Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 29
3FIMMTUDAGUR 22. september 2005
Fyrir nokkru uppgötvuðu snyrtivörufyrirtæki að karlmenn væru til-
kippilegri en áður í snyrtivöruinnkaupum og hefur þessi markaður
blómstrað síðustu misseri. Svo voru það nærfötin sem allt í einu
skiptu meira máli en áður og framleiðendur neru saman höndunum
í eftirvæntingu og settu á markað nýjar gerðir af nærum. Síðasta
byltingin er svo háreyðingarmeðferðir hvort sem um er að ræða
rakstur, háreyðingarkrem eða jafnvel leysigeislameðferð, því nú
eiga líkamshár að vera „tamin“ en ekki að vaxa villt í allar áttir.
Þegar öllu þessu er lokið er hægt að hugsa um fataskápinn.
Herratíska tekur minni breytingum frá ári til árs en kventískan þó
herrarnir verði sífellt áhugasamari um tískuna. Þess vegna eru það
gallabuxur sem eru enn og aftur hátískan fyrir svala gæja í vetur.
Litagleði ræður sömuleiðis ríkjum hjá karlmönnum ef marka má
það sem hönnuðir senda frá sér. Hárautt, grasgrænt, brúnt og
kóngablátt eru meðal þeirra lita sem sjást hvað mest í vetur. Hjá
Lacroix má finna hárauð sléttflauelsföt en sléttflauel verður áfram
vinsælt í karlmannafötum í vetur. Bill Tornade lætur sér duga
hárauðan stakan flauelsjakka sem minnir á jakka sem Tom Ford
klæddist á sinni síðustu tískusýningu fyrir Gucci á síðasta ári. Um-
fram allt er köflótt í tísku, það gildir jafnt hjá Burberry, Vivienne
Westwood, Sonia Rykiel, Kenzo og meira að segja hjá Diesel. Al-
mennt er þó herratískan í heild frekar uppáklædd og fáguð.
Nærfatabyltingin heldur áfram í vetur og aldrei hefur verið
meira úrval af litríkum brókum úr ýmsum efnum. Enn meira úrval
af gegnsæju efni og þröngar stuttbuxur, svokallaðar „shorty“ eru
það allra vinsælasta og reyndar svo að í kvennærfötum er G-streng-
urinn á undanhaldi og kemur „shorty“ í staðinn. Toppurinn er að
vera í nærbuxum sem passa við fötin. Teygjan í nærbuxunum verð-
ur sífellt mikilvægari. Það kemur til af því að gallabuxur og reynd-
ar fleiri gerðir af buxum ná lægra upp í mittið og því sést teygjan.
Teygjurnar eru nú breiðari en áður og merkið skrifað stórum stöf-
um (Calvin Klein, Dim, Hom, Aussibum), í ýmsum litum og stundum
með semelíusteinum.
Samkvæmt neyslukönnunum hér í landi kaupa sífellt fleiri herr-
ar nú sjálfir nærföt sín í stað mæðra eða eiginkvenna og skiptir nú
öllu máli að vera sexí í nærbuxnavali. Nýjasta skemmtun para er að
fara saman í undirfatadeildir stóru verslananna eins og Galerie
Lafayette og Printemps og velja nærur á herrann. Svo er farið heim
og mátað!
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Brók í stíl
Ómissandi í vetur
NOKKRAR FLÍKUR OG FYLGIHLUTIR
SEM ALLAR KONUR ÆTTU AÐ EIGA Í
FATASKÁPNUM Í VETUR.
Það er alveg ómissandi að
eiga einn góðan svartan
kjól. Ekki skemmir fyrir
ef hann er úr góðu og
hlýju efni og jafnvel
með ermum.
Falleg stígvél ættu
allar konur að
eiga. Þau fást nú
í miklu úrvali í tísku-
vöruverslunum og eiga
það flest sameiginlegt
að vera kvenleg og
glæsileg. Loðfóðruð
stígvél koma líka
sterk inn.
Falleg húfa og
skrautlegir vettling-
ar eru ómissandi á köldum dögum.
Stuttur jakki kórónar heild-
arútlitið. Tvíhnepptur
jakki í kósakkastíl
er góður
kostur og
púf-
fermar
setja
punkt-
inn yfir i-ið.
Hausttískan í Stasiu í Kringlunni er kvenleg og í brúnum, svörtum og antikbleik-
um tónum. Mikið er um skart, fötin eru skreytt með nælum, blómum og blúndum
og fylgihlutir eru áberandi. Verslunin, sem starfað hefur í sex ár í Kringlunni,
selur föt á konur í öllum stærðum, frá 36 upp í 56. Eigendur verslunarinnar
sáu að mikill skortur var á fatnaði í yfirstærðum, sem varð til þess að þeir
fundu danska fatalínu í stórum stærðum sem bæði er falleg og smart. Ekki
skemmir fyrir að verðið er einnig hagstætt. Mikið er lagt upp úr fjöl-
breytni og góðu vöruverði og fötunum er ætlað að höfða til kvenna á öll-
um aldri, af öllum stærðum og gerðum.
Heklað sjal á 3.290 kr.
Pils með hvítum blómum á 6.490 kr.
Peysa á 5.690 kr.
Buxur á
6.990 kr.
Jakki á 11.990 kr.
Skyrta á 3.990 kr.
Af öllum stær›um og ger›um
Verslunin Stasia í Kringlunni selur fallegan kvenfatnað í yfirstærðum.
Mussa á 5.490 kr. Bolur á
2.790 kr. Kvartbuxur á
5.590 kr.
Köflótt pils
með nælu
og blúndu á
5.790 kr. Bol-
ur á 2.790 kr.Hvít úlpa með hettu
á 9.490 kr.
Mussa á
5.490 kr.
Kvartbuxur
á 5.590 kr.
Haust
2005
Sissa tískuhús
G l æ s i b æ , s í m i 5 6 2 5 1 1 0
Opið virka daga frá 10 – 18
laugardaga frá 10 – 16
Ný sending
af glæsilegum úlpum,
vestum og peysum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI