Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 6
6 22. september 2005 FIMMTUDAGUR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir efast um hæfi saksóknara Ásakanir án innistæ›u BAUGSMÁL „Mér finnst þetta mjög alvarleg tíðindi fyrir íslenskt rétt- arkerfi vegna þess að ákæra hefur í för með sér slíka röskun á högum fólks að það verður að gera kröfu til ákæruvaldsins um að skýrt komi fram í hverju brot er falið og gegn hverju og hverjum,“ segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Hún segir það grundvallar- mannréttindi að geta varist ákær- um ekki síst af hálfu hins opinbera ákæruvalds. Þess vegna þurfa rök- in að vera mjög skýr. Það virðist vanta upp á það í þessu máli og það finnst mér mjög alvarlegt eftir þriggja ára rannsókn.“ Ingibjörg Sólrún telur verðugt að skoða þrennt ef niðurstaða Hæstaréttar verður á sama veg og í undirrétti. „Í fyrsta lagi verður að skoða hvort ekki komi til greina að að- skilja rannsóknarvald og ákæru- vald. Í öðru lagi þarf að ganga úr skugga um hvort þeir sem unnu að málinu séu til þess bærir eða hæfir að vinna með málið áfram. Þeir hafa sagt að þeir muni gefa út nýja ákæru. Ég dreg í efa að þeir séu til þess bærir. Í þriðja lagi vakna spurningar um það hver beri ábyrgð á því að farið sé fram með svo þungar ásakanir án þess að fyrir þeim sé nægileg innistæða.“ - jh BAUGSMÁL Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víð- tæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppsker- an skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. „Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið.“ Hann segir að útreið Baugs- málsins í dómskerfinu gefi tilefni til þess að fara yfir starfsaðferðir og vinnubrögð efnahagsbrotadeild- ar og athuga hvort þau séu í nægi- lega góðu lagi. Héraðsdómur Reykjavíkur vís- aði ekki aðeins átján ákærum frá heldur öllu málinu sem kunnugt er. „Vera má að héraðsdómur sé að verja sig fyrir mögulegri ofanígjöf frá Hæstarétti minnugur þess að hann hefur rekið mál til baka og sagt að þau hafi ekki verið nógu vel undirbúin.“ Steingrímur telur að réttarríkið hefði virkað ef niðurstaðan hefði verið sú að ekki væri efni til ákæru eftir rannsókn málsins. „Það er allt annað og verra þegar ákærandi tel- ur sig hafa efni til að ákæra í tug- um liða og ákærur reynast svo ónýtar.“ - jh Er Baugsmáli› dautt? fiví meir sem lögspekingar fjalla um stö›u Baugsmálsins eftir a› Héra›sdómur Reykjavíkur varpa›i flví út úr dóminum fleim mun ríkari ver›a efasemdir fleirra um a› unnt ver›i a› halda flví áfram af hálfu ákæranda. Jafnvel hvernig sem máli› fer í Hæstarétti. Lögspekingar og áhugafólk velta því fyrir sér nú hvað verði um Baugsmálið ef Hæstiréttur dæmir á sama veg og héraðsdómur og vís- ar ákærunum í Baugsmálinu frá dómi í heild sinni. Þeir hinir sömu eru að meira eða minna leyti sam- mála um að niðurstaða Héraðs- dóms Reykjavíkur, sem vísaði mál- inu öllu frá en ekki að hluta, sé meiriháttar áfall fyrir embætti Ríkislögreglustjóra og saksóknara. Fljótt á litið getur Hæstiréttur staðfest úrskurð héraðsdóms og þar með væri málinu endanlega vísað frá dómi í núverandi búningi. Lögfræðingar, þeirra á meðal Eiríkur Tómasson prófessor og fleiri, hafa bent á að ekket banni að aftur verði ákært. Í úrskurðinum frá því á þriðju- dag hefur verið staldrað við það álit dómaranna í undirrétti að verknaðarlýsing á meintum brot- um sakborninga í Baugsmálinu væru ófullnægjandi af hálfu ákæranda. Í þessu sambandi er athyglis- vert að skoða dóm Hæstaréttar sama dag í máli Auðar Sveinsdótt- ur Laxness gegn Hannesi Hólm- steini Gissurarsyni um meint brot á höfundarrétti gegn Halldóri Laxness. Undirréttur hafði vísað málinu frá og Auður skaut því til Hæstaréttar. Í dómi Hæstaréttar í þessu máli segir að enda þótt fallist verði á með héraðsdómara að í stefnu sé lýsing málsástæðna ágripskennd sé þess að gæta að krafa Auðar sé einkarefsikrafa. Verði í því ljósi að telja Auði hafa sett fram nægilega skýrt í hverju ætluð brot Hannesar Hólmsteins felist að hennar mati, en hafa verði í huga að ekki séu gerðar sömu kröfur um framsetningu stefnu í einkarefsimáli og gerðar séu til ákæru í opinberu máli sam- kvæmt lögum um meðferð opin- berra mála. Af þessum sökum þykir dóm- urum ekki næg efni til að vísa frá dómi refsikröfu Auðar enda verði ekki fallist á með Hannesi Hólm- steini að ætlaður óskýrleiki í kröfugerð Auðar sé þess eðlis að hann fái ekki tekið til varna með eðlilegum hætti. Með ofangreindum hætti tók Hæstiréttur sérstaklega fram – sama dag og Baugsmálið var til úrskurðar í Héraðsdómi Reykja- víkur – að ríkari kröfur séu gerð- ar í opinberu máli – eins og Baugsmálinu – en einkarefsimáli Auðar Laxenss gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Baugsmálinu hefur einnig verið líkt við Hafskipsmálið fyrir 20 árum. Saksóknari í málinu var í Hæstarétti dæmdur vanhæfur til að sækja málið. Það tengdist meðal annars Útvegsbankanum sáluga en þar sat bróðir hans í bankaráði. Dómstólar létu ákæranda ekki í té neinar leiðbeiningar um það hvern- ig bæta eða breyta mætti ákærun- um. Í Baugsmálinu neyddust dóm- ararnir til þess að vekja athygli ákæranda á að verknaðarlýsingar á meintum brotum væru ófullnægj- andi í 18 af 40 ákærum. Því má segja að í Baugsmálinu hafi dóm- stóllinn með þeim hætti gefið ákæranda leiðbeiningar eins og Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás- geirs Jóhannessonar, hefur þrá- faldlega bent á. Það sem skiptir ekki minna máli er ef til vill það að frá því dæmt var í Hafskipsmálinu hafa Íslendingar lögleitt Mannrétt- indasáttmála Evrópu og breytt mannréttindakafla stjórnarskrár- innar árið 1995. Í 70. grein stjórnarskrárinnar er nú kveðið á um að öllum beri réttlát málsmeðferð innan hæfi- legs tíma fyrir óháðum og óhlut- drægum dómstólum. Í 6. grein Mannréttindasátt- mála Evrópu er algerlega sam- bærilegt ákvæði um réttláta máls- meðferð innan hæfilegs tíma frammi fyrir sjálfstæðum og óvil- höllum dómstóli. Fari svo að Hæstiréttur stað- festi úrskurð undirréttar og Baugsmálinu verði endanlega vís- að frá gæti saksóknari ákært á nýjan leik. Málið yrði sett í nýjan búning. En yrði það rannsakað á ný? Yrðu settar fram aðrar eða nýjar ákærur? Hvað um nýja hús- leit? Ef nýjar ákærur koma aftur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur verða dómarar í það skipti að fletta upp í stjórnarskránni og Mannréttindasáttmála Evrópu. Og þann dag gætu hæglega verið fjögur ár frá fyrstu húsleit hjá Baugi. Og ákæranda væri einnig í raun gefið annað tækifæri til að lagfæra ákærur að kröfum dóm- stólanna. Yrði þetta dæmi um réttláta málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstólum í skilningi stjórnar- skrárinnar og Mannréttindasátt- mála Evrópu? ■ Kaupfélag Eyfirðinga: Fjölgar fólki um 50 prósent ATVINNA Kaupfélag Eyfirðinga hefur auglýst eftir markaðs- og kynningarfulltrúa. Um er að ræða nýtt starf hjá félaginu en starfsmönnum KEA mun fjölga úr tveimur í þrjá eða um helming með ráðningunni, en nú eru einungis framkvæmda- stjóri og aðstoðarmaður fram- kvæmdastjóra starfandi hjá fé- laginu. Á meðal verkefna markaðs- og kynningarfulltrúa KEA verður þjónusta við félagsmenn, skipu- lagning viðburða auk annars kynningarstarfs og umsjón með heimasíðu félagsins. - kk EINAR K. GUÐFINNSSON „En úrskurðurinn er vitanlega neikvæður fyrir lögregluna og saksóknara.“ Einar K. Guðfinnsson: Neikvætt fyrir lögregluna BAUGSMÁLIÐ „Það hefur verið ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar og ég tel skynsamlegast að bíða eftir því,“ segir Einar K. Guð- finnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins um Baugs- málið eftir að því var vísað frá dómi. „Það er með þetta mál eins og önnur að rétt er að láta dómstóla um að kveða upp dóma. En úr- skurðurinn er vitanlega neikvæð- ur fyrir lögregluna og saksóknara málsins.“ Einar vill ekki tjá sig um það hvort rétt sé af löggjafanum að fara yfir vinnubrögð hjá efna- hagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra. „Ég býst við að þar á bæ sjái menn ástæðu til þess að fara yfir málin,“ segir Einar. - jh Á að grafa göng um Óshlíð sem er milli Hnífsdals og Bolungarvíkur? SPURNING DAGSINS Í DAG: Á ákæruvaldið að sæta ábyrgð vegna Baugsmálsins? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 40,95% 59,05% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN Hnitmiðað námskeið um félagaform, skattlagningu fyrirtækja, frádráttarbæran rekstrarkostnað, ábyrgð stjórnenda o.fl. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og verður kennt þriðjud. 27. sept., 4. og 11. okt. kl. 17-20 að Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Boðið verður upp á léttan kvöldverð í hléi. Verð 25.000 kr. Fyrirlesari er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M Námskeiðið verður haldið á Akureyri 21. og 22. okt. nk. Sjá námskeiðslýsingu á www.isjuris.is Nánari upplýsingar og skráning í símum 520-5580, 520-5588, 894-6090 eða á alb@isjuris.is Viltu stofna fyrirtæki? Steingrímur J. Sigfússon um stöðuna í Baugsmálinu Stóráfall fyrir ákæranda STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON „Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið.“ INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Formaður Samfylkingar segir alvarleg tíðindi fyrir íslenskt réttarkerfi að Baugsmálinu hafi verið vísað frá. JÓHANN HAUKSSON johannh@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING GESTUR JÓNSSON VERJANDI JÓNS ÁSGEIRS JÓHANNESSONAR „Það getur ekki verið ætl- unin að ákæruvaldið komi fram með ákærur sem ekki standist og fái síðan leiðbeiningar dómstóla um það hvernig gera eigi ákærurnar úr garði.“ ÓLAFSFJÖRÐUR INNRÉTTAR SJÚKRABÍLA Bifreiða- verkstæðið Múlatindur á Ólafs- firði innréttar átta sjúkrabifreið- ar fyrir Rauða kross Íslands fyrir 46 milljónir króna. Fjórar bifreiðar gætu bæst við, að því er dagur.net greinir frá. Alls bárust tólf tilboð frá fimm í verkið. Múlatindur átti þrjú lægstu til- boðin en fjórða lægsta tilboðið kom frá Try Star í Kanada.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.