Fréttablaðið - 28.08.2005, Síða 62
28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
Argentínumaðurinn GabrielHeinze, sem leikur með
Manchester United, er vongóður um
að keppnistímabilið
serm er nýhafið verði
árangursríkt fyrir
Manchester. „Ef við
ætlum að vera í topp-
baráttunni verðum við
að halda einbeitingu
allt tímabilið og hafa
trú á því að við getum
unnið öll lið í deild-
inni. Ég held að ekkert lið sé betra
en við þegar við sýnum okkar besta.
Chelsea er með sterka vörn en sókn-
arleikur liðsins mætti vera betri.“
Heinze hefur leikið vel það sem af er
tímabili og hefur meira að segja ver-
ið að skora mörk, en hann er ekki
þekktur fyrir mikla markaskorun.
Alan Curbishley, knattspyrnustjóriCharlton Athletic, segist þurfa tvo
leikmenn til viðbótar til þess að lið
félagsins geti blandað sér í baráttuna
um sæti í Evrópukeppni. „Það sýndi
sig á síðustu leiktíð að leikmanna-
hópur okkar var ekki nægilega stór
þegar leikjaálagið fór að aukast. Þess
vegna ætla ég að reyna að fá tvo
góða leikmenn til
félagsins áður en
félagsskiptaglugg-
inn lokar.“ Charlton
hefur byrjað leiktíð-
ina ágætlega og
hefur nýr framherji
liðsins, Darren
Bent, leikið sérstak-
lega vel í framlín-
unni. Hermann Hreiðarsson hefur
leikið í stöðu miðvarðar og leyst þá
stöðu vel. Á síðustu árum hefur hann
að mestu leyti leikið í stöðu vinstri
bakvarðar en virðist nú vera búinn
að festa sig í sessi sem miðvörður.
Jean-Michel Aulas, forseti franskaknattspyrnufélagsins Lyon, er
hæstánægður með að hafa náð að
klófesta Portúgalann Tiago, en hann
var áður á mála
hjá Chelsea. Ger-
ard Houllier
lagði mikla
áherslu á það að
fá Tiago til Lyon
en honum er ætl-
að að fylla skarð
Mikael Essien
sem fór nýlega til
Chelsea. „Það er
gott að vera bú-
inn að ganga frá þessum kaupum
því við höfum verið að eltast við Ti-
ago í langan tíma. Hann lék frábær-
lega í Portúgal og átti gott fyrsta
tímabil með Chelsea á síðustu leik-
tíð. Hann mun verða í aðalhlutverki
hjá okkur á komandi leiktíð og verð-
ur örugglega einn af bestu leikmönn-
um Portúgals í HM á næstu leiktíð.“
Nicky Butt vonast til þess að náað sýna sitt besta í næstu leikj-
um með Birmingham City en hann
náði sér ekki nægi-
lega vel á strik
með Newcastle
United á síðustu
leiktíð. „Ég var ekki
nægilega góður
hjá Newcastle í
fyrra. Ég lék
meiddur í margar
vikur og átti erfitt með að sýna stöð-
ugleika eftir það. Ég reyndi mitt besta
en það var ekki nægilega gott. Ég hef
fulla trú á því að ég geti náð að sýna
hvers ég megnugur hjá Birmingham
City. Hér er knattspyrnustjóri sem
hefur trú á mér og það skiptir sköp-
um. Ef sjálfstraustið verður í lagi held
ég að það sé möguleiki fyrir mig að
komast í landsliðshópinn fyrir heims-
meistaramótið í Þýskalandi á næstu
leiktíð.“
ÚR SPORTINU
Jörundur Áki Sveinsson, fljálfari íslenska landsli›sins, segir sænska li›i› vera
grí›arlega sterkt en fla› hefur veri› í fremstu rö› í heiminum á sí›ustu árum.
Miki› mun flví mæ›a á varnarmönnum íslenska li›sins í dag.
Áhersla lög› á varnarleik
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu mætir í dag því
sænska á Nobelstadion í
Karlskoga í Svíþjóð, en leikurinn
er hluti af undankeppni heims-
meistaramótsins. Lið Svíþjóðar er
eitt það allra besta í heiminum og
hefur margsinnis leikið til úrslita á
stórmótum á síðustu árum.
Jörundur Áki Sveinsson, lands-
liðsþjálfari, vonast til þess að ís-
lenska liðið geti komið á óvart.
„Þetta verður erfiður leikur og
varnarleikur okkar verður að vera
virkilega góður. Sænska liðið er
eitt það besta í heiminum og í
svona leikjum er ekki hægt að
leyfa sér neitt kæruleysi. Það mun
því verða okkar verkefni að nýta
skyndisóknirnar og sýna samstöðu
í varnarleiknum.“
Sigur í fyrsta leiknum
Íslenska liðið er búið að keppa
einn leik til þessa og var það gegn
landsliði Hvíta-Rússlands. Ís-
lenska liðið vann þann leik nokkuð
örugglega, 3-0, en Jörundur hefði
viljað vinna hann með meiri mun.
„Auðvitað hefði verið gott að
vinna með meiri mun en það er
líka gott veganesti fyrir þennan
leik gegn Svíþjóð að halda mark-
inu hreinu og það verður útgangs-
punktur okkar í leiknum gegn
sænska liðinu.“
Þrjár að glíma við meiðsli
Þrír leikmenn íslenska liðsins
eiga við smávægileg meiðsl að
stríða en það eru Laufey Ólafsdótt-
ir, Greta Mjöll Samúelsdóttir og
Guðlaug Jónsdóttir. Jörundur von-
ast til þess að þær verði með í
leiknum í dag. „Vonandi verða þær
klárar í slaginn en ég geri nú ekk-
ert ráð fyrir því að þær verði allar
orðnar leikhæfar.“
Mikið mun mæða á Eddu Garð-
arsdóttur, leikmanni Breiðabliks,
en hún verður líklega í stöðu
aftasta miðjumanns eða í vörninni.
„Leikurinn leggst vel í okkur
enda er Svíþjóð eitt besta landslið í
heiminum. Við þurfum allar að
leika vel ef stig á að nást út úr
þessari viðureign. Við erum með
góða sóknarmenn eins og Margréti
Láru Viðarsdóttur og Ásthildi
Helgadóttur og þær þurfa ekki að
fá mörg færi til þess að skora. Ef
varnleikurinn gengur vel þá fáum
við örugglega einhver marktæki-
færi og vonandi tekst okkur að
nýta þau.“ magnush@frettabladid.is
Erfiðar aðstæður settu strik í reikninginn hjá Ólöfu Maríu í Finnlandi í gær:
GOLF Kylfingurinn Ólöf María
Jónsdóttir náði sér ekki nægi-
lega vel á strik á fyrstu tveimur
hringjunum á Opna finnska
meistaramótinu í Helsinki um
helgina, en hún lék á ellefu högg-
um yfir pari vallarins. Fyrri
hringurinn var örlítið betri, en
þá lék Ólöf á fimm höggum yfir
pari, en annan hringinn á sex
höggum yfir pari vallarins.
Ólöf sagði aðstæðurnar í
Helsinki hafa verið erfiðar þar
sem mikill vindur setti mark sitt
á spilamennsku kylfingana. „Ég
er nú ekkert sérstaklega ánægð.
Ég var óheppin með veðrið því
annar hópurinn fékk ágætt veður
en hinn hópurinn, sem ég var í,
fékk mikinn vind sem erfitt var
við að eiga. Ég reyndi eins og ég
gat að hafa stjórn á spilamennsk-
unni en það var erfitt. Aðstæð-
urnar leyfðu manni ekki að gera
mörg mistök og því fór þetta
ekki eins vel og hefði viljað.“
Ólöf var í 72.sæti þegar hún lauk
keppni í gær og náði ekki að
komast í gegnum niðurskurðinn.
-mh
A›eins hársbreidd frá flví a› komast áfram
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Í BARÁTTUNNI Mikið mun mæða á fyrirliða íslenska landsliðs-
ins, Ásthildi Helgadóttur, en hún þekkir vel til sænska liðsins þar sem hún leikur með
einu af sterkari liðum Svíþjóðar, Mamö FF. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
ÓLÖF MARÍA JÓNSDÓTTIR Ekki hefur
gengið nógu vel hjá Ólöfu Maríu að und-
anförnu en hún vonast eftir betra gengi í
næsta móti sem fer fram í Danmörku.