum tíðina. ■
18 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
NICCOLO MACHIAVELLI (1469-1527)
lést á þessum degi.
RÚNAR JÚLÍUSSON ÚTNEFNDUR BÆJARLISTAMAÐUR REYKJANESBÆJAR
Bókaður í afmæli 2012
„Stjórnmál eiga ekkert skylt við siðferði.“
Ítalski rithöfundurinn Machiavelli skrifaði meðal annars
Furstann, eitt áhrifamesta stjórnmálaheimspekirit allra tíma.
timamot@frettabladid.is
BÆJARLISTAMAÐUR Aldrei hefur verið jafn mikið að gera hjá Rúnari Júlíussyni. Hér er hann í fullu fjöri ásamt Björgvini Halldórssyni.
Á þessum degi árið 1941 gerði
þýski herinn innrás í Rússland.
Árásin hlaut viðurnefnið Barba-
rossa. Þrjár milljónir þýskra her-
manna réðust inn fyrir landa-
mæri Rússlands á þremur stöð-
um; þetta var öflugasta innrásar-
lið allra tíma.
Hitler og Stalín undirrituðu friðar-
samkomulag árið 1939 en voru
þó ávallt tortryggnir í garð hvors
annars. Þegar Stalín réðst inn í
Rúmeníu árið 1940 taldi Hitler
olíubirgðum sínum á Balkan-
skaga teflt í tvísýnu og sendi tíu
herdeildir til Póllands til að
minna Stalín á sig. Í kjölfarið byrj-
aði Hitler að skipuleggja innrás í
Rússland, þótt ráðgjafar Hitlers
mæltu gegn því; reynslan úr fyrri
heimsstyrjöldinni sýndi að Þýska-
land gæti ekki barist á tveimur
vígstöðvum í einu. Hitler var hins
vegar sannfærður um að eina
ástæðan fyrir því að Bretar streitt-
ust enn á móti væri sú að þeir
hlytu að hafa gert samning við
Rússa, sem ætluðu sér að ráðast
á Þýskaland von bráðar.
Hinn 22. júní lét Hitler til skarar
skríða. Rússneski herinn var
stærri en Þjóðverjar gerðu ráð
fyrir, en átti óhægt um vik þar
sem Stalín hafði ekki gert neinar
ráðstafanir til að bregðast við
innrás. Þrátt fyrir fjölmargar við-
varanir trúði Stalín því hreinlega
ekki að Hitler myndi snúast gegn
sér. Í lok fyrsta dags árásarinnar
höfðu Þjóðverjar eyðilagt meira
en þúsund rússneskar flugvélar
og komust 500 kílómetra inn í
landið á allra næstu dögum.
ADOLF HITLER
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1633 Galileo Galilei er neyddur
til að draga kenningu sína
um að jörðin sé á spor-
baug um sólu til baka.
1772 Þrælahald er bannað í
Englandi.
1812 Napóleon gerir innrás í
Rússland.
1847 Fyrsti kleinuhringurinn er
búinn til.
1911 Georg V Englandskonungur
er krýndur.
1933 Flokkur sósíaldemókrata er
bannaður í Þýskalandi.
1941 Eistar hefja vopnaða upp-
reisn gegn sovéska her-
námsliðinu.
1991 Hjónum frá Hellissandi er
bjargað eftir að þau féllu
20 metra niður í sprungu á
Snæfellsjökli.
fijó›verjar rá›ast inn í Rússland
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Þórður Annas Jónsson
frá Gestsstöðum, áður til heimilis í Markholti 7,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju föstudaginn 24. júní kl. 15.
Þeir sem vilja minnast hans vinsamlega látið elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund njóta þess.
Sæberg Þórðarson Magný Kristinsdóttir
Guðbjörg Þórðardóttir Stefán Magnús Jónsson
Guðmundur Vignir Þórðarson María Kristjánsdóttir
Bergþóra Þórðardóttir Viggó Jensson
Brynjar Viggósson Svanlaug Aðalsteinsdóttir
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og barnabarn,
Arent Pjetur Eggertsson
Sindragötu 4, Ísafirði,
verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 25. júní
klukkan 14.00. Minningarathöfn verður haldin í Friðrikskapellu á
Hlíðarenda fimmtudaginn 23. júní klukkan 17.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hans er vinsamlega bent á Umhyggju, félag langveikra barna.
Berglind Sveinsdóttir Pálmi Ó. Árnason
Kristrún Sif Gunnarsdóttir
Jóna Sigurlína Pálmadóttir
Sveinn Jóhann Pálmason
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Sveinn Jóhannsson
Eggert Hjartarson Gríma Huld Blængsdóttir
Lára Ósk Eggertsdóttir
Gunnar Smári Eggertsson
Laura Claessen
Björg Kristmundsdóttir
Lindasíðu 4, Akureyri
Fædd 23. 6. 1915
tekur á móti vinum og vandamönnum
föstudaginn 24. 6. 2005 í Húsi aldraðra,
Lundargötu 7, Akureyri, milli 15 og 19.
90 ára afmæli
www.steinsmidjan.is
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
Margrét Þórdís Egilsdóttir,
glerlistakona, Kambaseli 21, Reykjavík,
lést sunnudaginn 19. júní á heimili sínu. Útförin verður auglýst
síðar.
Óskar Smári Haraldsson
Haraldur Helgi Óskarsson Anna Fanney Gunnarsdóttir
Brynjar Þór Óskarsson Magdalena Hilmisdóttir
Oddur Jarl Haraldsson
ANDLÁT
Margrét Eiríksdóttir, fótaaðgerðafræð-
ingur, Grundargarði 5, Húsavík, lést mið-
vikudaginn 15. júní.
Árni Finnbjörnsson, Hvassaleiti 39,
Reykjavík, lést föstudaginn 17. júní.
Jóhann Páll Ingólfsson, Uppsölum,
Eyjafjarðarsveit, lést föstudaginn 17. júní.
Þórarinn Samúel Guðmundsson lést af
slysförum 17. júní.
Anton Ófeigur Antonsson, útskurðar-
meistari (Tony trélist), Munkaþverárstræti
11, Akureyri, lést laugardaginn 18. júní.
Guðmundur Gunnarsson, Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi, lést sunnudaginn 19. júní.
Þórey Kristjánsdóttir, Fljótaseli 13,
Reykjavík sunnudaginn 19. júní.
Roberta Joan Ostroff lést sunnudaginn
19. júní.
Unnur Aðalsteinsdóttir, Giljalandi 29,
lést sunnudaginn 19. júní.
Ingólfur Jóhannsson, Iðu, Biskupstung-
um, lést mánudaginn 20. júní.
JAR‹ARFARIR
13.30 Jón Valdimar Tryggvason,
Grænumýri 10, Akureyri, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju.
M
YN
D
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R/
ÞO
RG
IL
S
sextugur
Í tilefni sextugsafmæli míns 22. júní verð
ég með opið hús í þjónustumiðstöð BSRB
í Munaðarnesi föstudaginn 24. júní nk.
frá kl. 20. Léttar veitingar og heitt á könnunni.
Kristján Axelsson
frá Bakkakoti