Fréttablaðið - 03.08.2005, Page 39

Fréttablaðið - 03.08.2005, Page 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 13 NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Og Vodafone í síma 599 9500 eða sendu tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 2 89 38 07 /2 00 5 Er einhver í þínu fyrirtæki sem heldur að skást sé best? Aðlögunarhæfni mannsins minnkar við kókaínneyslu með því að trufla rafboð milli tveggja heilastöðva, að því er kemur fram í nýrri bandarískri rannsókn. Er talið að þetta geti skýrt fljótfærnislega hegðun kókaínfíkla. Vísindamennirnir rannsökuðu tvær heilastöðvar: önnur stýrir minni og úr- vinnslu upplýsinga en hin tilfinningum og nautnum. Kom í ljós að meðal kókaínfíkla hafði seinni heilastöðin náð yfirhöndinni svo þeir áttu erfitt með að taka upplýstar ákvarðanir: ,,Þetta skýrir hvers vegna kókaínfíklar leggja svo mikla áherslu á nautnir á kostnað annarra skynsamlegri hluta,“ sagði Anthony Grace sem leiddi rannsóknina. Vonast vísindamennirnir til að niðurstöðurnar komi að gagni við meðferð kókaínfíkla. - jsk Japanskir vísindamenn segjast hafa hannað raunverulegasta vél- menni sem nokkru sinni hefur verið búið til. Vélmennið lítur út eins og kvenmaður og var nefnt Repliee Q1. Repliee er húðuð silíkoni í stað plasts og búin skynjurum og mót- orum sem gera henni kleift að hreyfa sig og bregðast við eins og mannvera. Vélmennið getur blikkað augnlokunum, hreyft hendurnar og lítur meira að segja út fyrir að anda. Prófessor Hiroshi Ishiguru, sem hafði yfirumsjón með þróun Repliee, segir að ekki líði á löngu þar til nánast ómögulegt verður að aðgreina vélmenni frá mönn- um: „Ég hef hannað mörg vél- menni en ekkert eins raunveru- legt og þetta. Útlitið skiptir öllu, ef vélmenni er líkt mannveru verður nærvera þess mjög sterk.“ Prófessor Ishiguru er einn af reyndari mönnum í heiminum þeg- ar kemur að hönnun vélmenna og á mörg slík að baki, hið frægasta er líklega Repliee R1 sem leit út eins og fimm ára stúlkubarn. - jsk Bandarísk yfirvöld hafa farið fram á að breskur tölvuhakkari sem braust inn í 97 tölvur í eigu bandaríska ríkisins verði fram- seldur. Tölvuhakkarinn Gary Mc- Kinnon notaði heimilistölvu sína til verksins og er sakaður um að hafa brotist inn 53 tölvur í eigu bandaríska landhersins, 26 tölv- ur hjá sjóhernum, 16 tölvur bandarísku geimferðastofnunar- innar NASA, eina í eigu flughers- ins og aðra til hjá bandaríska varnarmálaráðuneytinu. „Sakborningur nýtti sér veik- leika í tölvukerfi bandarískra yfirvalda og reyndi á yfirvegað- an hátt að hafa áhrif á starfsemi stjórnvalda. Réttast væri að hann yrði framseldur og réttað yfir honum í Bandaríkjunum,“ sagði Mark Summers, sem fór fyrir hópi bandarískra lögmanna. Skaðinn sem McKinnon olli með fiktinu er metinn á rúmlega fjörutíu milljónir króna .-jsk Japanar hyggjast hanna nýja of- urtölvu sem á að vinna 73 sinnum hraðar en sú tölva sem er hröðust í dag. Japanska tækni- og vís- indamálaráðuneytið hefur yfir- umsjón með verkinu og er áætlað að það kosti um 52 milljarða króna. Hraðasta tölva veraldar er í dag American Blue Gene ofur- tölvan sem hönnuð er af IBM tölvurisanum og getur fram- kvæmt 136,8 billjónir (milljón milljónir) útreikninga á sekúndu. Talsmaður ráðuneytisins segir að tölvan verði notuð við rann- sóknir á uppruna alheimsins og til að mæla áhrif lyfja á manns- líkamann. Áætlað er að tölvan verði tilbúin í mars 2011. - jsk Kókaín truflar rafboð KÓKAÍNNEYSLA Bandarískir vísindamenn segjast hafa fundið skýringu á fljótfærnis- legri hegðun kókaínfíkla. Ný japönsk ofurtölva OFURTÖLVA Japanska ofurtölvan Nec var sú hraðasta í heimi þar til 2002. Japanar hyggjast nú hanna tölvu sem vinnur 73 sinnum hraðar en Blue Gene-tölvan, sem nú þykir best. Maður eða vélmenni? Hannað hefur verið vélmenni sem sagt er hið raunverulegasta sem búið hefur verið til. Vélmennið getur hreyft sig og blikkað augnlokunum. Stórtækur tölvuhakkari Lundúnabúi hakkaði sig inn í 97 tölvur í eigu bandaríska ríkisins. MARK MCKINNON Á LEIÐ Í RÉTTARSAL Bandarísk stjórnvöld hafa farið fram á að tölvuhakkarinn McKinnon verði framseldur til Bandaríkjanna. Fr ét ta bl að ið /A FP REPLIEE Q1-VÉLMENNIÐ Stúlkukindin Repliee Q1 er sögð raunverulegasta vélmenni sem hannað hefur verið.Fr ét ta bl að ið /A FP 12-13 Markaður lesið 2.8.2005 15:23 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.