Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 22. september 2005
Innherjar enn á
fer›inni í Össuri
Enn eru stærstu innherjarnir að
kaupa í Össuri. Nú síðast festi Eyr-
ir fjárfestingarfélag kaup á hálfs
prósents hlut í stoðtækjaframleið-
andanum fyrir um það bil 140
milljónir króna. Kaup Eyris bætast
við viðskipti tveggja stærstu hlut-
hafanna, sænska fjárfestingar-
sjóðsins Industrivärden og danska
fjárfestingarfélagsins William
Demant að undanförnu
Félögin þrjú ráða nú yfir 60 pró-
sentum hlutafjár en hlutur erlendu
sjóðanna fer yfir helming af öllu
hlutafé. Um þessar mundir stend-
ur yfir hlutafjárútboð hjá Össuri
þar sem stendur til að selja nýtt
hlutafé til hluthafa og stjórnenda
fyrir 5,4 milljarða króna. - eþa
Laun hafa hækkað að meðaltali um
0,3 prósent í ágúst, samkvæmt
mælingum Hagstofunnar. Síðast-
liðna tólf mánuði hefur launavísi-
talan hækkað um 6,7 prósent. Er
þetta minni hækkun en fimm mán-
uði þar á undan þegar launavísital-
an hækkaði um 0,4 til 0,6 prósent á
milli mánaða. Síðustu þrjá mánuði
hafa laun hækkað um 4,6 prósent,
sem er minni þriggja mánaða
hækkun en hefur verið alla mánuði
ársins.
„Þrátt fyrir þensluástand í hag-
kerfinu og lágt atvinnuleysi lætur
launaskrið lítið á sér kræla enn sem
komið er,“ segir í fréttum greining-
ardeildar Íslandsbanka. – bg
ÞÓRÐUR MAGNÚSSON OG ÁRNI
ODDUR ÞÓRÐARSON Eyrir fjárfestingar-
félag hefur bætt við sig í Össuri líkt og aðr-
ir stórir hluthafar undanfarnar vikur.
Líti› launaskri›
VIÐ VINNU Laun hækk-
uðu minna í ágúst en
mánuðina á undan.