Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 30

Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 30
Stundum eru barnaföt hin mestu listaverk. Fullorðnir renna þá hýru auga til klæða þeirra sem yngri eru og bölsótast út í búðirnar fyrir að eiga þau ekki stærri. Um leið og þú eldist verður þú leiðinleg(ur). Það eru að minnsta kosti skilaboðin sem fataframleiðendur senda okkur sem eldri erum því stundum er eins og litir og gleði í klæðaburði eigi bara við um blessuð börnin. Börnum þarf að vera hlýtt og þess vegna eru framleidd falleg, þægileg og hlý föt fyrir þau. Á meðan þurfum við hin að húka í köldum skræpóttum lufsum eða hlýjum fötum sem eru undantekningarlítið ljót. Litríkar dúnúlpur og regnkápur eru til dæmis til í massavís á yngri kynslóð- ina. Fínar bómullarsokkabuxur eru það líka og vekja öf- und hjá okkur sem þekkjum ekkert annað en óþægileg- ar einlitar nælonsokkabuxur. Nóg er til af skræpóttum bíkiníum á konur en litríkir sundbolir eru bara til á börn. Og svona má lengi telja. Einhverjir yrðu að minnsta kosti glaðir ef þessar flíkur væru til í stærra númeri. 4 22. september 2005 FIMMTUDAGUR Spænska fatamerkið Custo Barcelona hefur vaxið á ljós- hraða síðustu ár og er komið með útibú í öllum helstu borg- um heimsins. Vetrarlínan er væntanleg í verslanir. Bræðurnir Custodio og David Dalmau stofnuðu Custo Barcelona árið 1996 en þá höfðu þeir verið í spænska tískubrans- anum í rúm tíu ár. Þeir hlutu strax athygli fyrir litagleði og teikni- myndaprenttækni enda voru þeir öðruvísi en allir aðrir á þessum tíma. Þeir sýndu fyrstu línuna sína í Ameríku þar sem mótorhjólaferð til Kaliforníu tíu árum fyrr hafði verið þeim mikill innblástur í hönnuninni. Ekki var að því að spyrja að öll helstu nöfnin í Hollywood fóru að klæðast hinum margfrægu Custo- bolum og talað var um hálfgerða Custo-maníu á þessum tíma í borg englanna. Bræðurnir taka ávallt þátt í tískuvikunni í New York, sem er einmitt nýafstaðin. Þar báru þeir á borð girnilegar flíkur fyrir næsta sumar. Nýja vetrarlínan er væntanleg von bráðar í verslanirnar Evu á Laugavegi og Centrum í Kringl- unni. Hægt er að fylgjast með flott- heitunum frá Custo Barcelona á www.custo-barcelona.com Custo Barcelona sigrar heiminn Höfum hafið störf hjá Heilsu og fegurð. Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir Háaleitisbraut 58 s: 568 8850 Obba Ása Laugaveg 53 s. 552 3737 Opið mán.- föst. 10 -18. Laugard. 10 – 16 Nýjar vörur - Ný sending Full búð af nýjum vörum S: 552 6744 S: 588 6750 Nýjar vörur! Buxur, blússur, toppar, vesti Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776 Opið virka daga kl. 11:00-18:00 Opið laugardaga 11:00-14:00 RÝMINGAR- SALA Verslunin hættir Allt á að seljast ! Áttu fletta í stærra númeri? Alvöru regnjakki með blómamunstri. 1.695 krónur í Adams, Smáralind. Oilily prjónapeysa. 11.890 krónur í Engla- börnum, Laugavegi. Æðisgengnar Oilily- sokkabuxur. 3.380 krónur í Englabörn- um, Laugavegi. 1.995 krón- ur í Adams, Smáralind. Skemmtilega litríkur bolur. 3.590 krónur í Englabörnum, Laugavegi. Purpuralitur er mjög heitur og þessi kjóll myndi sóma sér vel á hvaða konu. 2.995 krónur í Adams, Smáralind. Babúskusokka- buxur frá Oilily. 3.380 krónur í Englabörnum, Laugavegi. Vetrartískan frá Custo Barcelona er kven- leg og glæsileg. Tískan fyrir næsta sumar er litrík og skemmtileg. Skemmtilegt dress fyrir veturinn. Vor- og sumartískan fyrir 2006 var sýnd í New York á dögunum. Flottur prjónaður trefill. 1.290 krónur í Exit, Smáralind. Krikketpeysur og fölnað munstur Paul Smith vekur athygli á tískuvik- unni í London. Munstruð föt eru áberandi í haust- og vetrartískunni og oft líta flíkurnar út fyrir að vera margþvegnar svo munstrið er ei- lítið fölnað. Hönnun af þessu tagi er áberandi í fatnaði Paul Smith, sem sýndi nýjustu línuna sína á tískuvikunni í London á dögunum. Paul Smith er breskur hönnuður og í nýjustu fatalínu sinni gerir hann breskri arfleifð hátt und- ir höfði. Á sýningunni mátti sjá krikket- peysur og létta sumarkjóla sem hefðu hentað afar vel í bresku teboði. Litirnir eru ljósir og látlausir og efnin eru oft skreytt fallegu fölnuðu munstri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.