Fréttablaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 26
6
ATVINNA
Verkamenn vantar
til starfa strax.
Upplýsingar í síma 660-6100, Sölvi eða 545-1805.
Þjónustumiðstöð Miðborgar og
Hlíða auglýsir:
Félagsráðgjafi / ráðgjafi
Starfssvið:
· Vinna í meðferðarmálum með einstaklingum
og fjölskyldum
· Þverfaglegt starf í Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða
· Samvinna við samstarfsaðila og hagsmunasamtök
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða háskólamenntun
á sviði félagsfræði, sálfræði eða uppeldisfræði
· Reynsla af meðferðarvinnu æskileg
· Lipurð í mannlegum samskiptum
· Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Um er að ræða tímabundna ráðningu til 31. júlí
2006. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Gísladóttir,
framkvæmdastjóri í síma 411 1600 eða 664 7770,
netfang: hafdis@reykjavik.is
Umsóknum skal skilað á Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða, Skúlagötu 21 fyrir 9. september nk.
Bólstaðarhlíð – Ritari
Félags-og þjónustumiðstöðin í Bólstaðarhlíð óskar
að ráða ritara til starfa sem er skipulagður og
góður í mannlegum samskiptum. Helstu verkefni
eru símavarsla, afgreiðsla í móttöku og almenn
skrifstofustörf.
Um er að ræða tímabundna ráðningu og þarf
viðkomandi að getað hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir hafi samband við Jónu Vernharðsdóttur,
verkefnisstjóra í síma 535 2760,
netfang: jona.th.vernhardsdottir@reykjavik.is
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða býður upp á
möguleika á að hafa áhrif og taka þátt í uppbygg-
ingu og mótun nýrrar þjónustumiðstöðvar, þverfag-
lega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki og
sveiganlegan vinnutíma. Þjónustumiðstöðin er
þekkingarstöð í fjölmenningu og margbreytileika
og er lögð sérstök áhersla á að umsækjendur hafi
þekkingu og reynslu á því sviði.
Þjónustumiðstöðvar eru starfræktar á sex stöðum í borginni. Markmiðið með stofnun þeirra er að auka
aðgengi að þjónustu borgarinnar, stuðla að samstarfi sérfræðinga í málefnum barna og fjölskyldna og
efla hverfastarf.
Þjónustumiðstöðvar heyra undir Þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkurborgar þar sem lögð er áhersla
á framsækna þjónustu við viðskiptavini og hagkvæmni í rekstri. Starfsmenn eru lykill að velgengni
stofnana og deilda sviðsins og gegna mikilvægasta hlutverkinu í þjónustumiðaðri starfsemi.
Reykjavíkurborg
Þjónustumiðstöðvar
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Vakin er athygli á
stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum.
Hljómsveitarstjóri er maðurinn í smókingn-
um sem stendur fyrir miðju hljómsveitar-
innar og baðar út höndunum. Þó að fyrir
mörgum líti hljómsveitarstjóri út fyrir að
vera nokkuð tilgangslaus er hann höfuð
hljómsveitarinnar. Hann heldur bandinu
saman með því að slá takinn og gefur
bendingar til að aðstoða hljóðfæraleikarana
við að koma tónlistinni saman. Hljómsveit-
arstjóri stjórnar æfingum og ákveður hvern-
ig tónlistin skal flutt innan þess ramma
sem tónskáldið leyfir.
Nám
Engin námskrá er til fyrir hljómsveitarstjórn
og aðalnámskráin sem menntamálaráðu-
neytið gaf út fyrir nokkrum árum gerir ekki
ráð fyrir neinum nemendum í greininni. Aft-
ur á móti hefur grunnur í hljómsveitarstjórn
verið kenndur í nokkrum tónlistarskólum
sem aukagrein fyrir áhugasama nemendur.
Hefur þá tíðkast að kennarar með reynslu af
tónlistarstjórn hafa tekið valda nemendur í
læri í greininni. Nokkrir menntaðir hljóm-
sveitarstjórar hafa komið frá Íslandi og hafa
þeir allir lært í útlöndum. Í tónlistarháskól-
um víða um heim er boðið upp á kennslu í
hljómsveitarstjórn og gilda þar sömu reglur
og um margt annað nám í tónlist að þar
skipta gæði aðalkennarans miklu máli.
Helstu námsgreinar
Fyrst og fremst þarf hljómsveitarstjóri að
hafa mikla innsýn í tónlistina sjálfa. Hann
þarf því að þekkja tónlistarsögu vel og eftir
hvaða áherslum og blæbrigðum venjan er
að leita í tónlist frá mismunandi tímum og
svæðum. Hljómsveitarstjórinn þarf að hafa
mjög gott hrynskyn og geta leitt hljómsveit-
ina styrkum höndum án þess að láta hana
ferðast með sig út af sporinu. Hann þarf
fyrst og fremst að vera með gott tóneyra og
kunna að hlusta eftir því sem betur má fara
í stórri heild.
Inntökuskilyrði
Eins og áður sagði þarf góðan tónlistarlegan
grunn til að verða hljómsveitarstjóri. Slíkan
grunn öðlast fólk ekki eingöngu með því að
lesa sér til og munda sprotann heldur er
nauðsynlegt að viðkomandi ráði yfir ákveð-
inni tónlistarfærni sem fátítt er að fólk öðlist
nema með færni í hljóðfæraleik. Því kemur
ekki á óvart að yfirgnæfandi hluti allra
hljómsveitarstjóra hefur lært á eitthvert
hljóðfæri. Þó virðist það ekki skipta máli á
hvaða hljóðfæri er leikið og geta blásturs-
hljóðfæraleikarar sem og strengjaleikarar og
ásláttarhljóðfæraleikarar verið færir hljóm-
sveitarstjórar.
Að loknu námi
Þegar námi er lokið tekur við harkið á hin-
um almenna vinnumarkaði. Hér á landi eru
tækifærin fá enda einungis ein hljómsveit á
Íslandi sem eingöngu er skipuð atvinnu-
hljóðfæraleikurum. Fyrsta skrefið er því lík-
lega að stjórna fyrst lélegum hljómsveitum
og vinna sig síðan upp í virðingastiganum.
Laun og kjör
Eins og með margt í tónlistarbransanum
getur tónlistarstjórnun oft gefið lítið í aðra
höndina. Aftur á móti ef þú ert fær í starfi er
hægt að öðlast frægð og frama en því fylgja
mikil auðæfi. Fremstu hljómsveitarstjórar í
heimi ferðast milli tónleikahúsa til að stjórna
hljómsveitum í mörgum heimsálfum. Það
verður þó að viðurkennast að líkurnar á að
öðlast heimsfrægð eru afskaplega litlar.
Hvernig verður maður …
Rumon Gamba er aðalhjómsveitarstjóri Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands.
Hljómsveitarstjórar þurfa tónlistarlegt innsæi.
Hljóðfæraleikarar þurfa styrka hönd til að
stjórna þeim.
… hljómsveitarstjóri