Fréttablaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 12
Axel Gíslason, framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélaganna Samvinnu-
trygginga og Andvöku, var for-
stjóri VÍS um fjórtán ára skeið og
jafnframt framkvæmdastjóri
Samvinnutrygginga og líftrygg-
ingafélagsins Andvöku frá 1989.
Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar varð til í núverandi
formi árið 1989 þegar Samvinnu-
tryggingar, sem voru stofnaðar
árið 1946 að tilstuðlan Sambands
íslenskra samvinnufélaga, sam-
einuðu rekstur sinn rekstri
Brunabótafélags Íslands. Sem
gagngjald fengu Samvinnutrygg-
ingar helmingshlut í VÍS sem tók
yfir tryggingarstarfsemi þess og
Brunabótafélagsins.
„Þá breyttist starfsemi Sam-
vinnutrygginga úr því að vera í
beinum tryggingarrekstri í það að
vera annar af tveimur stórum
hluthöfum VÍS. Brunabótafélagið
breyttist einnig í eignarhaldsfé-
lag,“ segir Axel.
Eignarhaldsfélagið Andvaka
varð til þegar LÍFÍS (Líftrygg-
ingafélag Íslands) var stofnað
tveimur árum síðar en þá rann
rekstur Andvöku og líftrygginga-
félags í eigu Brunabótafélags Ís-
lands saman í eitt. Eignarhaldsfé-
lagið Andvaka, sem var upphaf-
lega norskt tryggingafélag sem
Samvinnutryggingar festu kaup
á, á enn stóran hlut í LÍFÍS.
Horfðu fram á harða samkeppni
Hver er ástæða þessara samein-
inga? „Á þessum tíma voru að
verða miklar breytingar á starf-
semi tryggingafélaga í evrópsku
vátrygginga- og fjármálaum-
hverfi. Það lá fyrir að evrópsk
tryggingafélög gætu komið til Ís-
lands og starfað hér án takmark-
ana. Á þessum tíma voru tvö þús-
und tryggingafélög í Evrópu sem
hefðu getað fengið starfsleyfi hér
á landi. Hér voru starfandi mörg
félög á litlum markaði sem hefði
þýtt að samkeppnisstaða þeirra
hefði orðið mjög erfið. Rekstrar-
lega séð var það mjög skynsam-
legt að sameina þau og hagræða í
rekstrinum. Við sáum spennandi
tækifæri til að spara en á sama
tíma að bæta þjónustuna um allt
land,“ segir Axel og bendir á að
sameiningin hafi gengið betur en
menn þorðu að vona.
Félögin áttu einnig í erfiðleik-
um með að ná sér í áhættufé sem
gagnkvæm tryggingafélög og var
því hlutafélagaformið talið betri
kostur. Gagnkvæm tryggingafé-
lög geta látið hluta hagnaðar eða
arðs ganga til viðskiptavina í
formi afsláttar og henta því vel í
öruggum og reglulegum rekstri.
Þetta félagaform hentar hins veg-
ar illa við erfið rekstrarskilyrði.
Sameiningin gaf nýja trygging-
arfélaginu líka betri tækifæri til
fjárfestinga eins og síðar kom á
daginn.
Hagnaður yfir tvo milljarða
Í samþykktum Eignarhaldsfélags-
ins Samvinnutrygginga segir að
tilgangur félagsins sé meðal ann-
ars að ávaxta sem best eigið fé
þess með þátttöku í vátrygginga-
starfsemi og skyldum rekstri og
annars konar fjárfestingar- og
lánastarfsemi.
Rekstur félagsins gekk ljóm-
andi vel á síðasta ári en þá var af-
koman jákvæð um 2.400 milljónir
króna og arðsemi eigin fjár
hvorki meiri né minni en 132 pró-
sent. Til samanburðar nam hagn-
aður ársins 2003 um 312 milljón-
um.
Þá hagnaðist Andvaka um 120
milljónir króna á síðasta ári.
„Bæði félögin hafa haft það að
meginmarkmiði annars vegar að
vera virkir þátttakendur á vá-
tryggingarmarkaði í gegnum VÍS
og LÍFÍS og hins vegar að ávaxta
þær eigur sem ekki eru þar
bundnar sem best hverju sinni.“
Axel segir það sé ekkert laun-
ungarmál að Eignarhaldsfélagið
Samvinnutryggingar eigi mikið
inni. Til dæmis er stærsta eign fé-
lagsins samkvæmt ársreikningi,
30 prósenta hlutur í VÍS, bókfærð
á þrjá og hálfan milljarð króna,
sem er langt undir markaðsvirði
VÍS þegar það var tekið af mark-
aði á síðasta ári. Axel hefur nátt-
úrlega tröllatrú á VÍS og telur að
það eigi eftir að halda áfram að
gera góða hluti fyrir eigendur
þess.
Með óbeinum hætti er hlutur
Eignarhaldsfélagsins Samvinnu-
trygginga enn stærri í VÍS því það
á hluti í Eignarhaldsfélögunum
Hesteyri og Andvöku sem eiga
svo hluti í VÍS.
Þá á það eignarhlut í KB banka
og hefur á síðustu misserum með-
al annars fjárfest í fjárfestingafé-
lögum sem standa utan um rekst-
ur Lyfju, Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings, Áburðarverksmiðjunnar og
Fóðurblöndunnar.
Varðveitir réttindi tryggingartaka
Eigendur Eignarhaldsfélagsins
Samvinnutrygginga eru annars
vegar tryggingartakar Samvinnu-
trygginga árin 1987-88 og trygg-
ingartakar í lögboðnum bruna-
tryggingum húsa árin 1992-93 og
hins vegar Samvinnutrygginga-
sjóðurinn, sem er eins konar
sjálfseignarstofnun og hefur sama
tilgang og eignarhaldsfélagið.
Hlutdeild tryggingartakanna í
eigin fé er um tvö hundruð millj-
ónir króna en hlutdeild Samvinnu-
tryggingasjóðsins um eitt hund-
rað milljónir samkvæmt ársreikn-
ingum. Varasjóður og annað eigið
fé nemur um fjórum milljörðum
króna.
Hlutverk félagsins er meðal
annars að gæta hagsmuna gömlu
tryggingartakanna og varðveita
þeirra réttindi. „Þetta var hugsað
svo að gömlu tryggingafélögin
væru í eigu tryggingartakanna á
hverjum tíma. Tveimur árum eft-
ir að þeir hætta tryggingartöku
eða falla frá þá falla þessi skilyrtu
réttindi niður og renna inn í Sam-
vinnutryggingasjóðinn. Það er al-
gengur misskilningur að halda að
þau réttindi gangi til annarra og
síðasti maður eignist félagið.
Samvinnutryggingasjóðurinn er
sjálfseignarstofnun sem er rekin
sem deild innan félagsins.“
Verði félaginu slitið eru það
einungis tryggingatakar gömlu
félaganna sem geti gert tilkall til
þess hluta eigin fjár sem er merkt
þeim.
Heimilt er samkvæmt sam-
þykktum að greiða eigendum eig-
in fjár félagsins arð verði hagnað-
ur og er hann þá lagður inn á eig-
infjárreikninga. Jafnframt eru
eiginfjárreikningar hækkaðir á
hverju ári í samræmi við verð-
lagsbreytingar. Verði halli á
rekstri félagsins er hann bættur
úr varasjóði.
Ekki fé án hirðis
Er Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar ekki fé án hirðis eins
og oft er sagt um sparisjóðina?
„Þetta er ekki fé án hirðis - það
er alveg klárt. Þetta er fé sem
fulltrúaráðið, stjórnin og ég sem
framkvæmdastjóri erum hirðar
yfir og berum sameiginlega
ábyrgð á,“ segir Axel.
Fulltrúaráð félagsins, skipað
24 aðalmönnum og sex vara-
mönnum, tilnefnir fimm manna
stjórn Eignarhaldsfélagsins Sam-
vinnutrygginga. „Fulltrúar mega
aðeins sitja í ráðinu í átta ár og
þá kýs það nýjan aðila. Fulltrúa-
ráðsfundur sem aðalfundur ber
ábyrgð á því að afgreiða reikn-
inga og taka stórar ákvarðanir
sem snúa til dæmis að því að
breyta samþykktum félagsins,“
segir hann. Stjórnin ræður fram-
kvæmdastjóra sem fer með dag-
leg málefni félagsins.
Fulltrúaráðsmenn og stjórnar-
menn skulu vera tryggingartakar
hjá VÍS og/eða fyrrverandi trygg-
ingartakar hjá Samvinnutrygg-
ingum.
Ánægður með árangurinn
Axel er bjartsýnn á framtíðina og
er ánægður þegar hann lítur yfir
farinn veg. „Breytingin yfir í
eignarhaldsfélag var í samræmi
við þann tilgang að bæta trygg-
ingarlega reksturinn sem Sam-
vinnutryggingar voru stofnaðar
til að sjá um. Þetta var besta leið-
in að okkar mati á sínum tíma og
ég efast um að nokkur sé í vafa
um að þetta hafi verið rétt
ákvörðun. Eignarhaldsfélagið er
fjárhagslega mun öflugra en
Samvinnutryggingar voru
nokkurn tíma og hefur mikil
tækifæri til að vaxa og dafna,“
segir hann að lokum.
28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
Heldur uppi merki Samvinnutrygginga
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3
110 Reykjavík
Sími: 591 9000
www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Salou
Súpersól 2. og 9. sept.
Frá kr. 24.995
Síðustu sætin
Terra Nova býður síðustu sætin til Salou
á ótrúlegum kjörum. Salou er fallegur
bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan
Barcelona. Þar er Port Aventura,
glæsilegasti skemmtigarður Spánar.
Salou skartar stórkostlegum ströndum,
fjölbreyttri afþreyingu og litríku næturlífi.
Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Kr. 24.995 í 5 daga
kr. 34.990 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
Súpersól tilboð, 2. og 9. sept. í 5
eða 12 daga.
Kr. 34.995 í 5 daga
kr. 44.990 í 12 daga
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna.
Súpersól tilboð, 2. og 9. sept. í 5 eða
12 daga.
12
HELSTU EIGNIR EIGNARHALDSFÉ-
LAGSINS SAMVINNUTRYGGINGA
Félag
VÍS (30%)
Eignarhaldsfélagið Hesteyri
(33% - Hesteyri á 24 prósent í VÍS)
KB banki
Eignarhaldsfélagið Andvaka
(50% - Andvaka á um 5 prósent í VÍS)
M.a. hluthafi í eignarhaldsfélögum utan
um rekstur Áburðarverksmiðjunnar,
Fiskiðjunnar Skagfirðings, Fóðurblönd-
unnar, Lyfju og Samkaupa
Eignarhaldsfélagi› Samvinnutryggingar hagna›ist
um 2,5 milljar›a á sí›asta ári og s‡ndi frábæra
ávöxtun. Félagi› er stór eigandi í VÍS, KB banka,
sjávarútvegi, landbúna›i og verslunarrekstri. Eggert
fiór A›alsteinsson hitti Axel Gíslason, framkvæmda-
stjóra Eignarhaldsfélaganna Samvinnutrygginga og
Andvöku, a› máli og fræddist um sögu, rekstur og
tilgang félaganna.
AXEL GÍSLASON, FRAMKVÆMDASTJÓRI EIGNARHALDSFÉLAGANNA SAMVINNUTRYGGINGA OG ANDVÖKU Hlutverk félag-
anna er að ávaxta eigið fé með sem bestum hætti með aðild að vátrygginga- og fjármálastarfsemi.
„fietta er ekki fé án hir›is - fla› er alveg klárt. fietta er fé sem
fulltrúará›i›, stjórnin og ég sem framkvæmdastjóri erum hir›ar
yfir og berum sameiginlega ábyrg› á,“