Fréttablaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 21
[ ]
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 28. ágúst,
240. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.58 13.29 20.58
AKUREYRI 5.36 13.14 20.49
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Bókabúðin Úlfarsfell í
Vesturbæ Reykjavíkur
er ein af þessum gömlu
góðu sem ekki eru hluti
af neinni keðju. Petrea
Finnsdóttir vinnur í
bókabúðinni. Henni lík-
ar starfið vel og segir
samskiptin við við-
skiptavinina það sem
gefi henni mest.
Petrea segist hafa unnið í
Úlfarsfelli árum saman.
Hún vinnur með hléum en
er alltaf til taks þegar mik-
ið er um að vera. Til dæm-
is núna þegar skólarnir eru
að byrja.
„Mesta traffíkin er
gengin yfir en það er samt
enn mikið að gera,“ segir
Petrea og bætir því við að
það sé alltaf gaman að
vinna í skólavertíðinni.
„Það er skemmtileg stemn-
ing þegar skólarnir eru að
byrja og það er gaman að
afgreiða krakkana með
skóladótið. Oft eru foreldr-
arnir að kaupa skóladót
fyrir mörg börn og þá þarf
að aðstoða mikið,“ segir
Petrea. Henni þykir gaman
að vinna í bókabúðinni og
segir að viðskiptavinirnir
séu það sem geri starfið
svo skemmtilegt. „Ég fæ
tækifæri til þess að hitta
alls konar fólk og það er
gaman að sjá hvað kúnn-
arnir eru ólíkir. Þetta er í
rauninni hverfisbókabúð
og þess vegna myndast dá-
lítið skemmtileg stemning
hérna. Sama fólkið kemur
aftur og aftur og við erum
með dyggan hóp viðskipta-
vina,“ segir Petrea og talar
sérstaklega um alla eldri
borgarana sem eru tíðir
gestir í búðinni. „Það er
ákaflega gaman að hitta
allt þetta indæla gamla
fólk. Á fimmtudögum er til
dæmis mikið um að vera
því þá koma allar eldri
dömurnar í hverfinu til að
sækja dönsku blöðin sín.“
Petrea viðurkennir að
oft mætti vera meira að
gera í búðinni. „Þetta kem-
ur svona í törnum. Annars
hefur verslunin tekið tölu-
verðum breytingum í
gegnum árin og núna erum
við til dæmis með um-
fangsmikla filmuframköll-
un sem við leggjum
áherslu á. Það er alltaf eitt-
hvað að gera í því,“ segir
Petrea.
Þegar skólavertíðin er
liðin er ekki langt í að jóla-
bókaflóðið ryðjist inn í
bókabúðirnar. Að sögn
Petreu þarf starfsfólk
bókabúða að undirbúa sig
vel fyrir jólatörnina og afla
sér þekkingar um bækur
og höfunda. „Það verður
ekki mikill dauður tími
þegar skólatraffíkin er
búin. Heimalærdómurinn
hefst um leið og Bókatíð-
indin koma út. Þau eru eins
konar leiðarvísir að jólun-
um fyrir starfsfólk bóka-
búða,“ segir Petrea og hlær.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ O.FL.
FJARVISTASTJÓRNUN
Bættur starfsandi dregur úr
streitu. BLS 2
LÖGREGLUMAÐUR
Þverskurður af þjóðfélaginu
í lögreglunni. BLS 8
Petrea segir starfið skemmtilegt og henni þykir sérlega vænt um allt gamla fólkið sem kemur reglulega í búðina.
Gaman a› vinna
í skólavertí›inniKennararSölumenn
Viðskiptafræðingur
Leiðbeinendur
Þjónustufulltrúi
Aðstoð í eldhús
Ritari
Kranastjóri
Lögfræðingur
Innheimta
Leikskólakennarar
Bifreiðasmiður
Fyrirtækjafulltrúi
Félagsliðar
Þjónustustjóri
Bókari
Tækniteiknari