Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 8
1Hvern varði Gestur Jónsson í Baugs-málinu? 2Í hvaða héraði í Eþíópíu hafa ljónétið tuttugu manns? 3Hvaða þætti stjórnar Tyra Banks? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 22. september 2005 FIMMTUDAGUR FJARSKIPTI OgFjarskipti og 365 ljósvakamiðlar sendu inn bréf til Símans og Íslenska sjónvarpsfé- lagsins fyrir helgi þar sem óskað var eftir viðræðum um með hvaða hætti Íslenska sjónvarpsfélagið muni afhenda OgFjarskiptum og 365 ljósvakamiðlum sjónvarps- merki sitt. Jafnframt var óskað eftir viðræðum um með hvaða hætti Síminn myndi dreifa efni 365 ljósvakamiðla á breiðbandinu. Eiríkur S. Jóhannsson, for- stjóri OgVodafone segir að ekkert svar hafi enn borist. „Það hafa gengið á milli bréfaskipti í langan tíma áður en úrskurður sam- keppniseftirlitsins kom. Eftir þennan úrskurð, þá höfum við sent bréf, en ekki borist svar. Við trúum því að þeir ættu að geta farið að koma bréfi saman, eða nota símann. Það er vonandi að þessi félög nái að vinna úr þessari niðurstöðu.“ Eiríkur segir að þegar hafi komið beiðni frá Tengi á Akureyri um dreifingu efnis 365 ljósvaka- miðla eftir að bráðabirgðaúrskurð- ur samkeppniseftirlitsins barst og þeirri beiðni hafi verið svarað. - ss SJÓSLYS Skýrslutökur standa enn í rannsókn Lögreglu í Reykjavík á slysinu sem varð á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardagsins 17. september. Í slysinu fórust mað- ur og kona, en hjón komust af nokkuð slösuð ásamt 10 ára syni sínum lítt meiddum. Hörður Jóhannesson yfirlög- regluþjónn segir að ekki verði upplýst um niðurstöður blóð- rannsóknar með tilliti til áfengis- magns, né heldur nákvæmlega hversu hratt báturinn fór þegar hann rakst á skerið. Í tilkynningu lögreglu fyrir helgi kom fram að áfengi hafi verið haft um hönd og að bátur- inn hafi verið „á talsvert miklum hraða“ við áreksturinn. Sömu- leiðis segir hann ekki verða upp- lýst fyrr en að rannsókn lokinni hver hafi verið við stýrið þegar áreksturinn varð, en rannsókn lögreglunnar miðar að því að upplýsa með óyggjandi hætti alla þætti slyssins. Gera má ráð fyrir að lögregla styðjist bæði við framburð fólks- ins sem af komst, auk þess sem áverkar fólksins kunni að gefa vísbendingar um hvar hver var staddur í bátnum þegar hann rakst á skerið. Ekki liggur fyrir hvenær vænta má að rannsókn ljúki. - óká Flughálka á Reykjanesbraut: Bílvelta í hálkunni LÖGREGLA Bílvelta varð á Reykja- nesbrautinni í gærmorgun. Sautján ára stúlka missti stjórn á bifreið sinni við Grindavíkuraf- leggjara, en mikil hálka var á þessum slóðum. Bíllinn fór upp á eyju, þaðan á umferðarmerki og endaði á hlið- inni. Stúlkan slapp án teljandi áverka. Flutningabíll stoppaði á vett- vangi og hlúði bílstjórinn að stúlkunni. Á meðan missti annar bílstjóri stjórn á bifreið sinni og endaði á flutningabílnum. Maður- inn slapp við meiðsli en bíllinn var óökuhæfur eftir. Norðurárdalur: Rota›ist í bílveltu LÖGREGLA Ökumaður bíls sem fór út af veginum og valt í Norðurár- dal síðdegis í fyrradag var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi í Reykjavík. Maðurinn sem var einn í bílnum fékk talsvert höfuðhögg og rotaðist. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild virtist maðurinn ekki hafa orðið fyrir alvarlegum skaða við veltuna, en var þó lagður inn til eftirlits og rannsókna. - óká Samfylking Kópavogi: Eingrei›sla vegna álags KÓPAVOGUR Samfylkingin í Kópa- vogi krefst þess að strax verði gengið til samninga við leikskóla- starfsfólk í bænum og því tryggð eingreiðsla vegna mikils álags auk þess að kjör þeirra verði ekki lakari en í Reykjavík. Einnig er krafist að starfsfólkinu gefist kostur á gjaldfrjálsri leikskóla- dvöl fyrir börn sín. Þetta segir í ályktun sem Samfylkingin sam- þykkti í vikunni. Í fréttatilkynn- ingu segir að hvorki sjálfstæðis- né framsóknarmenn hafi talið þörf á aðgerðum. - saj Farsímaeign Íslendinga: Næstum einn sími á mann FJARSKIPTI Ný samantekt Póst- og fjarskiptastofnunar leiðir í ljós að nærri liggur að sérhver Íslend- ingur eigi farsíma. Alls eru 273 þúsund slíkir símar skráðir hér á landi. Síminn er með flesta áskrif- endur, 64,5 pró- sent farsíma- notenda og 66,4 prósent þeirra sem eru með f y r i r f r a m greidd símkort. L a n g d r æ g i r NMT-farsímar eru samtals 20.564 talsins og eru allir í áskrift hjá Landsímanum, að því er fram kemur í tölum Póst- og fjarskipta- stofnunar. FLOSI EIRÍKSSON Flosi er oddviti Samfylk- ingarinnar í Kópavogi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Rannsókn lögreglu á sjóslysi á Viðeyjarsundi þar skemmtibátur sigldi á Skarfasker heldur áfram: Ekki uppl‡st um atvik a› sinni OgFjarskipti og Íslenska sjónvarpsfélagið: Ræ›ast vi› um samskipti EIRÍKUR S. JÓHANNSSON Forstjóri OgVoda- fone segir að vonandi nái OgFjarskipti og Íslenska sjónvarpsfélagið samningum um að félögin skiptist á sjónvarpsmerkjum. BÁTURINN FLUTTUR Í LAND Myndin er tek- in þegar báturinn sem fórst fyrir rúmri viku á Viðeyjarsundi var fluttur í land, daginn eftir slysið. Rannsókn á tildrögum þess stendur enn og ekki útlit fyrir að henni ljúki á allra næstu dögum. FARSÍMI Næstum því sérhvert mannsbarn á Íslandi á farsíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.