Fréttablaðið - 03.08.2005, Síða 44

Fréttablaðið - 03.08.2005, Síða 44
Ljóst er að eftir miklu er að slægjast fyrir unga knattspyrnu- menn. Líklega er þó æðsti draumur þeirra flestra að spila í ensku úrvalsdeildinni, þótt ekki væri nema peninganna vegna. Samkvæmt skýrslu endur- skoðendafyrirtækisins Deloitte et Touche greiða ensku úrvals- deildarliðin leikmönnum sínum að meðaltali 4,4 milljarða króna í árslaun. Samkvæmt því eru með- allaun leikmanna deildarinnar tæplega 75 milljónir á ári. Leikmenn í heimsklassa fá þó mun meira en það; ensku varnar- mennirnir Sol Campbell hjá Arsenal og John Terry hjá Chel- sea fá til að mynda um 12 millj- ónir króna í vikulaun. Okkar maður, Eiður Smári Guðjohnsen, er svo sannarlega í fremstu röð og er sagður fá um sjö milljónir á viku. Það er því ljóst að ekki væsir um umboðsmenn þessara kappa, enda fimm prósent af 115 millj- ónum ekkert til að fúlsa við. - jsk MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN18 F Y R S T O G S Í Ð A S T Ólafur Garðarsson er hæstaréttar- lögmaður og starfar sem slíkur hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur. Ólafur er þó enginn venjulegur lögmaður heldur starfar hann samhliða sem umboðsmaður knattspyrnumanna og hefur gert undanfarin átta ár. Ólafur sagði í samtali við Jón Skaftason að margir hefðu ranghugmyndir um at- vinnumennsku í knattspyrnu; það væri ekki svo að menn yrðu ríkir í einu vetfangi. Ólafur Garðarsson segist alla tíð hafa verið forfall- inn knattspyrnufíkill og hafi í starfi sínu sem lög- maður verið beðinn um að fara yfir samninga fyrir marga fótboltamenn. Við þá vinnu hafi hann fengið þá flugu í höfuðið að gerast umboðsmaður knatt- spyrnumanna enda lögfræðin góður grunnur fyrir starf sem snýst að miklu leyti um að gera samn- inga: ,,Þá tók við ferli til að fá tilskilin leyfi frá Al- þjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) og Knatt- spyrnusambandi Íslands. Maður þurfti að lesa sér til og gangast undir próf, þá þurfti að leggja inn 15 milljóna króna tryggingu í svissneskan banka. Mér skilst að það sé búið að einfalda ferlið eitthvað núna, bankinn þarf í það minnsta ekki lengur að vera svissneskur.“ BLINT Í SJÓINN Í dag eru margir frægustu og efnilegustu knatt- spyrnumenn þjóðarinnar á vegum Ólafs; nægir þar að nefna Hermann Hreiðarsson hjá Charlton í ensku úrvalsdeildinni, og þá Brynjar Björn Gunn- arsson og Ívar Ingimarsson sem báðir spila fyrir Reading í ensku fyrstu deildinni. Ólafur segist þó í raun hafa vaðið blint í sjóinn þegar hann hóf að starfa sem umboðsmaður. Hann hafi ætlað sér að fylgjast með leikmannamarkaðn- um hér heima, sigta þá út sem ættu möguleika á frekari frama og bíða svo eftir símtölum fram- kvæmdastjóra erlendra liða: ,,Sú varð nú aldeilis ekki raunin enda vakna framkvæmdastjórar ekki á morgnana og velta fyrir sér hvort næstu stór- stjörnu sé að finna á Íslandi.“ Þegar Ólafur uppgötvaði að ekki væri að því hlaupið að koma íslenskum leik- mönnum á framfæri erlendis hóf hann mikið markaðsstarf til að kynna sjálfan sig og íslenska knatt- spyrnu: ,,Ég lagðist í hálfgerðan víking næstu árin. Heimsótti mark- visst lið og framkvæmdastjóra, þetta vatt síðan upp á sig, ég fór að senda leikmenn til reynslu og menn sáu að ég var ekkert að senda leikmenn sem ekkert erindi áttu.“ Ólafur sér alls ekki eftir þeirri fjárfestingu sem í ferðalögunum fólst enda hafi hún borið ríkulegan ávöxt: ,,Í dag þekki ég gríðarlega marga úti í hinum stóra knattspyrnuheimi og fæ mikið af hringingum. Markaðsstörfin halda þó vitaskuld alltaf áfram.“ KOMAST EKKI STRAX Í ÁLNIR Ólafur hefur komið mörgum íslenskum leikmönn- um til erlendra liða en bendir á að menn komast ekki í álnir á fyrsta samningi sínum erlendis: ,,Það er ekki fyrr en á öðrum samningi við erlent lið að leikmenn geta farið að fá umtalsverðar fjárhæðir í sinn hlut. Árstekjur leikmanna sem spila í ensku úr- valsdeildinni geta hlaupið á hundruðum milljóna króna, fyrstu deildar leikmanna á tugum milljóna.“ Algengt er að íslensk félög fái fimm til fimmtán milljónir króna fyrir leikmenn sem hafa náð að sanna sig í úrvalsdeildinni hér heima, yngri leik- menn kosta minna: ,,Það fæst sjálfsagt aldrei nóg fyrir íslenska leikmenn, enda íslensk knattspyrna kannski ekki hátt skrifuð á alþjóðavettvangi,“ segir Ólafur. FIFA gefur út tilmæli um hvernig greiðslum til umboðsmanna skuli háttað, er þar gert ráð fyrir því að um fimm prósent grunnlauna leikmanna renni til þeirra umboðsmanna sem stóðu að félagsskiptum þeirra. Ekki er óalgengt að sú upphæð skiptist milli tveggja eða fleiri umboðsmanna: ,,Fyrir leikmann sem spilar í Noregi og fær 300 þúsund krónur í mánaðarlaun fær umboðsmaður 180 þúsund krónur á ári. Smærri sölur gefa því ekki mikið í aðra hönd.“ Ólafur bætir því við að líklega séu einungis tveir íslenskir leikmenn í því sem hann kallar efsta lagið, meðal þeirra launahæstu; Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson. GOTT ORÐ FER AF ÍSLENSKUM LEIKMÖNNUM Ólafur segir að þótt íslensk knattspyrna sé ekki hátt skrifuð fari gott orð af íslenskum knattspyrnu- mönnum erlendis: ,,Þeir eru vel liðnir og engir vandræðagemsar, þeir hafa til mynda margir hverj- ir verið gerðir að fyrirliðum sinna liða, menn eins og Guðni Bergsson og Heiðar Helguson, þá hafa Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingi- marsson borið böndin í forföllum hjá sínum liðum.“ Ólafur telur að þrátt fyrir að ís- lensk knattspyrna standi ágætlega sé ýmislegt sem betur megi fara: ,,Íslenskir knattspyrnumenn eru sumir hverjir ekki í nægilega góðu líkamlegu ásig- komulagi. Ég hef oft fengið kvartanir vegna leik- manna sem ég hef sent út undir lok tímabils hérna heima, þegar þeir eiga að vera í algeru toppformi. Það er spurning hvort æfingar íslenskra liða séu nægilega markvissar.“ Þá segir Ólafur unga og efnilega leikmenn ekki fá næg tækifæri með A-landsliðinu: ,,Það tíðkast víða í útlöndum að henda ungum leikmönnum í djúpu laugina, það sést kannski best á hinum unga Englendingi Wayne Rooney, sem var byrjaður að spila með landsliðinu sautján ára. Hér er hins vegar beðið lengur. Ég vil gjarnan sjá unga og efnilega leikmenn leika fyrr með 21 árs og A-landsliðinu. Get ég þá nefnt Bjarna Þór Viðarsson hjá Everton, Ólaf Inga Skúlason hjá Brentford, Elmar Bjarnason og Kjartan Henry Finnbogason hjá Celtic og Rúrik Gíslason sem nú spilar með HK.“ M Á L I Ð E R Umboðsmenn knattspyrnumanna Engir smápeningar Fæst aldrei nóg fyrir íslenska leikmenn ÓLAFUR GARÐARSON UMBOÐSMAÐUR KNATTSPYRNU- MANNA Ólafur hefur aðstoðað marga íslenska knattspyrnumenn við að komast að hjá erlendum liðum. Hann segir þó að starfið sé erfiðara en hann óraði fyrir: ,,Framkvæmdastjórar erlendra liða vakna ekki á morgnana og velta fyrir sér hvort næstu stórstjörnu sé að finna á Íslandi.“ Fr ét ta bl að ið /V al ga rð ur ,,Það er ekki fyrr en á öðrum samningi við erlent lið að leikmenn fara að fá um- talsverðar fjárhæðir í sinn hlut. Árstekjur leikmanna sem spila í ensku úrvals- deildinni geta hlaupið á hundruðum milljóna króna, fyrstu deildar leikmanna á tugum milljóna.“Tíu stærstu sölur Íslandssögunnar* Eiður Smári Guðjohnsen Bolton - Chelsea 575 Hermann Hreiðarsson Wimbledon - Ipswich 520 Jóhannes Karl Guðjónsson Walwijk (Hol) - Real Betis (Spá) 350 Hermann Hreiðarsson Brentford - Wimbledon 290 Arnar Gunnlaugsson Bolton - Leicester 230 Þórður Guðjónsson Genk (Bel) - Las Palmas (Spá) 190 Heiðar Helguson Lilleström (Nor) - Watford 175 Heiðar Helguson Watford - Fulham 150 Helgi Sigurðsson Stabæk (Nor) - Panathinaikos (Gri) 140 Hermann Hreiðarsson Ipswich - Charlton 105 *Upphæðir í milljónum króna. Félagslið eru ensk nema annað sé tekið fram. **Heimildir www.soccernet.com, www.skysports.com HERMANN HREIÐARSSON Hann er réttnefndur sölukóngur íslenskrar knattspyrnu. Hann hefur verið seldur samtals fyrir rúman milljarð króna og hefur spilað með fimm enskum liðum. EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Það þætti ekki mikið að borga 575 milljónir fyrir Eið í dag eins og Chelsea gerði á sínum tíma. ARNAR GUNNLAUGSSON Frá Bolton til Leicester á 230 milljónir króna. HEIÐAR HELGUSON Hann á tvær stórar sölur að baki fyrir samtals 325 milljónir króna. HELGI SIGURÐSSON Gríska liðið Panathinaikos greiddi 140 milljónir króna fyrir Helga. ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON Stoppaði stutt á Spáni þrátt fyrir að kosta Las Palmas um 190 milljónir króna. JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON Real Betis greiddi 350 milljónir króna fyrir kapp- ann. 18-19 Markadur lesið 2.8.2005 15:47 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.