Fréttablaðið - 04.11.2005, Síða 41
Besti kranamaður á Íslandi
spreytir sig í Evrópu
Ingi Björnsson er á leiðinni á Evrópumeistaramót í kranastjórnun.
2 ■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Ingi Björnsson varð Íslandsmeistari
í kranastjórnun síðastliðinn ágúst
og mun keppa fyrir Ísland á Evr-
ópumeistaramóti í þeirri grein 24.
nóvember næstkomandi. Keppnin
mun fara fram í Biberach í Þýska-
landi en þar eru höfuðstöðvar Lieb-
herr, sem er einn stærsti krana-
framleiðandi heims og stendur
jafnframt fyrir mótinu.
Merkúr, umboðsaðili Liebherr
hér á landi, stóð fyrir Íslandsmeist-
aramótinu sem fór fram í ágúst og
kom þá nokkuð á óvart að krana-
menn frá verktökunum Feðgum
ehf. röðuðu sér í þrjú efstu sætin.
Spurður af hverju þeir hjá Feðgum
séu svo góðir kranamenn segir
Ingi: ,,Já, það er erfitt að segja, en
ætli það sé ekki bara mikilvægast
að hafa gaman af starfinu.“
Ingi hefur starfað við krana-
stjórnun síðan 2001, þegar hann
hóf störf hjá Feðgum. Hjá
fyrirtækinu eru í notkun fimm
kranar en þar á meðal er sams kon-
ar krani og keppt verður á í Þýska-
landi. Sá krani er af gerðinni Lieb-
herr 42K.1. Á Evrópumeistaramót-
inu verður keppt um besta tímann
til þess að ljúka þraut sem felst í
því að stýra steypusílói ákveðna
leið og steypa úr því bolta sem á
svo að falla á ákveðin stað. Í sams
konar þraut var einnig keppt í á Ís-
landsmeistaramótinu. Ingi bendir
einnig á að þeir hjá Feðgum ehf.
hafi einungis nýlega krana í notk-
un og það kunni að vera ein skýr-
ing á góðu gengi þeirra manna á
Íslandsmeistaramótinu. Margir
eldri kranar séu í notkun hjá öðrum
verktökum og segir hann talsverð-
an mun á því að stýra eldri og nýrri
krönum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Sjálfvirku yfirbreiðslurnar eru upp-
seldar hjá Global-tækjum, en fyrir-
tækið tekur nú við pöntunum.
„Við erum þeir einu sem bjóða
sjálfvirkar yfirbreiðslur. Þær ganga
fyrir rafmagni, það er bara takki inni
í bíl og maður þarf ekkert að fara út
úr bílnum. Þannig vilja menn hafa
það á Íslandi,“ segir Baldur Þórar-
insson, eigandi Global-tækja, en
fyrirtækið selur bæði sjálfvirkar
yfirbreiðslur og Kruz-tengivagna
sem þær passa á.
Sími fyrirtækisins var rauðgló-
andi fyrr í þessari viku, þar sem á
þriðjudag var sá fjögurra mánaða
frestur uppurinn er vörubifreiða-
stjórum sem flytja lausan farm var
gefinn til að koma yfirbreiðslum á
bíla sína. Reglugerðin nær til þess
farms sem ryk getur stafað frá eða
fallið getur af ökutækinu. Lögregl-
an í Árnessýslu og lögreglulið á
suðvesturhorninu tóku því átak í
málunum og hófu að sekta þá sem
ekki voru með yfirbreiðslur yfir
lausum farmi eða bundu hann á
annan hátt, til dæmis með vatni.
„Það var alveg röð af þeim uppi
á Rauðavatni, löggan var að stoppa
þá. Menn trúðu því bara ekki að
strangt yrði tekið á þessu,“ segir
Baldur.
Sjálfvirku yfirbreiðslurnar kosta
250.000 krónur. „En sektin er 5.000
krónur í hvert sinn og menn geta
verið teknir nokkrum sinnum á
dag, svo yfirbreiðslan borgar sig,“
segir Baldur.
Baldur Þórarinsson selur sjálfvirkar yfirbreiðslur á tengivagna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Yfirbreiðslurnar orðnar
lögbundnar
Nú þegar þolinmæði yfirvalda er á þrotum hvað varðar yfirbreiðslumálin, þá rjúka yfir-
breiðslur út og fáir eiga þær á lager. En von er á fleirum til landsins innan skamms.
Andlega erfið vinna
Smá drullumallsstemning
RAGHILDUR STEINUNN
JÓNSDÓTTIR, SJÓNVARPS-
KONA OG FYRRVERANDI
UNGFRÚ ÍSLAND.
Hefur þú einhvern tímann
unnið á vinnuvél?
„Nei, ég hef reyndar aldrei unn-
ið á vinnuvél en mig hefur alltaf
langað að keyra gröfu“.
Ef þú þyrftir að vinna á vinnu-
vél, hvaða vél myndir þú velja?
„Ég myndi hiklaust velja gröfu
þar sem ég gæti dottið í smá
drullumallsstemningu.“
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Sigmar Helgi Björgúlfsson er einn krana-
manna Baulu, en hann hefur unnið fyrir
fyrirtækið í fjögur ár. Sigmar sést hér
stjórna krananum.
KRANAR ÞYKJA BRÁÐNAUÐ-
SYNLEGIR Á BYGGINGARSVÆÐ-
UM OG AUÐVELDA VINNU
VERKAMANNA MIKIÐ. STJÓRN-
UN ÞEIRRA ER HINS VEGAR
ALLT ANNAÐ EN EINFÖLD.
„Þetta er róleg vinna, þannig séð,
líkamlega þægileg, en stressandi
andlega,“ segir Stefán Gunnlaugs-
son, kranastjóri og eigandi bygging-
arfyrirtækisins Baulu. Fyrirtækið á
lítinn krana með eins tonns lyftigetu
í 35 metra hæð og stjórnar Stefán
krananum með þráðlausri fjarstýr-
ingu.
„Maður þarf að gæta þess að slá
menn ekki niður sem eru í kringum
mann, þannig að þessi vinna krefst
fullrar einbeitingar. En þetta er ekki
líkamlega erfitt,“ segir Stefán, sem
hefur verið með kranaréttindi í einn
og hálfan áratug.
í fólksbíla, jeppa, vörubíla,
vinnuvélar og bátavélar.
Á lager og hraðsendingar.
Yfir 40 ára reynsla.
ALTERNATORAR OG STARTARAR
Auðbrekku 20 s.564 0400
UMBOÐIÐ
vinnuvélin }
02-03 vinnuvélar lesið 3.11.2005 15:49 Page 2