Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 37
„Hin endanlega greiðsla og afhending hlutarins af hálfu ríkisins getur því ekki farið fram fyrr en niðurstaða Samkeppniseftirlits- ins liggur fyrir. En eins og við sjáum það fyrir í nefndinni teljum við að sú niðurstaða ætti að geta legið fyrir um miðjan eða síðari hluta ágúst mánaðar. Það er þó alfarið undir Samkeppniseftirlitinu komið hvað þeir vinna hratt í því að skila sinni niðurstöðu varðandi þá tilkynningu,“ bætir Jón við. ÁNÆGÐIR RÁÐHERRAR Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að fyrst og fremst styrki sala Símans stöðu ríkissjóðs til lengri tíma litið og geri hann öfl- ugri til þess að takast á við þau viðfangsefni sem við blasi á sviði velferðar- og samfélags- mála. „Við flýtum okkur ekki að eyða þessum peningum. Gerð verður áætlun um það fram í tíman hvernig að því verður staðið. Það ligg- ur alveg ljóst fyrir að eftir þessa sölu getum við gert hluti sem við annars hefðum ekki getað gert á sviði samgöngumála, heilbrigðis- mála, á sviði atvinnuþróunar og annarra mik- ilvægra samfélagsmála.“ Halldór vill ekki nefna einstök verkefni á þessu stigi málsins. Það sem stjórnarþingmenn hafa nefnt í op- inberri umræðu um ráðstöfun söluhagnaðar af Símanum, er bygging hátæknisjúkrahúss, gerð jarðgangna á Norðurlandi, aðrar vega- framkvæmdir og svo niðurgreiðslu skulda. Geir Haarde fjármálaráðherra kveðst ánægður með vel heppnað söluferli og segir til fyrirmyndar hvernig að því var staðið. Enda þótt aðeins þrír aðilar hafi á endanum boðið í Símann sé meiri fjöldi á bak við tilboð- in þrjú. „Það að verðið skuli vera svona hátt sýnir hversu öflugt og gott þetta fyrirtæki er. Ég vonast til þess að það haldi áfram að dafna í höndum nýrra eigenda.“ TAKA MATSKENNDA ÞÆTTI ÚT Jón Sveinsson segir ekki gott að segja til um það hvort sama sölufyrirkomlag verði alltaf notað við einkavæðingu opinberra fyrir- tækja. „Það er breytilegt hvaða aðferð er notuð hverju sinni. En út af fyrir sig má segja að mjög æskilegt sé að taka þessa mats- kenndu þætti út úr svona ferli fyrst og vera ekki að blanda þeim saman við verðið. Það var ákvörðun sem við tókum snemma í þessu ferli. Ég fyrir mitt leyti verð að segja að sú aðferð er mjög heppileg og góð. Síðan hlýtur að koma til álita í öðrum tilvikum að setja hluti ríkisins í hlutafélögum inn á almennan markað í útboði til almennings. Það er líka háttur sem hlýtur að koma til skoðunar í þessu sambandi - hvort skynsamlegt sé að fara þá leiðina eða selja hluti í ríkisfyrirtækj- um í stórum skömmtum eða heilu lagi,“ segir formaður einkavæðingarnefndar Útboð til almennings ótímasett „Við viljum ekki tjá okkur um það. Það er eigandans að upp- lýsa það nákvæmlega, þegar kaupin eru endanlega frágeng- in, hvernig hann hyggst fara í þá þætti,“ segir Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefnd- ar, aðspurður hvenær og á hvaða verði almenningur fær að kaupa hlutabréf í Símanum. Kaupendum Símans er skylt að bjóða „almenningi og öðrum fjárfestum“ þrjátíu prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir árslok 2007. Þá á að skrá félagið í Kauphöll Íslands. Fjárfestahópurinn sem Burðarás leiddi hafði skuld- bundið sig til að selja almenn- ingi þessi þrjátíu prósent á sama gengi og hópurinn myndi kaupa Símann á. Átti að gera það innan sex mánaða frá því að kaupin gengju í gegn. Var samningur um þetta efni gerður við Almenning ehf. sem Agnes Bragadóttir og Orri Vig- fússon voru í forsvari fyrir. Vildu þau tryggja aðkomu al- mennings að sölu Símans og ætluðu stóru fjárfestarnir að greiða kostnað við útboðið. Exista, KB banki og fleiri fjárfestar, sem buðu hæst í Sím- ann, hafa ekki skuldbundið sig til þess sama. Erlendur Hjalta- son, framkvæmdastjóri Exista, hefur ekki viljað segja hvenær og á hvaða gengi almenningur fær að kaupa þennan hlut. Það eina sem liggur fyrir er að hlutur KB banka verður seldur. Jón Sveinsson vildi ekki upp- lýsa hvort yfirlýsing um þetta lægi fyrir milli kaupanda og seljanda. „Þeir verða að svara því frekar hvaða tímasetningu þeir velja sér í þessu sambandi; hvort það gerist fljótlega eða hvort að menn dragi það,“ sagði Jón. MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 11 Ú T T E K T Fr ét ta bl að ið /G VA JÓN SVEINSSON, FORMAÐUR EINKAVÆÐINGARNEFNDAR, OPNAR SÍÐASTA TILBOÐIÐ SEM JAFNFRAMT VAR ÞAÐ HÆSTA „Enginn vissi nákvæmlega hvað upp úr um- slögunum kæmi,“ segir Jón Sveinsson. Hann segir verðið mjög ásættanlegt fyrir eigandann, ríkið, sem hafi fengið um 73 milljarða króna í kassann í tengslum við einkavæðingu Símans. Ef skilyrði einkavæðingar- nefndar um leyfileg eigna- tengsl kaupenda Símans eru skoðuð kemur í ljós að Ex- ista og KB banki virðast tengdir aðilar samkvæmt skilgreiningu nefndarinnar. Tengjast félögin í gegnum stjórn VÍS. Því mega þessir aðilar, samkvæmt þeim reglum sem settar voru um einkavæðingu Símans, ekki eiga samanlagt meira en 45 prósent í fyrirtækinu. Sam- kvæmt kauptilboðinu fara þessi félög hins vegar með 75 prósent í Símanum eftir að kaupin ganga í gegn. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, og Erlendur Hjaltason, fram- kvæmdastjóri Exista, sitja báðir í stjórn VÍS. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, situr einnig í stjórn VÍS, en þar að auki er forstjóri VÍS Finnur Ingólfs- son í stjórn KB banka. Þetta virðist brjóta í bága við reglur 1(b) og 1(d) í kafla I. í skilgreiningu einkavæð- ingarnefndar um tengda að- ila. Samkvæmt reglu 1(b) eru tveir aðilar tengdir ef þeir deila fleiri en einum stjórnanda, það er fram- kvæmdastjóra eða stjórnar- manni. Á þann máta er Ex- ista tengt VÍS vegna Lýðs og Erlends og KB banki tengd- ur VÍS vegna Hreiðars og Finns. Regla 1(d) segir svo að ef tveir aðilar eru tengdir sama félagi samkvæmt reglu 1(b), teljist þeir einnig tengdir. Þannig tengjast Ex- ista og KB banki í gegnum VÍS. Aðspurður um þetta segir Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, að yfirlýsingar um úrsögn manna úr stjórnum liggi fyrir án þess að útskýra það frekar. Af því verði þó ekki fyrr en eftir að kaupin eru gengin í gegn. LÝÐUR OG ÁGÚST GUÐMUNDSSYNIR Bræðurnir úr Bakkavör, sem ráða yfir Exista, eignast stærsta hlutann í Símanum. Exista og KB banki tengdir aðilar ust hátt verð 10-11 Markadur lesið 2.8.2005 15:34 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.