Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 70

Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 70
30 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Á laugardaginn fá áhorfendurbandarísku sjónvarpsstöðvarinn- ar HBO að sjá nýja enska sjónvarps- mynd The Girl in the Café sem ger- ist að hluta til á Íslandi. Handritið er skrifað af Richard Curtis, hinum sama og skrifaði handritið að Love Actually. Hann segist hafa skrifað handritið til að þrýsta á átta helstu iðnríki heims til þess að fella niður skuldir þróunarríkjanna en fundur þeirra í myndinni fer fram í Reykja- vík. Curtis lenti reyndar í klónum á óþekktum íslenskum blaðamanni sem sakaði hann um að hafa ekki kynnt sér aðstæður nægjanlega vel. Erlendu þjóðarleiðtogarnir lentu nefnilega allir í Reykja- vík en ekki á alþjóða flugvellinum í Kefla- vík. P rófkjör sjálfstæð-ismanna í Reykja- vík er hafið bak við tjöldin. Nú er full- yrt að tvær fylkingar muni kljást um fyrsta sætið. Annars vegar fylking Gísla Marteins Baldurs- sonar sem muni hvetja liðsmenn sína til að veita Hönnu Birnu Kristjánsdóttur brautargengi í annað sæti próf- kjörsins. Hins vegar er um að ræða liðsmenn Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar sem munu hvetja sína liðsmenn til að gefa Guðlaugi Þór Þórð- arsyni atkvæði sitt. Munu báð- ar fylk- ingar vera að leggja lín- urnar í að raða öðr- um frambjóðendum í sínar fylkingar til að ná sem víðtækust- um og breiðust- um stuðningi. Lárétt: 1 rýrt, 6 sár, 7 hræðast, 8 öfug röð, 9 fæða, 10 lengst frá, 12 á fæti, 14 kraftur, 15 íþróttafélag, 16 verkfæri, 17 stefna, 18 frjáls. Lóðrétt: 1 þvaðra, 2 for, 3 bifreiðateg- und, skammstöfun, 4 vill breytingar, 5 lín, 9 heit tilfinning, 11 lita, 13 kjáni, 14 mál, 17 hæð. LAUSN. Lárétt: 1 magurt, 6aum,7óa,8sr, 9átu,10yst,12tær, 14táp,15ka,16 al, 17 átt,18laus. Lóðrétt: 1masa,2aur, 3gm,4róttækt, 5tau,9ást,11mála,13rati,14tal, 17ás. Ekkert MSG Allur okkar fiskur er án MSG (þriðja kryddið) Mikið úrval af grilfiski. Grillspjót, risarækjur, hörpuskel og humar. Jon Anderson, söngvari hljóm- sveitarinnar Yes, heldur tónleika í Háskólabíói 16. október. Þar mun hann flytja lög af sólóferli sínum sem og mörg af hinum sígíldu lög- um Yes. Á meðal laga sem hann flytur má nefna Owner of a Lonely Heart, Heart of the Sunrise og I’ll Find My Way Home. Á milli laga mun hann segja áhorfendum skemmtilegar sögur og jafnvel svara nokkrum spurningum. Tónleikarnir eru hluti af tón- leikaferð Jons um heiminn sem nefnist Work in Progress Tour of the Uni- verse. Þetta verða síðustu tónleikarnir í ferð hans um Ísrael og Evr- ópu sem hefst 1. septem- ber. ■ JON ANDERSON Söngvari Yes ætlar að halda tónleika í Háskólabíói 16. október. Marteinn Þórsson kvikmynda- gerðarmaður framleiðir Kvöld- þáttinn, sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Sirkus sem fer í loftið á föstudag. Marteinn er líklega best þekktur fyrir mynd sína og vísindatryllinn One Point 0. Þá mynd gerði hann ásamt félaga sínum Jeff Renfroe en myndinni var meðal annars boðið á Sundance Kvikmyndahátíðina. Marteinn sem hefur undanfar- in ár búið í Kanada hefur nú snúið sér frá kvikmyndagerð í bili. „Við Guðmundur ætluðum reyndar báðir aðallega að grilla í sumar en svo hringdi Árni Þór Vigfússon í okkur og við slógum til,“ segir Marteinn og á við Guðmund Stein- grímsson þáttastjórnanda Kvöld- þáttarins. „Þessir þættir eru spennandi verkefni sem er gaman fyrir mig að taka þátt í.“ Aðspurð- ur hvort þættirnir munu einungis verða sýndir í sumar segir hann: „Nei þeir verða sýndir að eilífu. Eilífu. Það er engin spurning að þetta er albesta íslenska sjón- varpsefni sem komið hefur fyrir augu landsmanna og er það mikill heiður að fá að taka þátt í að skapa það,“ segir Marteinn, kannski í ör- lítið húmorískum tón og bætir við að auðvitað sé líka bara gaman að koma heim. Hann er þó alls ekkert hættur í kvikmyndabransanum og vinnur að tveimur kvikmyndum. „Önnur myndin heitir Stray Toasters og er byggð á teikni- myndasögu. Hún er svolítið í lík- indum við One Point 0 að vissu leyti en hún verður mun dýrari í framleiðslu.“ Hægt er að fletta Stray Toasters upp á www.imdb.com og þar er sögu- þráðurinn stuttlega rakinn. Mynd- in fjallar um sálfræðing sem sér- hæfir sig í glæpastarfsemi og er í miðjum klíðum að eltast við fjöldamorðingja sem hefur myrt ellefu drengi. Málið fléttast svo inn í nýja glæparöð þar sem ungar húsmæður eru myrtar. „Ég er svo með aðra mynd í smíðum og það verður hryllingsmynd sem mig langar að taka upp á Íslandi,“ segir Marteinn. hilda@frettabladid.is MARTEINN ÞÓRSSON Kvikmyndagerð- armaðurinn sem gerði íslensk/ameríska vísindatryllinn One Point 0 ásamt félaga sínum, framleiðir nú sjónvarpsþáttinn Kvöldþátturinn. FRÉTTIR AF FÓLKI HRÓSIÐ [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 60 ára afmæli. Í Suður-Kóreu. 213 leiki. ...fá Bleiku skæruliðarnir sem skreyttu styttur Reykjavíkur með bleikum borðum og skírskotuðu til þess að enn ríkir ekki jafnræði milli kynjanna í landinu, sem lýs- ir sér til dæmis í því að nær eng- ar af styttum bæjarins eru af nafngreindum konum. Frið fyrir klámi Mér líst auðvitað alls ekki vel á það, sama hvort sjón- varpsstöðin er í eigu ríkisins eða ekki. Nóg finnst mér um hvað klámið tröllríður öllu, í afþreyingar- iðnaðinum eins og hann leggur sig, þótt svo að ekki sé boðið upp á það í íslensku sjónvarpi. Ég bið því um frið fyrir frekara klámi! Eðlilegt mál Það er verið að selja Símann þannig að það verður einkafyrir- tæki sem þjónustar sína viðskipta- vini. Bara eðlilegt mál að þeir bjóði upp á þetta ef það er læst og þannig að börn komist ekki í. Sérstaklega þegar Síminn verður í einkaeign. En ríkið á ekki að standa í rekstri yfir höfuð. Þetta er álitamál, það er alveg jafnskakkt að senda út teiknimyndir og klám- myndir, þetta er bara sitt hvor markhópurinn. Klámið er aðgengi- legt nú þegar á netinu þannig að ég sé ekki muninn á því að innlendir aðilar standi í svipuðum rekstri. Lág- markið er að börn komist ekki í þetta. Klám er ofbeldi Mér finnst það fáránlegt. Mér finnst að allir eigi að vera meðvitaðir um að ekki eigi að sýna klám í sjón- varpinu, því klám er ofbeldi og niðurlægjandi fyrir konur og karla. Til þess að ná jafnrétti á Íslandi og alls staðar þá verðum við að vera meðvituð um alla þætti jafnréttis og þar af leiðandi berjast gegn klámi. Erótík er eitt en klám er annað. Klám er skaðlegt og getur haft vondar afleiðingar í för með sér, sérstaklega fyrir ungu kynslóðina sem er mun tæknivæddari en þeir eldri. Hún á örugglega ekki í vandræðum með að opna þessa lása á sjónvarpsefninu. Í kjölfar umræðunnar um óheilbrigt kynlíf unglinga þá er þetta óviðeigandi. HVAÐ FINNST ÞÉR UM AÐ SKJÁR EINN, SEM ER AÐ HLUTA Í EIGU RÍKISFYRIRTÆKISINS SÍMANS, BJÓÐI UPP Á EFNI FRÁ PLAYBOY? ÞRÍR SPURÐIR 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 ONE POINT 0 Úr myndinni One point O sem Marteinn Þórsson gerði. Myndinni var meðal annars boðið á Sundance-kvik- myndahátíðina. MARTEINN ÞÓRSSON : ÆTLAÐI AÐALLEGA AÐ GRILLA Í SUMAR Úr vísindatrylli í Kvöldþáttinn Söngvari Yes til Íslands » FA S T U R » PUNKTUR Fréttablaðið greindi frá því í gær að Skjár einn muni í september hefja gagnvirkar sjónvarpssendingar á ADSL, þar sem boðið verður upp á klámmyndir frá Playboy. Kristín Tómas- dóttir nemi Friðbjörn Orri Ketilsson, stjórn- armaður í Frjáls- hyggjufélaginu Oddný Sturludóttir rithöf- undur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.