Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 32
Listaverk eftir börnin eru mesta prýði á hverju heimili. Ef þú átt ekki börn getur
þú keypt liti og blað svo næsti litli listamaður sem kemur í heimsókn geti skapað
einhverja heimilisprýði. Eftir því sem litirnir eru betri og blöðin flottari getur þú búist
við betri útkomu.[ ]
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
HAUST
2005
KOMIÐ
Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504
Opið frá 11-18 virka daga,
11-15 laugardaga.
Þórdís lætur fara vel um sig heima í hægindum eftir danska hönnuðinn Börge Mogensen og tíkin Ransý á líka sitt horn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þegar farið var fram á að fá
að skoða heimili Þórdísar
Zoëga, húsgagna- og innan-
hússarkitekts, nú í vikunni
vandaðist málið. Húsgögnin
hennar voru nefnilega flest á
leiðinni upp í Gerðuberg.
Heimilið hennar Þórdísar er frek-
ar tómlegt þegar Fréttablaðsfólk
ber að enda sendiferðabíll að
renna úr hlaði með húsgögn til að
stilla upp í Gerðubergi. Þar verð-
ur opnuð sýning á verkum Þórdís-
ar á laugardaginn, auk þess sem
hún situr fyrir svörum á Sjón-
þingi. Eitt gott horn er þó alveg
óhreyft. Í því er sófasett eftir
danska hönnuðinn Börge Mogen-
sen og þar kveðst Þórdís oft láta
fara vel um sig. „Ég legg áherslu
á að hlutirnir sem maður hefur í
kringum sig veiti þægindi, gleði
og vellíðan og líka að þeir séu
þannig að þeir geti fylgt manni
það sem eftir er,“ segir hún og
kveðst aðhyllast húsmuni sem
hafi eitthvern persónuleika og
séreinkenni sem gefi þeim gildi.
Þórdís kom heim frá námi í
Danmörku 1981 og hefur starfað
hér á landi við sína iðn síðan, mest
fyrir innlendan markað. „Ég hef
unnið á teiknistofum þar sem
stórar byggingar hafa verið í
hönnun og séð um innréttingar í
þeim. Síðan hef ég verið með eig-
in teiknistofu og komið nokkrum
húsgögnum í framleiðslu, bæði
hér á landi og erlendis, þó meira
hér heima.“
Hún kveðst hafa unnið með alls
konar efni. „Mér finnst alltaf
gaman að nota náttúrulegt hráefni
eins og tré og ég hef notað stein-
bítsroð og selskinn sem stóla-
áklæði. Slíkir stólar fóru í fjölda-
framleiðslu og ég held þeir fáist
enn í Sólóhúsgögnum,“ segir hún
brosandi. Hún lýkur lofsorði á
uppsetningu sýningarinnar í
Gerðubergi sem haldin er í tilefni
af fimmtíu ára afmæli Félags hús-
gagna- og innanhússarkitekta.
„Þarna eru ekki bara verkin sýnd,
heldur líka grunnurinn, hvaðan
hugmyndirnar koma og hver
manneskjan er á bak við verkin.
Það finnst mér mjög skemmtilegt
fyrirkomulag,“ segir hún að lok-
um. gun@frettabladid.is
www.bergis.is
ALLTAF Á FÖSTUDÖGUM
M
YN
D
: P
JE
TU
R
Módel eftir Þórdísi. Sum hafa orðið að
framleiðsluvöru og önnur ekki.
Vill a› hlutir skapi
flægindi og vellí›an
Stóllinn mosi eftir Þórdísi. MYND: KRISTÍN BOGADÓTTIRMímir heitir þessi hvíti höfðingi.
Barnastóllinn Hnokki sem Þórdís hlaut
verðlaun fyrir.
Sess er úr steinbítsroði.
Uggi.