Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 83
Heidi Klum og Seal eru búin að
gefa nýfæddum syni sínum nafn.
Hann heitir Henry Gunther
Ademola Dashtu Samuel og
fæddist mánudaginn 12. septem-
ber klukkan 19.20.
Seal segir að dóttir Heidi,
Leni, sé yfir sig ánægð með að
vera búin að eignast bróður.
„Bestu stundir okkar eru að
horfa á stóru systur kyssa Henry
aftur og aftur á höfuðið. Hún var
búin að bíða með óþreyju eftir
komu bróður síns og benti í sí-
fellu á maga mömmu sinnar
hvern morgun og sagði, barnið,
barnið.“
Heidi og Seal giftu sig á
mexíkóskri strönd þegar hún var
komin fimm mánuði á leið. Brúð-
arkjóllinn var hannaður af Veru
Wang og þótti sérlega glæsilegur.
Seal skemmti hins vegar gestum
brúðkaupsins með því að syngja
lag sem hann hafði samið í tilefni
dagsins.
Heidi Klum og Seal hamingjusöm
Rappstúlkan Lil'Kim heldur því
fram að það sé ekki hægt að kenna
henni um fataval hennar síðustu
árin og segist rétt byrjuð að fá að
stjórna því að öllu leyti hvernig
ímynd hennar er. Lil'Kim
afplánar nú dóm sinn fyrir
meinsæri í 366 daga fangels-
isvist sem hún byrjaði að af-
plána þann 19. september. Hún
hefur hlotið mikla gagnrýni
síðustu ár fyrir efnislítil föt,
litskrúðugar hárgreiðslur og
áberandi skartgripi. Í síðasta mán-
uði, er hún mætti á MTV-tónlistar-
hátíðina í glæsilegum silkikjól,
uppskar hún mikla og jákvæða
athygli. „Ég valdi þetta sjálf,
án aðstoðar. Ég hef aldrei feng-
ið að stjórna ímynd minni
fyrr en núna. Sumt af því sem
ég klæddist áður var bara
einn hluti af mér.“
Lil'Kim hugsar sinn gang
KLUM OG SEAL Eru í skýjunum eftir að
þeim fæddist erfingi.
LIL'KIM Situr nú í fangelsi
og íhugar breytingar í fatavali.