Fréttablaðið - 06.10.2005, Page 22
20 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
Seldi Kjartani
húsið til að
borga Jóni Ó.
DV2x15 5.10.2005 21:09 Page 1
hagur heimilanna
24
.0
00
k
r.
25
.2
00
k
r.
28
.8
96
k
r.
200320001990
19
.4
64
k
r.
1995
Í ljós hefur komið að Bónus remúlaði með best fyrir dag-
setninguna 09.01.06 eða fyrr inniheldur örveruna Bacillus
cereus yfir viðmiðunarmörkum. Krydd sem notað hefur verið í
framleiðsluna reyndist innihalda þessa örveru. Sölu vörunnar,
sem eingöngu hefur fengist í verslunum Bónuss, hefur þegar
verið hætt. Neytendur sem hafa keypt remúlaði með þessari
dagsetningu geta skilað því til verslana Bónuss. Samkvæmt
upplýsingum frá heilbrigðisfulltrúa hjá Reykjavíkurborg er þó
ekki talið að varan geti verið hættuleg neytendum.
GÓÐ HÚSRÁÐ
■ Felix Bergsson
Felix Bergsson hvetur fólk til að hætta
að borða hvít hrísgrjón og fara frekar
að nota íslenskt bygg. Byggið þarf
hins vegar að sjóða mjög lengi, allt að
klukkutíma, til að það sé almennilegt.
Felix mælir því með því að sjóða stóran
pott af byggi og eiga síðan í kæli en
það geymist hátt í viku.
„Síðan getur maður
hitað það upp í örbylgj-
unni eða jafnvel smellt
því á pönnu með smá
olíu og basilikum,“ segir
Felix, sem finnst byggið
rosalega gott og það
komi algerlega í staðinn fyrir hvít hrís-
grjón. Byggið segir Felix að sé hægt að
kaupa úti um allt en sjálfur kaupir hann
það í Melabúðinni. Það var fjölskylduá-
kvörðun að hætta að nota hveiti, sykur
og hvít hrísgrjón sem þykja ekki holl.
Ein bestu kaup lífs síns gerði Guðrún Ögmundsdóttir hjá hjálpræðis-
hernum í Danmörku. Hún var námsmaður þar á árunum 1979 til 1985
og þá hafði hún eins og aðrir námsmenn lítið fé á milli handanna.
„Þar gat maður keypt svo mikið af sniðugum hlutum fyrir lítinn
pening,“ minnist Guðrún, sem keypti allt frá bollum til stórra
húsgagna. Sumt af því sem hún fjárfesti í þá á hún enn í dag, þar
á meðal flott gamalt borð. „Það hefði verið mjög dýrt ef það hefði
verið á antiksölu,“ segir Guðrún, sem segir borðið enn í notkun í
dag en er þó að hugsa um að halla því bráðum.
Guðrúnu eru engin ein verstu kaup minnisstæðari en önnur. „Það
eru einhver flýtiútsölukaup, einhver panikkaup þegar maður heldur að
mann vanti föt. Þá kaupir maður tóma vitleysu,“ segir Guðrún og hlær.
„Það er mörg peysan sem hefur farið beint til Rauða krossins,“ bætir hún
við.
„Maður kaupir oft einhverja bölvaða vitleysu,“ segir Guðrún, sem reynir nú
orðið að flýta sér hægt á útsölum.
Hún þorir ekki að skjóta á hve miklum peningum hún hafi varið í
útsöluföt sem hún fór aldrei í en segist þó viss um að þau góðu kaup
sem hún hafi gert í gegnum tíðina vegi upp á móti þeim slæmu.
NEYTANDINN: GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR ALÞINGISKONA
Bestu kaupin hjá Hjálpræðishernum
Umhverfisstofnun varar við
of mikilli vítamínneyslu og
hvetur fólk til að kynna sér
næringargildi matvæla.
Ofneysla vítamína getur verið
skaðleg að sögn Jóhönnu E. Torfa-
dóttur, sérfræðings á matvæla-
sviði Umhverfisstofnunar, og
varar hún sérstaklega við vítam-
ínbættum drykkjum.
„Þegar fólk borðar venjuleg
matvæli, sem hvorki vítamínum
né steinefnum hefur verið bætt
út í, fær það hæfilegt magn þess-
ara efna. Ekki er hægt að borða
það mikið af venjulegum mat að
fólk fái of mikið af þeim,“ segir
Jóhanna og bætir við að undan-
tekningin frá þessari reglu sé
lifur, sem er óvenjurík af A-víta-
mínum.
Það sem ber að gjalda var-
hug við er vítamínbættir drykk-
ir „Líkaminn verður ekki jafn
saddur af drykkjum og af mat,“
segir Jóhanna. „Þannig getur fólk
fengið miklu meira, og raunar of
mikið, af vítamínum en honum
er hollt.“ Af þeirri ástæðu óttast
Umhverfisstofnun vítamínbætta
drykki.
Fólk sem neytir fjölvítamína
til viðbótar við vítamín- eða stein-
efnabættan mat getur átt á hættu
að innbyrða of mikið af vítamín-
um. Jóhanna segir ástæðu fyrir
þá sem svo er ástatt um að vara
sig. „Það er auðvelt að fara langt
yfir þau hættumörk sem Mat-
vælaöryggisstofnun Evrópu hefur
skilgreint og þeir sem neyta fæðu-
bótarefna í ofanálag gætu verið í
hættu.“
Jóhanna varar sérstaklega við
að börn neyti vítamín- og stein-
efnabættra matvæla í miklum
mæli, sérstaklega þar sem flest
þeirra taka lýsi og jafnvel barna-
vítamín.
Hún hvetur því fólk til að
kynna sér innihald matvæla og
kynna sér næringagildið. „Fólk
verður hreinlega að leggja saman
innihaldið til að gæta sín.“
Margvísleg hætta getur fylgt
ofneyslu vítamína og má þar nefna
fósturskaða og skemmdir á lifur.
Ofneysla vítamína
getur verið skaðleg
JÓHANNA E. TORFADÓTTIR Varar við að börn neyti vítamín- og steinefnabættra matvæla
í miklum mæli, sérstaklega þar sem flest þeirra taka lýsi og jafnvel barnavítamín.
Kuldakastið í lok september
virðist hafa hleypt nokkru lífi í
dekkjaviðskipti landsmanna en þá
flykktist fjöldi fólks með bíla sína
á dekkjaverkstæði til að skipta
yfir í vetrardekkin.
Stefán Ásgrímsson hjá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda segir
þó að dekkjaskiptingar séu mjög
svipaðar í ár og síðustu ár á höfuð-
borgarsvæðinu. Að öllum líkind-
um séu þær þó líflegri fyrir norð-
an þar sem veðrið hefur verið
kaldara. Í sama streng tekur
starfsmaður hjá Dekkjatorginu
á Akureyri sem segir viðskiptin
fara líflega af stað í haust. Þar
sé mest selt af loftbóludekkjum
en nagladekkin fylgi fast á hæla
þeirra.
Vinsældir hinna mismunandi
vetrardekkja virðast vera nokk-
urs konar trúarbrögð og eru
nagladekkin til að mynda vinsælli
hjá viðskiptavinum Dekkjalagers-
ins á höfuðborgarsvæðinu. Stefán
segir enga rannsókn til um hlut-
fall nagla-, loftbólu- og heilsárs-
dekkja sem séu í umferð. Hins
vegar virðist harðkornadekk vera
horfin að mestu af markaði. Heils-
ársdekkin eiga alltaf nokkrum
vinsældum að fagna, sérstaklega
hjá jeppaeigendum.
„Vetrardekk hafa aldrei verið
betri,“ segir Stefán og bendir á að
ekki sé mikill munur á milli bestu
og verstu dekkjanna. „Það kemur
ekkert í staðinn fyrir nagladekk á
ís,“ segir Stefán en bætir við að í
öðru færi skipti þau engu máli og
séu í raun verri á þurrum vegum
og í bleytu.
Stefán segir langflesta skipta
yfir á vetrardekk. Hins vegar séu
hinir áberandi í umferðinni þegar
reyni á enda hafi þeir þá truflandi
áhrif á umferðina.
VETRARDEKK Ritstjóri FÍB blaðsins segir
vetrardekk aldrei hafa verið betri.
Landsmenn huga að vetrardekkjunum:
Harðkornadekkin eru horfin
Fullgilt bókasafnsskírteini hjá Borgarbókasafni kostar 1.200 krónur og gildir í heilt
ár. Börn og unglingar að átján ára aldri fá hins vegar skírteinin ókeypis. Allir geta
fengið bókasafnsskírteini svo lengi sem þeir hafa íslenska kennitölu.
Yfirleitt eru bækur lánaðar til eins mánaðar. Ef bókunum
er skilað of seint safnast dagsektir á þær. Það eru tíu
krónur á dag fyrir hverja bók og níutíu krónur fyrir mynd-
bönd. Þó er aldrei rukkað meira en 3.000 krónur, hvort
sem einni eða fleiri bókum er skilað í einu. Undanfarin
ár hefur verið hægt að skila bókum án sekta á einum
sérstökum degi. Ekki er lengur föst dagsetning á honum
en þó ekki ólíklegt að hann verði í ár og er þá auglýstur
áður.
■ HVAÐ KOSTAR... BÓKASAFNSSKÍRTEINI
Ókeypis fyrir börn og unglinga
Neytendasamtökin gerðu í ágúst markaðskönnun á stafrænum myndavélum
á höfuðborgarsvæðinu. 115 gerðir af stafrænum myndavélum voru þá á mark-
aðnum hjá 15 söluaðilum. Ódýrasta vélin kostði 9.900 krónur en sú dýrasta 179
þúsund krónur. Dýrasta vélin er Leica Digilux 2 sem hægt er að kaupa hjá Beco
en ódýrustu vélarnar voru Kodak C 300 sem hægt er að kaupa hjá Expert og
Hans Petersen og Olympus C-370 Z sem hægt var að fá í Hagkaupum, Fótoval og
Sjónvarpsmiðstöðinni. Ábyrgðartími á flestum myndavélunum var tvö ár nema
Olympus-vélum sem Bræðurnir Ormsson selja en á þeim er þriggja ára ábyrgðar-
tími. Í Neytendablaðinu og á heimasíðu samtakanna á www.ns.is er einnig hægt
að finna gæðakönnun á 34 gerðum af stafrænum myndavélum.
ÚTGJÖLDIN
> Afnotagjöld sjónvarps.
Árgjald miðað við verðlag í nóvember hvers árs.
■ VERSLUN OG ÞJÓNUSTA
Bónus innkallar remúlaði
■ VERSLUN OG ÞJÓNUSTA
Mikill verðmunur á myndavélum
1985
5.
30
0
kr
.
1980
74
2
kr
.