Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 70
34
FH-ingar eru tilbúnir til fless a› vera me› í Skandinavíudeildinni í knattspyrnu flar sem flátttökuli›in
mala gull. „Ekki nokkur spurning a› vi› myndum taka flátt,“ sag›i Gu›mundur Árni Stefánsson,
forma›ur knattspyrnudeildar FH.
Ísland fær ekki þátttökurétt í
úrvalsdeild Norðurlandaliða
FÓTBOLTI Alþjóða knattspyrnusam-
bandið og Knattspyrnusamband
Evrópu samþykktu í gær að
Skandinavíudeildin í knattspyrnu,
eða Royal League, sem er sam-
starfsverkefni knattspyrnusam-
banda Noregs, Danmerkur og Sví-
þjóðar, fái keppnisleyfi næstu
fimm árin. Íslendingum hefur
ekki verið boðið að vera með frek-
ar en Finnum. „Það er ekki nokk-
ur spurning að við myndum taka
þátt í Royal League ef tækifæri
gæfist. Íslensk lið sárvantar er-
lend verkefni yfir vetrartímann,“
sagði Guðmundur Árni Stefáns-
son, formaður knattspyrnudeildar
FH, við Fréttablaðið.
Skandinavíudeildinni var
hleypt af stokkunum síðasta vetur
þar sem tólf liðum frá Noregi,
Danmörku og Svíþjóð var skipt í
þrjá riðla. Keppni hófst 11. nóv-
ember og lauk með úrslitaleik 26.
maí. FC Kaupmannahöfn sigraði
IFK Gautaborg í úrslitaleiknum
og fékk u.þ.b. 100 milljónir ís-
lenskra króna í heildartekjur og
því er eftir miklu fjármagni að
slægjast enda forráðamenn lið-
anna í skýjunum með hvernig til
tókst. Hvert lið fékk um tíu millj-
ónir króna fyrir riðlakeppnina og
svo bónus fyrir stig, útsláttar-
keppni og úrslitaleik. Svo vel
tókst til með Skandinavíudeildina
að þessu sinni að löndin þrjú sem
að henni stóðu ákváðu að halda
samstarfinu áfram.
Tekjur Skandinavíudeildarinn-
ar byggjast á sjónvarpsrétti en að
sögn Geirs Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra KSÍ, er um álitleg-
ar upphæðir að ræða, eins og
reyndar verðlaunaféð gefur til
kynna, og ólíklegt að íslenskar
sjónvarpsstöðvar hafi bolmagn til
þess að greiða slíkt, sem er helsta
skilyrði þess að íslenskt lið komist
þarna inn.
„Þetta er erfitt viðureignar
fyrir okkur en við höldum þess-
ari umræðu vakandi. Finnar eru
heldur ekki með í deildinni; þá
langar mikið til að komast inn en
hafa ekki haft erindi sem erfiði,“
sagði Geir sem vildi ekki útiloka
að íslenskt lið kæmist þarna að í
framtíðinni.
Birgitta Herade, starfsmaður
danska knattspyrnusambandsins
og talsmaður Royal League, sagði
í samtali við Fréttablaðið að hún
gæti ekki svarað því hvers vegna
íslensku félagsliði væri ekki boðið
að vera með. Forsvarsmenn knatt-
spyrnusambandanna í Noregi,
Danmörku og Svíþjóð þyrftu að
svara því.
„Ég vil alls ekki útiloka neitt.
Skandinavíudeildin gekk framar
vonum síðasta vetur, hún stóð
undir sér og gott betur og nú
erum við að sníða helstu vankant-
ana af til að gera hana ennþá
skemmtilegri. Landfræðilega er
mjög hentugt fyrir þessi þrjú lönd
að vinna saman og þau hafa náð
góðum árangri á Evrópumótunum
í gegnum tíðina. Finnland vill líka
vera með og einnig hefur frést af
áhuga Eystrasaltslandanna,“
sagði Birgitta.
Guðmundur Árni segir slæmt
að setja á eins konar Norðurlanda-
mót án þess að Ísland sé þar með.
„Við myndum fagna öllum tilraun-
um KSÍ til að tryggja það að ís-
lenskt lið væri þar inni.“
Það er deginum ljósara að al-
gjör bylting yrði fyrir íslenska
knattspyrnu að fá aðgang að
Royal League en það virðist því
miður aðeins vera fjarlægur
draumur.
thorsteinngunn@frettabladid.is
Ólafur Már Sigurðsson náði sér ekki á strik í gær:
GOLF Ólafur Már Sigurðsson,
kylfingur úr GR, lék annan
hringinn á 74 höggum eða 2 yfir
pari á úrtökumóti fyrir evr-
ópsku mótaröðina á Carden
Park-vellinum í Englandi í gær.
Ólafur Már lék fyrsta hringinn á
71 höggi og er samanlagt á einu
höggi yfir pari. Ólafur Már er í
kringum 40. sætið og þarf að
spila mjög vel í dag til þess að
sleppa í gegnum niðurskurðinn
fyrir lokahringinn en 25 efstu
kylfingarnir ásamt þeim sem
eru jafnir kylfingnum í 25. sæt-
inu halda áfram.
„Sveiflan var ekki alveg að
virka í dag. En ég fór út á æf-
ingasvæði eftir hringinn og þá
fór hún að smella betur. Ég legg
allt í þetta í þriðja hringinn, það
þarf allt að ganga upp til þess að
ég komist í gegnum niðurskurð-
inn,“ sagði Ólafur Már við
Fréttablaðið.
Stefán Már Stefánsson úr GR
lék annan hringinn á úrtökumót-
inu á 80 höggum en fyrsta hring-
inn á 79 höggum og á enga
möguleika að komast í gegnum
niðurskurðinn.
Mótið í Englandi er fyrsta
áskorendamótið af þremur sem
kylfingar þurfa að komast í
gegnum til þess að komast inn á
evrópsku mótaröðina. - þg
Sveiflan virka›i alls ekki
22. september 2005 FIMMTUDAGUR
AUGLÝSTU FASTEIGNINA ÞÍNA
Á RÉTTUM STAÐ
Lestur mánudaga*
45%
73%
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
9
6
1
Rúmlega 60% fleiri Íslendingar á aldrinum
25–54 ára lesa mánudagsblað Fréttablaðsins
frekar en mánudagsblað Morgunblaðsins.
Á mánudögum fylgja með Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sérblöð sem fjalla um fasteignir.
Nýttu þér gott tækifæri og auglýstu fasteignina þína í Fréttablaðinu.
* 25–54 ára Íslendingar. Gallup júní 2005.
©
Gilberto Silva, miðjumaðurArsenal og brasilíska landsliðs-
ins, segist vel gera sér grein fyrir því
að Chelsea sé með besta liðið í
ensku úrvalsdeildinni. „Það er mun
meiri munur á Chelsea og Arsenal
núna en hefur verið síðustu tvö ár.
Mér fannst við
standa jafnfætis
Chelsea á síðustu
leiktíð en núna er
sagan önnur. Við
verðum að finna
lausn á því hvernig
við fyllum upp í
skarðið sem Patrick
Vieira skyldi eftir
sig. Við erum alltof
langt á eftir Chelsea
eins og staðan er
núna en vonandi tekst okkur að
sýna hvað í okkur býr þegar líða
tekur á tímabilið, en það gæti orðið
of seint.“ Ljóst er að mikið mun
mæða á Gilberto í vetur þar sem
hann verður að spila með reynslu-
litlum leikmönnum á miðjunni.
Bandaríska tenniskonan LindsayDavenport hefur neyðst til þess
að draga sig út úr keppni á Opna
kínverska meistaramótinu eftir að
hafa tognað illa í baki. Davenport
er sem stendur
númer tvö á heims-
listanum, á eftir
Mariu Sharapovu,
og var hún talin
sigurstangleg á
mótinu í Kína.
Davenport hefur
lengi glímt við
meiðsli í baki en
hún meiddist í síð-
ustu viðureign sinni
á Opna bandaríska
meistaramótinu
sem fram fór fyrir skömmu, en hún
hélt áfram keppni og tapaði naum-
lega. Davenport ætlaði sér að end-
urheimta efsta sæti heimslistans í
Kína en hún þarf að bíða með þá
tilraun þangað til á næsta stórmóti.
ÚR SPORTINU
FRÁ LEIK Í SKANDINAVÍUDEILDINNI Andreas Johansson, leikmaður Djurgården frá
Svíþjóð, togar hér í treyju Martins Jensen, leikmann danska liðsins Esbjerg í leik liðanna í
Royal League í desember í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Fyrirliði Manchester United hugar að framtíðinni:
Roy Keane ver›ur fljálfari
FÓTBOLTI Roy Keane hefur rætt við
forráðamenn Manchester United
um að verða þjálfari hjá liðinu eft-
ir að hann leggur skóna á hilluna.
Keane, sem fótbrotnaði í leik gegn
Liverpool fyrir skömmu, hefur
tekið námskeið í þjálfun á undan-
förnum árum og mun bæta enn
frekar við sig á næstunni meðan
hann jafnar sig af meiðslunum.
„Ég tel mig enn hafa mikið fram
að færa sem leikmaður. Þegar ég
er hættur að geta hjálpað
Manchester United inni á vellin-
um mun ég snúa mér að öðrum
störfum hjá félaginu,“ sagði Kea-
ne við breska fjölmiðla í gær.
Liðsfélagi Keane hjá
Manchester United, Paul Scholes,
er ekki í nokkrum vafa um að
Keane eigi eftir að verða góður
þjálfari. „Það hafa fáir leikmenn
jafn mikla leiðtogahæfileika og
Keane, og þeir nýtast vel í
þjálfuninni. Ég held að Keane
verði knattspyrnustjóri
Manchester United í framtíðinni.
En vonandi heldur hann áfram að
spila því hann er ennþá einn af
betri miðjumönnum í heiminum.“
ALEX FERGUSON
OG ROY KEANE
Roy Keane hefur
eflaust lært mikið
af knattspyrnu-
stjóra sínum hjá
Manchester
United, Alex
Ferguson.