Fréttablaðið - 28.08.2005, Page 64
32 28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
Þrátt fyrir það að
mér hafi verið legið
það á hálsi að vera
þunglyndur, geð-
vondur og pirraður í
þessum pistlum
ætla ég að láta það
eftir mér, eina ferð-
ina enn, að vera leið-
inlegur í dag.
Þetta eru fastir liðir hjá mér á
haustin en þá verð ég eins og geit-
ungur. Finn einhverja undarlega
feigð læðast að mér og get ekki
brugðist öðruvísi við en að sýna
mínar verstu hliðar og helst
stinga.
Nú er haustið ofboðslega falleg-
ur tími og engin ástæða til annars
en að brosa framan í kaldan vind-
inn og njóta sólarlagsins. Við geit-
ungarnir getum það bara ekki
vegna þess að við horfum bara á
það neikvæða. Vitum að handan
bleiks sólsetursins bíður myrkur,
brunagaddur, haustútsölur, þing-
setning og alls konar önnur geð-
veiki sem hverfur á sumrin.
Þegar mér og geitungunum líð-
ur illa langar okkur mest af öllu til
þess að öðrum líði líka sem verst
og þess vegna erum við viðskotaill-
ir og látum allt fara í taugarnar á
okkur. Rót vandans liggur samt
ekki hjá fíflunum sem okkur lang-
ar að stinga heldur okkur sjálfum.
Það eru gömul sannindi að eftir því
sem fíflunum í kringum mann
fjölgar þá er eitthvað að hjá manni
sjálfum. Það eru því eðlileg við-
brögð okkar fýlupúkanna að láta
eiturstungum og fúkyrðum rigna
yfir samferðarfólk okkar.
Geitungarnir eru þó bundnari af
eðli sínu en ég þannig að þeir geta
ekkert gert nema stungið einhvern
og dottið svo niður dauðir. Þeir eru
svolítið svipaðir reiða fréttablogg-
aranum á Suðurlandi sem dritaði
ónotum og kláða yfir ríkisbubba og
meint skítapakk. Nú er búið að taka
broddinn úr rassinum á honum og
eftir stendur fífl sem lét fíflin í
kringum sig hafa sig að fífli.
Sjálfur ætla ég að byggja á
reynslunni, búa mig undir veturinn
með því að kaupa dúnsæng, klæða
broddinn minn í bómull, og brosa
við vetrinum og fíflunum því að
fíflið það er ég. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON GETUR BREYTT RÉTT ÞVÍ HANN SKILUR GEÐSLAG GEITUNGA.
Haustpirringur
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Ásatrúarfélagið
Aukaallsherjarþing laugardaginn
10. september 2005 kl. 14:00.
Ásatrúarfélagið boðar til aukaallsherjarþings
í húsnæði félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík,
laugardaginn 10. september nk. Eina málið á
dagskrá verður umræða og atkvæðagreiðsla
um sölu húsnæðis félagsins að Grandagarði 8,
Reykjavík.
Reykjavík, 23. ágúst 2005,
f.h. lögréttu,
lögsögumaður.
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
7 8 5 6
8 4 9 3
9 1 2 7
3 7 6 8 1
3 1
4 5 9 8 6
4 6 2 7
4 6 7 5
9 5 3 4
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
3 6 2 8 9 4 7 5 1
1 5 4 6 3 7 2 9 8
8 9 7 2 5 1 3 6 4
9 4 6 1 7 3 5 8 2
2 3 8 9 6 5 1 4 7
5 7 1 4 2 8 9 3 6
7 1 3 5 8 6 4 2 9
6 2 5 7 4 9 8 1 3
4 8 9 3 1 2 6 7 5
Lausn á gátu gærdagsins
Nú verð ég bara að fá mér
svolítið brennivín!
Kókið gerir mig alveg
kexruglaðann!