Fréttablaðið - 22.09.2005, Qupperneq 2
2 22. september 2005 FIMMTUDAGUR
Rannsóknir í norðurhöfum:
Sjórinn aldrei
jafn heitur
NÁTTÚRA Miklar breytingar hafa
orðið á hitastigi sjávar í norður-
höfum á undanförnum árum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsókna loftslagssérfræðinga
frá Færeyjum, Noregi og Íslandi
sem birtar eru í nýju tölublaði
hins virta bandaríska vísinda-
tímarits Science.
Sjávarhiti á þessum slóðum
hefur aldrei áður mælst jafn hár
og eins mælast miklar breytingar
á saltmagni og hafstraumum milli
Evrópu og Norður-Ameríku. - sþs
Á SLYSSTAÐ Þrír voru fluttir undir læknis-
hendur eftir harkalega aftanákeyrslu á
Njarðarbraut í Reykjanesbæ nokkru eftir
klukkan sex í gærdag.
Reykjanesbær:
firír slasa›ir
eftir árekstur
LÖGREGLA Laust eftir klukkan sex í
gærdag var fólksbifreið ekið aftan
á flutningabifreið við hraðahindr-
un sem nýbúið er að setja upp á
Njarðarbraut í Reykjanesbæ.
Þrír voru fluttir á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja eftir slysið,
ökumaður og farþegi fólksbílsins,
auk ökumanns flutningabifreiðar-
innar. Nokkur viðbúnaður var
vegna slyssins, en á vettvang fór
bæði lögregla og sjúkrabifreiðar
frá Brunavörnum Suðurnesja.
Ekki lágu fyrir nákvæmar upplýs-
ingar um meiðsli fólksins hjá lög-
reglu í Keflavík, en þau voru þó
talin allnokkur.
Fólksbíllinn var fluttur af vett-
vangi með dráttarbifreið, mikið
skemmdur. - óká
HVALFJARÐARGÖNG
FIKT KOM AF STAÐ ÚTKALLI
Slökkvibílar voru sendir bæði frá
Akranesi og Reykjavík þegar við-
vörunarkerfi fór í gang í Hval-
fjarðargöngunum í gær. Ekki var
þó hætta á ferðum heldur hafði
einhver losað handslökkvitæki í
göngunum, en þau eru tengd
kerfinu.
SPURNING DAGSINS
Kjartan, er fletta steinrunnin
umræ›a?
„Spurðu Steinunni.“
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi leggur til að
reist verði stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir vill hins vegar að
konum verði gert hærra undir höfði í þessum
efnum.
Stærra og d‡rara en
rá›gert var í fyrstu
Fyrirtæki› Portus Group var í gær vali› til fless a› hanna, reisa og reka tónlistar-
hús, rá›stefnumi›stö› og hótel vi› Austurhöfnina í Reykjavík. fietta var ni›ur-
sta›a matsnefndar Austurhafnar-TR ehf. Austurhöfn-TR er í eigu borgar og ríkis.
TÓNLISTARHÚS „Þetta varð hörku
vítaspyrnukeppni að lokum,“ sagði
Björgólfur Guðmundsson, banka-
stjóri Landsbankans, þegar niður-
stöður útboðs um hönnun, bygg-
ingu og rekstur tónlistarhúss við
Austurhöfnina í Reykjavík voru
kynntar í gær. Það var fyrirtækið
Portus Group sem hreppti hnossið
og var tilboð þeirra valið sem væn-
legasti kosturinn. Portus Group er í
eigu Nýsis hf., Íslenskra aðalverk-
taka og Landsafls, en Landsafl er í
eigu Landsbankans.
Tilboð Portus Group hljóðar upp
á tólf milljarða en upphafleg kostn-
aðaráætlun Austurhafnar-TR mið-
aðist við 8,5 milljarða króna. Til-
boðið er þannig 3,5 milljörðum yfir
áætlun. Byggingin verður um það
bil 6000 fermetrum stærri upphaf-
lega var gert ráð fyrir. Árlegt
framlag vegna kostnaðar, vaxta og
rekstrar er áætlaður 600 milljónir
króna eftir sem áður.
Byggingin kemur til með að
rúma 1.800 sæta tónleikasal, ráð-
stefnusal með 750 sætum ásamt
sýningaraðstöðu, kammermúsíksal
fyrir 450 áheyrendur sem og minni
sal sem tekur um 200 manns. Þar
verða jafnframt fundarherbergi,
forsalir og veitingaaðstaða. Sam-
tengt hótel verður 250 herbergja.
Samkomulag hefur verið gert við
hótelkeðjuna Starwood Hotels um
rekstur á hótelinu, en Starwood
rekur meðal annars Sheraton, Four
Points og W-hótelin.
Það kom í hlut þeirra Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra og Steinunnar Val-
dísar Óskarsdóttur borgarstjóra að
afhjúpa líkan af byggingunni og
svæðinu við athöfn í Þjóðmenning-
arhúsinu við Hverfisgötu í gær.
Austurhöfn-TR, sem er fyrirtæki í
eigu ríkisins og Reykjavíkurborg-
ar, hefur séð um undirbúning verk-
efnisins síðan árið 2003.
Stefán Baldursson, formaður
matsnefndarinar, sagði í gær að
nefnin hafi álitið einróma að vinn-
ingstillagan væri afar glæsileg.
Byggingin kæmi til með að verða
áhrifamikið kennileiti í ásýnd höf-
uðborgarinnar.
Hægt verður að skoða líkön og
myndir af húsinu ásamt öðrum til-
lögum í Þjóðmenningarhúsinu fram
til fimmta október. Húsið á að verða
tilbúið árið 2009. saj@frettabladid.is
KAMPAKÁT Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri,
Björgólfur Guðmundsson Landsbankastjóri og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
TÓNLISTARHÚS, RÁÐSTEFNUMIÐSTÖÐ OG HÓTEL Hér má sjá tölvugerða mynd af hluta
hússins. Arkitektarnir unnu með Ólafi Elíassyni listamanni að hönnuninni og er verk Ólafs
notað sem hluti af byggingunni.
Ríkislögreglustjóraembættið svarar gagnrýni vegna Baugsmálisins:
Dylgjur stjórnmálamanna eru óflolandi
BAUGSMÁLIÐ Embætti Ríkislög-
reglustjóra hafnar því alfarið að
lagt hafi verið upp í rannsóknina á
Baugi á öðrum forsendum en fag-
legum. „Lög og reglur gilda um
hvernig rannsóknir byrja og eftir
þeim hefur verið farið nákvæm-
lega,“ segir Arnar Jensson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn hjá Rík-
islögreglustjóra.
Hann gagnrýnir Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, formann
Samfylkingarinnar, sem enn seg-
ist þeirrar skoðunar að rætur
Baugsmálsins liggi meðal annars í
andrúmslofti sem ráðamenn hafi
átt þátt í að skapa.
Arnar segir gagnrýni af hálfu
sakborninga og verjenda eðlilega
og ekki við öðru að búast frá
þeim. „En við gerum mikinn
greinarmun á því þegar einhverj-
ir ráðamenn eru farnir að hoppa
upp í þann vagn. Sérstaklega þeg-
ar fram koma órökstuddar dylgj-
ur um að við séum handbendi
spilltra stjórnmálamanna í svona
stóru og alvarlegu máli. Undir því
finnst okkur óþolandi að sitja,“
segir Arnar.
„Að sjálfsögðu er mjög slæmt
að leggja fram ákæru sem dómar-
ar telja gallaða, en verður þó að
skoða í því samhengi að saksókn-
ari skrifar ákæruna meðvitað á
ákveðinn hátt og lætur reyna á
fyrir dómi. Þarna eru saksóknar-
inn og dómarinn bara ósammála,“
segir hann og telur mikilvægt að
bíða úrskurðar Hæstaréttar en
þangað verður málinu áfrýjað.
„Vandinn felst kannski í að
reynt var að gera þremur tegund-
um brota skil í einni verknaðar-
lýsingu,“ segir hann.
Arnar segist ekki geta svarað
hvað verði taki Hæstiréttur undir
með héraðsdómi. „Saksóknari
ákveður það, en ég tel hann nú
hafa gefið í skyn, að ákærur verði
gefnar út að nýju.“ - óká
Kárahnjúkaverkefni Slippstöðvarinnar á Akureyri:
Erlendir starfsmenn sendir heim
ATVINNA Allir íslenskir starfsmenn
Slippstöðvarinnar á Akureyri,
sem unnu við samsetningu á
þrýstipípum í aðfallsgöngum
Kárahnjúkavirkjunar, eru farnir
af virkjunarsvæðinu en þeir voru
innan við tíu talsins. Fimmtán
pólskir starfsmenn Slippstöðvar-
innar við Kárahnjúkavirkjun fara
utan einhvern næstu daga.
Slippstöðin var undirverktaki
DSD Stahlbau GmbH við verkið
en í kjölfar greiðslustöðvunar
Slippstöðvarinnar sögðu Þjóð-
verjarnir samningi sínum við
Slippstöðina upp og hyggst félag-
ið nota sína eigin starfsmenn til að
ljúka verkinu.
Sigurður Arnalds, kynningar-
stjóri Kárahnjúkavirkjunar, segir
að þótt starfsmenn Slippstöðvar-
innar hafi lent í byrjunarerfið-
leikum við verkið, og loks gengið
úr skaftinu í síðustu viku, þá sé
verkið enn á tímaáætlun. Skýrist
það af því að Fosskraft, sem sá
um að grafa aðfallsgöngin, lauk
því verki á undan áætlun sem
gerði starfsmönnum Slippstöðv-
arinnar kleift að hefja vinnu við
samsetningu þrýstipípanna fyrr
en áætlað var. - kk
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN
STARFSMAÐUR SLIPPSTÖÐVARINNAR Allir starfsmenn Slippstöðvarinnar við Kárahnjúka
verða sendir heim og störf rúmlega 100 starfsmanna félagsins á Akureyri eru í upplausn
eftir að félagið fékk greiðslustöðvun.
Lögregla rannsakar mannrán:
Stúlku rænt
í Laugardal
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
rannsakar hvort átta ára gamalli
stúlku hafi verið rænt skammt frá
Laugardalslauginni í gærdag.
Stúlkan segir að maður hafi
þröngvað henni upp í bíl sinn þar
sem hún var að koma úr skólasundi
og á leið í Laugarnesskóla. Hann
hafi farið með hana í stórmarkað
og tekið af henni ljósmyndir á
meðan hann lét hana máta föt. Hún
segir hann svo hafa látið sig fá
nokkur hundruð krónur og keyrt
hana í skólann. Móðir stúlkunnar
tilkynnti lögreglu um atvikið.
Lögregla hefur skoðað myndir
úr öryggismyndavélum verslunar-
innar án þess að nokkuð grunsam-
legt hafi komið í ljós, en áfram er
unnið að rannsókn málsins. ■
ARNAR JENSSON
AÐSTOÐARYFIRLÖGREGLUÞJÓNN FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
LAUGARDALURINN Átta ára stúlka ber að
sér hafi verið rænt eftir skólasund í gær.
SJÁVARÚTVEGUR
STEINBÍTSVEIÐAR BANNAÐAR
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
bannað veiðar á steinbít á ákveðn-
um svæðum á Látragrunni frá og
með laugardeginum 24. septem-
ber til loka marsmánaðar 2006.