Tíminn - 09.11.1975, Síða 33
Sunnudagur !). nóvember 1975.
TÍMINN
33
kóngsdótturinnar, þar
sem hún stóð við fall-
ega gosbrunninn, þar
sem syntu margir gull-
fiskar.
Leifur nálgaðist hana
og þá hrópaði
prinsessan: — ó, er
hann ekki kominn
þarna þessi strákur,
burt með hann! En
áður en nokkur kæmi
til að reka Leif burt, þá
féll hann á kné fyrir
henni og sagðist gefa
henni hjarta sitt. Þá hló
hún hátt og hæðnis-
lega: — Heldur þú, að
ég vilji giftast venju-
legum garðyrkjustrák!
Þá gekk Leifur
hnugginn i burtu, en
töframaðurinn varð
reiður við prinsessuna
af þvi að hún hafði sært
hann góða frænda
hans, og i reiði sinni þá
galdraði hana umsvifa-
laust að rósarunna, og
þarna stóð hún nú sem
hinn fegursti rósar-
runni, en þegar hirð-
meyjarnar, sem sáu
þetta allt saman,
sögðu konungshjónun-
um þessi hræðilegu
tiðindi, þá hlupu þau út
i garðinn og ætluðu að
umfaðma runnann, en
stungu sig bara á þyrn-
unum.
Töframaðurinn
hugsaði með sjálfum
sér, að nú væri bezt að
koma sér i burtu, og
kallaði á Leif, en fann
hann hvergi, og svo
flýtti Hókus sér heim til
systur sinnar til að
haida upp á afmæli:
sitt. Og hann flaug á
braut.
Kóngur og drottning
báðu alla spekinga og
vitringa í landinu, að
reyna að frelsa
prinsessuna úr álöguni,
en þeir gátu það ekki.
Kóngur auglýsti eftir
öllum töframönnum i
heiminum og allir
komu, nema Hókus, og
enginn gat neitt gert í
málinu.
Það hafa verið notuð
sterkustu töfrabrögð,
sem til eru sögðu töfra-
menirnir, og enginn
getur neitt sagði
Fókus, en hann var
næstbezti töframaður I
heiminum, — næstur
Hókus frænda Leifs.
En hélt Fókus áfram,
ef notaður er dýr-
mætasti vökvi
heimsins til að vökva
runnann, þá gæti verið
að álögin hyrfu.
Svo fóru allir heim til
sín og rósarunninn stóð
þarna með blómum og
ilmaði svo yndislega.
Leifur og gamli
garðyrkjumaðurinn
hugsuðu vel um
runnann, og á hverjum
morgni fór Leifur og
andaði að sér ilminum
og hugsaði um faliegu
prinsessuna.
Sá, sem getur leyst
dóttur mina úr álögum,
sagði kóngurinn, fær
hana fyrir konu og
verður krónprins i
landinu. Og þetta var
gert heyrinkunnugt i
rikinu.
Margir komu með
vatn frá beztu lindum
og frægum uppsprett-
um, en allt kom fyrir
ekki.
Gamli garðyrkju-
maðurinn sagði við
Leif: — Þetta er hræði-
legt, það er alltaf
verið að vökfa
aumingja rósarunnann
með allrahanda vatni
og meira að segja iim-
vötnum. Hann þolir
ekki svona mikla
vökvun, ég er hræddur
um að rósarunninn
deyi.
Leifur gerði allt sem
hann gat til að bjarga
runnanum, og hann
hugsaði ekki um annað
dag og nótt. Hann sótti
gróðurmold og bar að
rótunum, þegar allt
vatnið sem borið var
að hafði skolað
jarðveginum i burt, en
alltaf komu nýir og
nýir ævintýramenn,
sem héldu að þeir væru
með dýrmætasta vökva
i heimi til þess að
frelsa kóngsdótturina.
Nú kom frændi Leifs,
töframaðurinn Hókus,
til að sækja hann, en
Leifur vildi ekki fara
frá runnanum. Hann
grátbað frænda sinn,
að hjálpa sér að leysa
kóngsdótturina úr
álögum. — Þetta er allt
mér að kenna, sagði
aumingja Leifur. En
töframaðurinn þóttist
ekki geta það, hann
yrði fyrst að fara aftur
heim og gá i töfra-
bókina sina.
— Ég kem aftur eftir
tvær vikur, sagði
Hókus.
— Ó, sagði Leifur,
þegar frændi hans var
farinn, ég er svo
hræddur um að runninn
verði fölnaður eftir
tvær vikur, mér sýnist
hann þegar vera farinn
að feila blöðin. Og Leif-
ur fór að gráta og
faðmaði rósarunnann i
örvæntingu. Hann fann
ekki aðþyrnarir stungu
hann, en hann grét og
hugsaði um
prinsessuna, og
hvernig hann ætti að
frelsa hana. Tárin hans
féllu á blöðin á rósun-
um — og allt I einu sá
hann skinandi birtu,
svo hann lokaði agun-
um, en þegar hann
opnaði þau á ný, þá lá
hann á hnjánum fyrir
framan fallegu kóngs-
dótturina, og hún var
fallegri en nokkru sinni
fyrr. Hún stóð þarna og
horfði á Leif með tárin i
augunum.
— Ó, elsku prinsessa,
fyrirgefðu mér, sagði
Leifur.
— Kæri tryggi Leifur,
sagði hún og kyssti
hann.
í sama bili kom
töframaðurinn fljug-
andi tii þeirra. Hann
hrópaði til þeirra: —
Nú, þið hafið
uppgötvað það, að dýr-
mætasti vökvi jarðar-
innar eru tár
ástarinnar.
Nú komu kóngur og
drottning þjótandi og
föðmuðu dóttur sina og
Leif lika og allir voru
glaðir. Það var haldin
stórkostleg brúðkaups-
veizla og Leifur og
prinsessan voru ham-
ingjusöm allt sitt lif.
Þau eignuðust mörg
falleg og góð börn, og
Leifur kenndi þeim að
vinna i garðinum, þó að
þau væru konungborin,
og einkum og sér i lagi
kenndi hann þeim að
rækta og annast um
rósarunna. í hallar-
garðinum uxu siðan
fallegusturósir i heimi.
Þær voru svo fallegar,
að annað eins hafði
ekki sést, og fólk kom
langt að til þess að dást
að þeim.
(þýtt úr dönsku)
Forðist slysin
og kaupið
WEED keðjur í tíma
Suðurlandsbraut 20 * Sími 8-66-33
RJÚPUR
Kaupum rjúpur á hæsta verði,
vinsamlegast hafið samband við
okkur tímanlega
Stos#
Blönduhlíð 2 - Símt 16086
rfr
STIL-HUSGOGN
AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600
sófaseHió
hittir beint i mark
TODDÝ sófasettiö er sniöiö
fyrir unga tólkió
Verö aðeins kr. 109 000,-
Góóir greiösluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
Ármúla 7. —Sími 30501. —Reykjavík.
Sólun
ÍÓLUM HJÓLBARÐA A FÓLKSBlLA,
JEPPA- OG VÓRUBlLA MEÐ
DJ0PUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin d sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ MÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.