Fréttablaðið - 03.08.2005, Page 55
19MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2005
Hópur fjárfesta með Kaupfélag
Skagfirðinga í broddi fylkingar
hefur gengið frá
kaupum á Fóður-
blöndunni og Bú-
stólpa af Lýsi.
Kaupverð fékkst
ekki gefið upp.
Fyrir á Kaupfélag
S k a g f i r ð i n g a
fóðurverksmiðj-
una Vallhólma auk
þess að vera einn
aðaleigandi Fóður-
b l ö n d u n n a r .
Eyjólfur Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Fóður-
blöndunnar, segir að enn hafi
ekki verið ráðið í starf forstjóra
hins nýja fyrirtæk-
is en því sé hins
vegar ekki að
leyna að með kaup-
unum verði til eitt
öflugasta fyrir-
tæki landsins í
þjónustu við bænd-
ur: „Þetta verður
geysilega öflugt og
við teljum okkur
vel í stakk búna til
að takast á við
samkeppni.“
-jsk
KS kaupir af L‡si
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐ-
INGA Hefur gengið frá
kaupum á Fóðurblöndunni
og Bústólpa af Lýsi.
Bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið
Oracle hyggst kaupa 61 prósent hlut í ind-
verska fyrirtækinu I-Flex, sem sérhæfir
sig í hugbúnaðarlausnum fyrir banka.
Hluturinn er metinn á tuttugu milljarða
króna.
41 prósent er keypt af bandaríska fjár-
festingafélaginu Citigroup Venture og
tuttugu prósent af hluthöfum í Indlandi.
Oracle hyggst bjóða rúma tuttugu dali á
hlut.
„I-Flex er heitasta hugbúnaðarfyrir-
tækið í bankabransanum og hefur bætt
við sig fleiri viðskiptavinum undanfarin
þrjú ár en nokkurt annað fyrirtæki,“
sagði Larry Ellison, stjórnarformaður
Oracle.
-jsk
Oracle kaupir I-Flex
LARRY ELLISON, FORSTJÓRI ORACLE Oracle hefur nú keypt ind-
verskt hugbúnaðarfyrirtæki á um tuttugu milljarða króna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
FP
ALDREI HÆRRI Úrvalsvísitalan sló eldra
met í gær þegar hún endaði í 4.388 stig-
um.
Veruleg hækk-
un hlutabréfa
Úrvalsvísitalan hefur aldrei verið
hærri, en hún endaði í 4.388 stig-
um. Alls hækkaði hún um 1,9 pró-
sent í viðskiptum gærdagsins.
Úrvalsvísitalan hefur ekki
hækkað jafn mikið milli tveggja
viðskiptadaga síðan snemma í
febrúar á þessu ári.
Fjármálafyrirtæki drógu vagn-
inn í þessum miklu hækkunum.
Landsbankinn hækkaði um 7,3
prósent, Straumur um 5,2 prósent
og Íslandsbanki um tæp fjögur
prósent. Burðarás hækkaði svo
um 3,7 prósent.
- eþa
TEKJUR RYANAIR AUKAST Hagnaður
eykst þrátt fyrir hækkandi olíuverð.
Hagna›ur
Ryanair eykst
Hagnaður írska lágfargjaldaflug-
félagsins Ryanair jókst um 31
prósent á öðrum ársfjórðungi
miðað við sama tímabil í fyrra,
þrátt fyrir mikla hækkun á elds-
neytisverði. Hagnaður félagsins
nam 70 milljónum evra eða 5,5
milljörðum króna á tímabilinu en
á sama tíma í fyrra nam hann 53
milljónum evra, rúmum fjórum
milljörðum króna.
Tekjur Ryanair jukust um 35
prósent á milli ára og námu alls
405 milljónum evra, sem sam-
svarar 32 milljörðum króna.
- dh
18-55 (18-19) viðskipti 2.8.2005 20:27 Page 3