Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 28
Ofurfyrirsætan Kate Moss komst
heldur betur í fréttirnar á dögun-
um þegar myndir af henni að taka
inn kókaín rötuðu á forsíður blað-
anna. Kate Moss er ein aðalfyrir-
sætan í auglýsingaherferð H&M
fyrir veturinn og nú hafa ráða-
menn hjá H&M sent frá sér til-
kynningu þar sem þeir segjast
ætla að hætta við allar auglýsing-
ar með henni.
H&M hefur ævinlega lagt mik-
ið upp úr heilbrigðum lífsstíl og
þar á bæ eru gerðar þær kröfur
að fyrirsætur sem sýni fatnað
fyrirtækisins aðhyllist heilsusam-
legt líferni. Þá hefur H&M einnig
barist ötullega gegn fíkniefnum
og í mörg ár verið styrktaraðili
forvarnarsamtakanna Mentor
Foundation. Að sögn fulltrúa
H&M samræmist það ekki stefnu
fyrirtækisins að hafa fyrirsætu í
vinnu sem misnotar eiturlyf.
Kate Moss átti að sitja fyrir í
auglýsingum fyrir fatnað, hann-
aðan af Stellu McCartey, sem er
væntanlegur í verslanir H&M í
nóvember.
Náttúrulegur farði er málið í vetur. Ekki láta sjá þig með tilgerðarlegar auga-
brúnir og ámálaðar varir. Leyfðu fegurð þíns eigin andlits að njóta sín almennilega.[ ]
Túpera› hár og útví›ir kjólar
Túperað hár, jakkapeysan og augnfarðinn eru í anda sjötta áratugarins.
Diane von Furstenberg kynnir
vor- og sumarlínuna fyri árið
2006.
Diane von Furstenberg kynnti
vor- og sumarlínu sína fyrir árið
2006 á nýafstaðinni tískuviku í
New York. Sjötti áratugurinn hef-
ur augljóslega veitt henni mikinn
innblástur þar sem sýningarstúlk-
urnar voru með túperað hár og í
útvíðum kjólum og litlum jakka-
peysum. Fylgihlutir og förðun var
einnig í anda þess tímabils og
voru sumar stúlkurnar með sixtís-
sólgleraugu í stíl við túperað hár-
ið. Kjólar, pils og jakkar í rauðum
og grænum litum voru allsráðandi
og töskur og fylgihlutir í stíl.
Mynstrin voru stór og einföld en á
sama tíma lífleg og skemmtileg.
Heildarsvipur línunnar er gamal-
dags, leikandi og kvenlegur.
Gefa Kate Moss upp á bátinn
Kate Moss er ekki beinlínis þekkt fyrir að
vera góð fyrirmynd fyrir ungar stúlkur.
Æðislegur kjóll með fallegu rauðu mynstri
og grænn jakki í stíl.
Túperað hár og sólgleraugu. Mjög kven-
legt.
Töskur og fylgihlutir eru í stíl við kjólana
og pilsin.
Fagurgrænn litur verður áberandi í vor- og
sumarlínu Diane von Furstenberg.
Tískuframleiðandinn H&M
ætlar ekki að nota Kate Moss
í auglýsingaherferð sinni.
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Haust 2005
Ný sending
Full búð af nýjum vörum fyrir haustið
treflar, húfur, vettlingar, sjöl
Full búð af glæsilegum
haustfatnaði
Frábær verð
Tískuvöruverslun
Glæsibæ
Sími 588 4848
Grímsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 106
600 Akureyri Sími 588 8050, 588 8488, 462 4010
Email: smartgina@simnet.is
Vorum að taka upp nýja jakka,
buxur og peysur.
Falleg handunnin þýsk belti.
Flísfóðraðir
ullarvettlingar
Handprjónasamband Íslands
Skólavörðustíg 19 • sími: 552 1890
www.handknit.is
Laugavegi 62
sími 511 6699
www.sjon.is
sjon@sjon.is
Gar›atorgi
sími 511 6696
• 3-ja mán. skammtur
• linsuvökvi
• linsubox
Linsutilboð
3.500,-
aðeins