Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 79

Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 79
FIMMTUDAGUR 22. september 2005 43 Rauðvínin frá Bodega Norton sem byrjað var að flytja inn fyrir um ári hafa slegið í gegn á Íslandi og eru nú orðin söluhæstu vínin frá Argentínu í vínbúðum. Þar eru fimm vín á boðstólum; Norton Mal- bec og Norton Cabernet Sauvignon sem eru bæði í kjarnasölu, Norton Chardonnay sem er í reynslusölu og svo að lokum Norton Malbec Reserve og Norton Cabernet Sauvignon Reserve, en bæði þessi vín hafa gengið það vel í reynslu- sölu að þau flytjast yfir í kjarna 1. október næstkomandi og munu þá fást í flestum vínbúðum. Vínin hafa fengið mjög góða dóma og hefur Þorri Hringsson valið Norton Cabernet Sauvignon sem bestu kaup í Gestgjafanum og Norton Cabernet Sauvignon Res- erve sem vín mánaðarins. „Annan mánuðinn í röð er argentínskt rauðvín vín mánaðarins hjá mér og ef það segir ykkur ekkert um þá möguleika sem ég tel Argentínu búa yfir þá hafið þið ekki verið að fylgjast með!“ segir Þorri. Í um- sögn sinni um Norton Cabernet Sauvignon Reserve segir hann að vínið sé „mjúkt og sérlega vel gert vín sem er á einstaklega góðu verði miðað við gæðin“. Auk þess að fá útnefninguna bestu kaupin hjá Þorrra fékk Norton Cabernet Sauvignon einkunnina 17/20 hjá Steingrími Sigurgeirssyni, vínrýni Morgun- blaðsins. Bodega Norton í Argentínu á sér langa sögu sem eitt af helstu víngerðarhúsum Argentínu. Húsið er þekkt fyrir að framleiða gæða- vín á einkar hagstæðu verði. Vín- gerðin var stofnuð árið 1895 af Englendingnum Edmund Norton en hann hafði komið til Argentínu til að smíða járnbraut sem tengdi Mendoza-svæðið við Chile. Verð í vínbúðum: Reserve-vínin kosta 1.390 kr. og hin vínin 990 kr. NORTON: Söluhæstu vínin frá Argentínu Hvernig er stemningin: Stemningin á Grillhús- inu er létt og skemmti- leg með amerísku yfir- bragði. Á veggjunum eru myndir af gömlum stjörnum á borð við Elvis Presley og Marilyn Monroe og þar er spiluð hressandi og skemmtileg tónlist. Inni eru básar sem skapa ákveðið andrúmsloft en fyrir stóra hópa eru löng borð sem hægt er að sitja við. Það er opið frá klukkan 11.30 til 22 á virkum dögum og sunnudögum, en frá 11.30 til 23 á föstudögum og laugardögum. Grill- húsið er staður fyrir alla sem vilja gera sér glaðan dag með vinum eða fjölskyldu. Matseðillinn: Á Grillhúsinu er nán- ast hægt að fá allt nema pitsur. Þar er mikið úrval af alls konar bragð- góðum forréttum eins og hvítlauks- brauði, laukhringjum, kjúklinga- vængjum og fleiru. Á aðalmatseðli má finna nánast allt sem hugurinn girnist. Mikið úrval er af góðum fiski, steikum, hamborgurum, sam- lokum og fleiru. Franskar fylgja öll- um hamborgurum og samlokum en súpa fylgir flestum fiskiréttun- um. Eftirréttirnir eru eins girnilegir og þeir eru margir og þar má nefna bananasplitt, sjeik og sælgæt- isköku. Barnamatseðill er á staðn- um og með honum fylgja verðlaun. Þar ættu allir krakkar að geta fund- ið eitthvað við sitt hæfi. Á Grillhús- inu er hádegismatseðill frá klukkan 11.30 til 14 og með honum fylgir súpa. Frá klukkan 16 tekur svo kvöldmatseðillinn við. Vinsælast: Lambalundirnar eru með því vinsælasta sem hægt er að fá á Grillhúsinu. Þeim fylgir bök- uð kartafla, franskar, ferskt salat og heimatilbúin bernaise-sósa. Fiskur- inn með frönskunum og steiksam- lokan eru réttir sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Verðið á Grill- húsinu er mjög viðráðanlegt og þar er vel útilátið á hvern disk. Réttur dagsins: Á Grillhúsinu er alltaf boðið upp á ferskasta fiskrétt dagsins hverju sinni. Amerískt yfirbrag› VEITINGASTAÐURINN GRILLHÚSIÐ TRYGGVAGÖTU 20, 101 REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.