Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 16
Var tággrönn á›ur en hún fékk sér bíl Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir hélt sér í formi me› flví a› fer›- ast fótgangandi og me› strætó. Hún segist nú flræll bílsins en fær sér stundum göngutúr – út í sjoppu. Helga Braga flutti stutta fram- sögu á fundi sem efnt var til í há- deginu í gær vegna samgöngu- viku í Reykjavík. Þar lýsti hún því að móðir hennar hefði aldrei átt bíl og væri tággrönn fyrir vikið. „Og þannig var ég áður en ég fékk mér bíl,“ sagði Helga Braga og uppskar hlátrasköll. Vinnu sinnar vegna þurfti hún að kaupa sér bif- reið en áður ferðaðist hún um í strætó og á tveimur jafnfljótum og sameinaði þannig að komast á milli staða og halda sér í formi. Nú fer hún allra sinna ferða á bílnum; „nema um daginn þegar ég tók mig til og fór í göngutúr – út í sjoppu,“ sagði hún og aftur var hlegið. Á fundinum var meðal annars fjallað um mismunandi sam- göngumáta og áhrifin á heilsuna. Björn Leifsson líkamsræktar- frömuður sagði Íslendinga dug- lega að hreyfa sig og benti á að um tíu þúsund manns stundi lík- amsrækt í Laugum, þar sem fund- urinn var haldinn. „En hér vilja allir leggja við dyrnar,“ sagði Björn og fannst það skjóta skökku við að fólk sem kæmi í húsið til að hreyfa sig setti fyrir sig að ganga svolítinn spöl. Ástæða þess væri hins vegar einföld – veðrið. „Fólk fer inn í sólskini en kemur út í haglél og hárgreiðslan fýkur út í veður og vind.“ Björn hefur löngum hvatt til hreyfingar og hollra lífshátta og horfir lengra en í eigin rann í þeim efnum. Á fundinum ítrekaði hann fyrri hugmynd sína þess efnis að Orkuveitan og Reykjavíkurborg hiti upp göngu- og hjólreiðastíga borgarinnar svo um þá megi fara allan ársins hring. Veit hann sem er að eitthvað kostar slík fram- kvæmd og stakk hann upp á að Orkuveitan hætti tilraunum sínum við risarækjueldi og verði pening- um fremur til hitunar stíganna. Sverrir Björnsson, auglýsinga- gerðarmaður í Hvíta húsinu, sagði samfélagið hannað fyrir bíla og þar réði hinn hraði lífsstíll lands- manna mestu. Hann rifjaði upp þjóðsöguna um að eigendur stórra jeppa væru ekki síst að ýta undir karlmennskuímynd sína og að samhengi væri á milli stærðar jeppans og limsmæðar viðkom- andi. Sjálfur viðurkenndi hann jeppaeign en skýrði hana með skíðaáhuga. bjorn@frettabladid.is Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt til að reist verði stytta af Tómasi Guð- mundssyni skáldi. Borgarstjóri telur hugmyndina góðra gjalda verða, en telur að gera eigi konum hærra undir höfði í þessum málum þar sem 22 af styttum borgarinnar séu af nafngreindum körlum en aðeins þrjár af konum. „Þar sem ég bý á Akureyri hef ég ekki sterkar skoðanir á styttusmíði í Reykjavík,“ segir Hildigunnur Svav- arsdóttir, skólastjóri Sjúkraflutninga- skóla FSA. Hildigunnur telur styttur geta verið til mikillar prýði séu þær vel úr garði gerðar, en oftar en ekki veki þær litla eftirtekt. „Ég strunsa yfirleitt rakleiðis framhjá þeim,“ segir hún og telur að nóg sé komið af styttum. „En ég tek vissulega undir þau sjónarmið að það eigi að gæta jafnræðis milli kynjanna í þessum efnum vilji menn endilega reisa styttur í gríð og erg.“ HILDIGUNNUR SVAVARSDÓTTIR SKÓLASTJÓRI Nóg komi› STYTTUR BÆJARINS SJÓNARHÓLL 16 22. september 2005 FIMMTUDAGUR „Það er heilmikið að gera enda er þetta er hábjargræðistíminn,“ segir Hildur Hermóðsdóttir annar eigandi bókaútgáfunnar Sölku. Hildur slær ekki slöku við þessa dagana; er mætt klukk- an átta á morgnana í vinnu og fer oftar en ekki heim fyrr en á miðnætti. „Við vorum að koma tveimur bókum í prentun í þessari viku: Þær eru Ný trú- arbragðasaga eftir Þórhall Heimisson og hin heitir Já, ég þori, get og vil. Þar er þess minnst að 30 ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum. Hildur viðurkennir að stundum verði hún að gefa sér svigrúm til að ná átt- um þegar álagið er svona mikið. „Þá fer ég út úr bænum yfir eina helgi, til dæmis fór ég í réttir á Snæfellsnesi um síðustu helgi. Maðurinn minn á ættir að rekja þangað og við reynum að fara á hverju ári.“ Um næstu helgi ber þó svo við að Hildur ætlar að taka sér frí og skella sér til Skotlands með fjölskyldunni. „Við fljúgum til Glasgow og keyrum þaðan upp í fjöllin um kring. Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer til Skotlands og ég hlakka mikið til enda mun vera gull- fallegt þar.“ Skreppur til Skotlands á háannatíma HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HILDUR HERMÓÐSDÓTTIR FORLEGGJARI nær og fjær OR‹RÉTT„ “ Alvarlegt vandamál? „Vandi Súsönnu er persónu- legs eðlis. Henni líkar hvorki stíll Gísla Marteins né röddin.“ HEIMIR ÖRN HERBERTSSON LÖG- MAÐUR UM BAKÞANKA SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR Í FRÉTTABLAÐINU. Er fla› ekki bara kalla› flug? „Þetta leit út eins og loftárás, þó án þess að sprengjum væri varpað.“ STEINUNNI JÓHANNESDÓTTIR RIT- HÖFUNDUR Í MORGUNBLAÐINU UM BRESKU ORRUSTUÞOTURNAR SEM FLUGU YFIR REYKJAVÍK Á FÖSTUDAG. Heimsferðir bjóða nú allra síð- ustu sætin í beinu flugi til Sikil- eyjar á frábærum kjörum. Þetta er yndislegur tími á Sikiley, kjör- inn til sólbaða og til að skoða þessa stórbrotnu eyju. Sikiley býður blöndu af því helsta sem ferðamenn óska sér. Menningar- saga, náttúrufegurð, fornminjar, fallegar byggingar, söfn, einstök matarmenning og mannlíf. Spennandi kynnisferðir í boði með íslenskum fararstjórum. 24.990 Gisting frá 4.980 Verð á mann pr. nótt (gist er 3 nætur á 3* hóteli í Palermo og 4 nætur á 4* hóteli í Giardino Naxos). Ath. bókunargjald vegna gistingar er ekki innifalið, lr. 2.000 á mann. 2 fyrir 1 til Sikileyjar 29. september frá kr. 24.990 Aðeins 23 sæti laus Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 29. september. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A JEPPINN OG KARLMENNSKAN Framsögumenn á fundi um samgöngur og lífsstíl: Helga Braga Jónsdóttir, Sverrir Björnsson og Björn Leifsson. Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttastjóri stýrði umræðunum. Um 300 konur sitja nú leiðtoga- námskeið á vegum Sjálfstæðisfé- lagsins í Garðabæ. Námskeiðið, sem stendur í fjórar kvöldstundir, hófst á þriðjudag og lýkur með há- tíðarkvöldverði á fimmtudaginn í næstu viku. Hliðstætt námskeið var haldið í apríl og bjuggust aðstandendur við tuttugu þátttakendum. Raunin varð önnur. Tvö hundruð konur tóku þátt og margar voru skráðar á biðlista. Ásdís Halla Bragadóttir, for- stjóri Byko, er í fararbroddi á námskeiðinu en ásamt henni koma fram Sigríður Snævarr sendi- herra, Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra, Krist- ín Helga Gunnarsdóttir rithöfund- ur, Svafa Grönfeldt, framkvæmda- stjóri hjá Actavis, og Inga Linda Karlsdóttir sjónvarpskona. Góður rómur var gerður að fyrsta kvöldinu og eftirvænting Gríðarleg aðsókn að námskeiði í Garðabæ: 300 konur rækta me› sér lei›togahæfileika FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M KOMA SVO Ásdís Halla Bragadóttir hvetur konur til dáða og yddar leiðtogahæfileika þeirra. HLÝTT Á Í ANDAKT 300 konur sitja námskeiðið í Garðabæ. Íslandsmót í Carcassonne: Af riddurum og ræningjum Íslandsmótið í spilinu Carcas- sonne verður haldið í sal Taflfé- lags Reykjavíkur í Faxafeni 12 á laugardag. Carcassonne er sérstakt að því leyti að í stað þess að spilinu sé raðað upp í byrjun er aðeins lagð- ur niður lítill ferningur. Þátttak- endur leggja síðan niður ferninga sem móta landslagið í kringum Carcassonne-kastala í Frakklandi, einn frægasta kastala Evrópu. Leikmenn spila svo út svokölluð- um förunautum sem geta verið bændur, riddarar eða ræningjar og safna stigum. Sigurvegari á Íslandsmótinu fær möguleika á að taka þátt í heimsmeistaramótinu í Carcas- sonne sem haldið verður um miðj- an október í Essen í Þýskalandi. Áhugasamir geta skráð sig til keppni í síðasta lagi í dag á vefsíð- unni spil@spil.is. - sgi LAGT Á RÁÐIN Frá Íslandsmótinu í fyrra. HILDUR HERMÓÐSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.