Fréttablaðið - 22.09.2005, Side 69
33
Steve McClaren, knattspyrnustjóriMiddlesbrough, hefur hrósað fyr-
irliðanum Gareth Southgate í há-
stert að undanförnu. Southgate hef-
ur verið lykilmaður í liði Middles-
brough undanfarin ár en hann var
fyrsti leikmaðurinn sem McClaren
keypti til félagsins eftir að hann hóf
störf hjá félaginu. „Ég keypti
Southgate fyrir rúmar sex milljónir
punda en það þótti mikið á þeim
tíma. Ég sé það hins vegar alltaf
betur og betur að ég gat ekki gert
betri kaup. Southgate er fyrir mér
einn af fimm bestu varnarmönnum
ensku úrvalsdeildarinnar. Hans
helsti kostur sem leikmanns er sá
að hann gefur geysilega mikið af sér
til annarra leikmanna í liðinu. Sér-
staklega eru það ungu leikmennirnir
sem njóta góðs af því að spila með
honum.“
Knattspyrnustjóri Arsenal, ArseneWenger, er ekki í nokkrum vafa
um að Spánverjinn Jose Antonio
Reyes eigi eftir að sýna allar sínar
bestu hliðar í ensku úrvalsdeildinni í
vetur. Reyes hefur glímt við meiðsli
að undanförnu en virðist nú hafa
jafnað sig af þeim. „Reyes hefur
mikla hæfileika sem eiga eftir að
nýtast Arsenal enn
betur í framtíðinni.
Boltatækni hans og
hraði skelfir varnar-
menn og svo er lík-
amsstyrkur hans
alltaf að verða
meiri.“ Fyrirliði
Arsenal, Thierry
Henry, verður frá vegna meiðsla í
töluverðan tíma en hann efast ekki
um að Reyes geti fyllt skarð hans í
liðinu. „Mér finnst Reyes ekki enn
hafa sýnt sínar bestu hliðar. Það
sem hann gerir á æfingasvæðinu er
oft magnað en þegar kemur í leiki
hefur hann ekki verið nógu ákveð-
inn. Í síðustu leikjum hef ég séð
hann bæta sig mikið og miðað
hvernig hann spilaði á móti Everton
þá held ég að hann geti orðið einn
besti leikmaður úrvalsdeildarinnar
innan skamms tíma.“
ÚR SPORTINU„Eru okkur mikil vonbrig›i“
N‡ja frjálsíflróttahölldin í Laugardalnum ver›ur ekki tilbúin fyrir vígslumóti›
sem átti a› fara fram fimmtánda október næstkomandi.
FRJÁLSAR Nýja frjálsíþróttahöllin í
Laugardal, sem einnig er ráð-
stefnu- og sýningarhöll, verður
ekki tilbúin fyrir vígslumót 15.
október eins og stefnt var að. Til
stóð að halda stórt og mikið frjáls-
íþróttamót fyrir alla aldursflokka
í tengslum við Móta- og aukaþing
Evrópska frjálsíþróttasambands-
ins sem fram fer á Hótel Nordica
14. og 15. okt. nk. og vígja frjálsí-
þróttaaðstöðuna að viðstöddum
helstu forystumönnum frjálsí-
þróttamála í Evrópu.
„Því er ekki að neita að þetta
eru okkur mikil vonbrigði. Okkur
langaði að sýna öllum helstu for-
ystumönnum frjálsra íþrótta í
Evrópu þetta glæsilega hús í notk-
un sem væntanlegan vettvang
fyrir alþjóðleg mót í framtíðinni.
Hingað buðum við öllum þeim
sem skipta máli í frjálsíþrótta-
heiminum eins og formönnum og
framkvæmdastjórum frjálsí-
þróttasambanda, framkvæmda-
stjórum gullmótanna, umboðs-
mönnum og fleiri. Húsið er að
mér skilst tveimur til þremur vik-
um á eftir áætlun. Það verður
bara að taka þessu eins og hverju
öðru hundsbiti,“ sagði Jónas Eg-
ilsson, formaður Frjálsíþrótta-
sambands Íslands, við Fréttablað-
ið.
Að sögn Jónasar Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Laugardals-
hallar, þykir honum miður að
frjálsíþróttahöllin verði ekki til-
búin til þess að halda umrætt
vígslumót en við því sé ekkert að
gera. Framkvæmdir eru lítillega á
eftir áætlun. „Það er alla vega
hægt að sýna húsið þótt það verði
ekki tilbúið til notkunar.“
Ekki er komin formleg dag-
setning á vígslu frjálsíþróttahall-
arinnar en vígslumótið verður
haldið strax fyrstu helgina eftir
að vígslan fer fram.
- þg
Gengið frá þjálfaramálum í Keflavík:
FÓTBOLTI Kristján Guðmundsson
mun halda áfram þjálfun úrvals-
deildarliðs Keflavíkur í knatt-
spyrnu karla. Kristján staðfesti
þetta í samtali við Fréttablaðið í
gær.
„Ég er mjög ánægður, þetta er
skemmtilegur hópur. Vonandi að
við náum að tryggja okkur þá
leikmenn sem okkur virkilega
vantar. Okkur vantar reynda
leikmenn í vörn og á miðjuna,“
sagði Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflavíkur, sem tók við
liðinu í vor eftir að Guðjón Þórð-
arson hætti skyndilega þjálfun
liðsins. Keflavík endaði í 4. sæti
Landsbankadeildarinnar sem
var betri árangur en margir
þorðu að vona.
- hh
Kristján ver›ur áfram í Keflavík
FIMMTUDAGUR 22. september 2005
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
29
46
4
09
/2
00
5
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
Við viljum bjóða þér meira
en þú hefur látið þig
dreyma um
Heilsársdekk Krómgrind
á afturljós
Vindskeið Aurhlífar Dráttarbeisli
Í samstarfi við
RAV4 aukahlutapakki að andvirði 185.000 kr. fylgir með
Nú færð þú glæsilegan RAV4 með veglegum aukahlutapakka að andvirði
185.000 kr., heilsársdekk, dráttarbeisli, vindskeið, aurhlífar og krómgrind á
afturljós. Komdu, prófaðu RAV4 og upplifðu meira en þú hafðir látið þig
dreyma um. Þú gerir ekki betri kaup fyrir veturinn!
Verð frá 2.690.000 kr.
Mánaðarleg greiðsla frá 35.990 kr.*
50% afsláttur af lántökugjaldi.
* m.v. 10% útborgun og 84 mánaða bílasamning hjá Glitni.
Hannes Þ. Sigurðsson:
Byrja›ur a›
æfa me› Stoke
FÓTBOLTI Hannes Þ. Sigurðsson,
knattspyrnumaður hjá enska 1.
deildarfélaginu Stoke City, er
byrjaður að æfa á nýjan leik eftir
þau meiðsli sem hafa hrjáð hann
að undanförnu. Hann gekk til liðs
við Stoke í lok ágústmánaðar og er
því loksins kominn almennilega af
stað hjá nýju félagi. „Það er gott
að vera með á æfingasvæðinu í
fyrsta sinn,“ sagði Hannes í sam-
tali við breska fjölmiðla. „Þetta
gengur ágætlega og ef ég held
uppteknum hætti get ég ekki séð
annað en að ég eigi að vera klár í
slaginn um helgina.“
- esá
BYGGING FRJÁLSÍÞRÓTTAHALLARINNAR Í LAUGARDAL Frjálsíþróttasamband Íslands var
búið að bjóða öllum helstu forystumönnum frjálsra íþrótta í Evrópu á vígslumót 15. októ-
ber nk. Ekkert verður af því þar sem vígslu hússins seinkar.
Bæjarstjórinn í Grindavík:
Knattspyrnu-
hús rís í
Grindavík
FÓTBOLTI Bæjarstjórinn í Grinda-
vík, Ólafur Ólafsson, tilkynnti á
lokahófi knattspyrnudeildar
Grindavíkur um helgina að í bæj-
arkerfinu væri unnið að því að
samþykkja og reisa knattspyrnu-
hús svipað því sem FH reisti í
Kaplakrika. Um er að ræða yfir-
byggðan knattspyrnuvöll í hálfri
stærð; yfir völl sem er ca. 55x35
metrar.
Þetta hefur verið baráttumál
knattspyrnuhreyfingarinnar í
Grindavík undanfarin misseri og
brutust út mikil fagnaðarlæti á
lokahófinu þegar Ólafur sagði í
ræðu sinni að nú sæi fyrir endann
á þessari vinnu og knattspyrnu-
hús myndi rísa á næstu misserum.
Grindavík stæði því sannarlega
undir nafni sem íþróttabær. - þg